Bændablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202028
UTAN ÚR HEIMI
Um 70% af innflutningi Dana
á soja ógnar regnskógum
Ný skýrsla frá háskólanum í
Kaupmannahöfn sýnir að Danir
flytja inn um 70% af hefð
bundnu soja sem er ekki vottað
til Danmerkur til dýraeldis en nú
fá kaupendur þess skýr skilaboð
þar í landi um að þeir verði að
breyta til í skipulagi sínu því soja
sem flutt er til landsins ógnar
regnskógum heimsins. Einungis
20% þess soja sem flutt er inn til
Danmerkur er vottað.
„Neytendur hafa óskað eftir
sjálfbærari framleiðslu á matvörum,
eins og kaffi og kakó, og hafa mat-
vælaframleiðendur og kaupendur
farið fram á að bæta framleiðslu á
pálmaolíu til ábyrgari vegar. Nú er
hins vegar mikill áhugi á og krafa
um að það sama gerist þegar kemur
að soja,“ segir lektor og höfund-
ur skýrslunnar, Aske Skovmand
Bosselmann. Að hans sögn er líklegt
að stór hluti þess soja sem Danmörk
flytur inn komi frá regnskógum sem
sífellt verða fyrir barðinu á nútíma-
kröfum eins og í Brasilíu. Þau þrjú
hundruð þúsund tonn af soja sem
Danmörk flytur inn í gegnum RTRS-
samninga er í raun ekki vitað með
fullvissu hvaðan koma. Vegna skorts
á rekjanleika er erfitt að vita um
upphaf þess soja sem flutt er inn til
landsins. Margir kostir eru þó við
samningana sem notast er við, eins
og að þeir tryggja að framleiðendur
fái réttar greiðslur og komið er í veg
fyrir háan flutningskostnað.
/ehg - landbrugsavisen
Stóraukin sojaræktun er meginástæða fyrir eyðingu regnskóga Brasilíu. Um 80% af soja sem ræktað er á Ama-
son-svæðinu fer til dýraeldis en annað til sojaolíugerðar og manneldis. Um 24–25 milljónir hektara eru sagðir fara
undir sojarækt á Amasonsvæðinu, sem mun vera sú næstmesta í heiminum í dag. Mynd / BioMar
Metútflutningur var á svína kjöti
frá Bandaríkjunum á síðasta
ári samkvæmt tölum Kjöt
útflutningssambands Banda
ríkjanna (US Meat Export Ferer
ation USMEF). Það á bæði við
um verð fyrir afurðirnar og magn
svínakjöts.
Samkvæmt tölum USMEF var
flutt út svínakjöt fyrir 6,95 millj-
arða dollara, sem er 9% aukning á
milli ára. Þá jókst útflutningurinn í
tonnum talið um 10% og voru flutt
út 2,67 milljónir tonna af svínakjöti
á árinu 2019.
Aukningin á útflutningi
til Hong Kong var 89%
Greint var frá þessu á vefsíðu Global
Meat í síðustu viku. Þar kemur fram
að aukningin í framleiðslu og út-
flutningi á svínakjöti megi rekja til
stóraukinnar eftirspurnar frá Asíu.
Eins og kunnugt er hafa Kínverjar,
sem eru stærstu framleiðendur
heims á svínakjöti, verið í miklum
vanda vegna afrísku svínapestar-
innar. Þar hefur verið skorin niður
framleiðsla sem nemur milljónum
tonna. Samkvæmt tölum USMEF
jókst útflutningurinn á svínakjöti
frá Bandaríkjunum til Hong Kong
um 89% á milli ára og verðmæti
útflutningsins jukust um 71%.
Miklar væntingar
um þíðu í tollastríðinu
Dan Halstrom, forstjóri USMEF,
segir að þrátt fyrir viðskiptahindr-
anir milli Bandaríkjanna og Kína
og tollastríð, þá hafi viðskiptin
við Hong Kong verið ótrúleg.
Reiknar hann með að svínakjöts-
útflutningurinn haldi áfram að
aukast á árinu 2020, sér í lagi ef
þíða myndist í samskiptum land-
anna í áframhaldandi viðræðum
um tollamál. Hann segir þó að út-
breiðsla kórónaveirunnar, sem nú er
nefnd „COVID-19“. valdi mönnum
áhyggjum. Það hafi þó ekki slegið
á áhuga manna í Bandaríkjunum
á að sinna vaxandi tækifærum
í útflutningi á rauðu kjöti inn á
Kínamarkað.
Líka aukning á Ameríkumarkaði
Aðrir markaðir fyrir bandarískt
svínakjöt hafa líka verið að vaxa.
Þar má nefna Mexíkó, þangað sem
útflutningur óx um 10% í magni og
46% að verðmætum. Þá hafi út-
flutningur til Suður-Ameríku aukist
um 12% að magni til og um 16%
hvað verðmæti áhrærir. Eins hafi
verið flutt út 4% meira af svínakjöti
til Kanada í fyrra og þar var verð-
mætaaukning viðskipt anna 5%.
/HKr.
Nú hefur Qmjólkursamlagið í
Noregi ákveðið að taka plastflipa
úr notkun á mjólkurfernum sínum
vegna umhverfissjónarmiða. Fyrir
nokkrum árum setti mjólkur
samlagið svokallaðan flipa á allar
mjólkurfernur hjá sér til þess
að neytendur gætu séð hversu
mikið væri eftir í fernunum og
var hugsunin að þannig gæti fólk
komið í veg fyrir matarsóun.
Forsvarsmenn mjólkursamlagsins
hafa tekið þessa ákvörðun til að koma
til móts við aukna umhverfisvitund
neytenda sem verður sífellt sterkari.
Þrátt fyrir að samlagið hafi fengið
góð viðbrögð við flipanum frá
því að hann var innleiddur vegur
umhverfisþátturinn meira í þessu
tiltekna máli.
Það mun taka nokkurn tíma fyrir
samlagið að koma plastflipunum
úr umferð en neytendur hafa
sent fyrirtækinu töluvert margar
fyrirspurnir út í vöruúrval þeirra
og plastnotkun svo stefnan er á að
minnka notkun plasts um 300 tonn
næstu árin.
Þegar flipinn verður kominn af
öllum mjólkurfernum fyrirtækisins
þýðir það minnkun um 18 tonn
af plasti. Stefna fyrirtækisins er
að kynna til leiks 100 prósent
endurvinnanlegar mjólkurfernur og
tappa til að ná umhverfismarkmiðum
sínum fyrir árið 2030. /ehg/Nationen
Q-mjólkursamlagið í Noregi:
Plastflipinn burt af
mjólkurfernunum
Metútflutningur var á svínakjöti
frá Bandaríkjunum á árinu 2019
– Aukin eftirspurn var frá Asíu og búist við áframhaldandi vexti
Bandarískir svínakjötsútflytjendur eru kampakátir yfir góðu gengi á síðasta ári.
Bandaríkin:
Slök útkoma í útflutningi
nautakjöts á árinu 2019
– Vonast eftir árangri af tollaviðræðum við Kína
Það er frekar dapurt yfir banda
rískum nautakjöts framleið
endum um þessar mundir.
Um 2,5% sam dráttur varð í
útflutningi á árinu 2019 samfara
um 3% samdrætti í verðmætum
talið.
Meginástæða minni útflutn-
ings var snörp dýfa í útflutningi
á nautakjöti til Japans. Þar nam
samdrátturinn um 6%, bæði hvað
magn og verðmæti áhrærir.
Það var þó ljós í myrkrinu að
útflutningur á nautakjöti til Suður-
Kóreu jókst um 7% og skilaði það
5% verðmætaaukningu útflutn-
ings á þann markað samkvæmt
tölum Kjötútflutningssambands
Bandaríkjanna (USMEF).
Aðrir markaðir sem verið hafa
öflugir fyrir bandarískt nautakjöt
voru sumir með einhverja aukn-
ingu á síðasta ári. Þannig jókst
útflutningur til Mexíkó um 1%, en
um 5% í verðmætum talið. Þá jókst
útflutningur til Mið-Ameríkuríkja
um 3% og um 7% að verðmæti.
Eins var 4% aukning á sölu til
Kanada sem skilaði 5% verðmæta-
aukningu.
Miklar vonir eru bundn-
ar við að samningaviðræður
Bandaríkjamanna við Kínverja
um tollamál skili árangri. Það gæti
hleypt lífi í bandarískan landbúnað,
sem hefur skaðast verulega af því
tollastríði. Það á bæði við um kjöt-
útflutning og ekki síður um útflutn-
ing á sojabaunum og mjöli. Þá voru
tollar lækkaðir á innflutningi á kjöti
til Japans nú í byrjun janúar og gæti
sala þangað því farið að glæðast.
/HKr.
Akureyri · Sími 465 1332
www.buvis.is
Erum að taka niður
pantanir í lambamerki
Litir: hvítt, gult, grænt, blátt, bleikt, fjólublátt, grátt, appelsínugult
Sendum sýnishorn ef óskað er.
H
ér
að
sp
re
nt
2018