Bændablaðið - 20.02.2020, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202030
Vinsældir kasjúhneta sem snakks
og til matargerðar eru miklar
enda hneturnar góðar til neyslu.
Uppruni þeirra er í Brasilíu en í dag
er ræktun þeirra mest í Víetnam,
á Indlandi og í fátækustu ríkjum
Afríku þar sem barnaþrælkun og
ömurlegar vinnuaðstæður tengjast
framleiðslu þeirra.
Áætluð heimsframleiðsla á kasjú
hnetum án hýðis árið 2017 var tæp
fjögur milljón tonn. Víetnam er
stærsti framleiðandinn með rúm
863 þúsund tonn og Indland í öðru
sæti með 745 þúsund tonn. Í þriðja
sæti er Fílabeinsströndin í Afríku
með 711 þúsund tonn og Indónesía
var fjórði stærsti framleiðandi
kasjúhneta í heiminum ári 2017 með
rúm 222 þúsund tonn samkvæmt
FAOSTAD, Tölfræðideild Matvæla
og landbúnaðarstofnum Sameinuðu
þjóðanna.
Aðrar þjóðir sem framleiða
talsvert af kasjúhnetum eru
Afríkuríkin Benín, Grænhöfðaeyjar,
Gínea Bissá, Tasmanía og Mósambík,
auk þess sem hneturnar eru ræktaðar
til framleiðslu í Indónesíu og Brasilíu.
Ræktun á kasjúhnetum hefur
aukist mikið á Fílabeinsströnd
Afríku frá árinu 2014 og landið
á skömmum tíma orðið stærsti
útflytjandi þeirra í Afríku. Ástæða
þessarar miklu ræktunar í landinu er
sögð vera ólöglegt skógarhögg til að
ryðja land til hneturæktunar og ódýrt
vinnuafl sem samanstendur að mestu
af konum og börnum.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn
411 kíló af nýjum eða þurrkuðum
kasjúhnetum með hýði árið 2019.
Sama ár var aftur á móti talsvert
meira flutt inn af afhýddum, nýjum
eða þurrkuðum kasjúhnetum, eða
58 tonn og 234 kíló. Auk þess sem
talsvert er flutt inn af kasjúhnetum í
tilbúnum réttum og hnetublöndum.
Langmestur var innflutningurinn
af afhýddum kasjúhnetum árið 2019
frá Víetnam, rúm 40, 5 tonn, en í öðru
sæti var Indland með innan við 10%
þess magns, eða rúm 3,6 tonn.
Anacardium occidentale
Talið er að 22 tegundir tilheyri ætt
kvíslinni Anacardium og eru þær
allar upprunnar í trópíska belti
SuðurAmeríku. Nokkrar tegundir
eru nytjaðar, A. excelsum er ræktuð
í Brasilíu og víða til að veita kaffi
plöntum skjól og A. giganteum til
viðarframleiðslu, auk þess sem A.
spruceanum þykir fallegt skrauttré
og villtar tegundir eins og A. humile
og A. rhinocarpuss eru nýttar til átu
og lækninga.
Sú tegund sem mest er ræktuð
kallast A. occidentale og við
þekkjum best af hnetunum sem
kallast kasjúhnetur.
Kasjúa er sígrænt tré sem
upp runnið er í strandhéruðum
NorðausturBrasilíu og nær um
14 metra hæð en er yfirleitt lægra,
eða um 6 metrar í ræktun. Tréð er
með trefjarót, stofninn stundum
beinvaxinn en yfirleitt kræklóttur
og með marggreinda og víðfeðma
krónu sem getur verið tvisvar
sinnum breiðari en hæð trésins.
Blöðin stakstæð, gljáandi og með
leðurkennda viðkomu, egglaga
eða ílöng og heilrennd, 4 til 22
sentímetrar að lengd og 2 til 15
sentímetrar að breidd, ung blöð
rauðgræn en verða ljósgræn þegar
þau eldast. Blómin mynda mörg
hundruð saman ax eða hálfsveip
sem getur verið um 26 sentímetra
langt. Blómin eru fölgræn í fyrstu
en verða rauðleit með auknum
þroska, eru með fimm grönnum
krónublöðum, 7 til 15 millimetrar að
lengd. Geta verið tvíkynja eða bara
karlkyns. Frjóvgun fer fram með
hjálp skordýra. Aldinið, rautt eða
gult og myndast þegar blómbotninn
þrútnar út, er 5 til 11 sentímetra
langt og kallast kasjúepli. Aldin er
með vaxkennda húð, ætt með sætt
bragð og angan, ber eitt fræ sem
hangir neðan úr því og kallast hneta
en er steinaldin í grasafræðilegum
skilningi. Fræið grátt og nýrnalaga,
tveir til þrír sentímetrar að lengd og
um einn sentímetri í þvermál. Fyrir
afhýðingu er ljós kjarninn umlukinn
tvöfaldri skel sem inniheldur
ertandi varnarefni.
Fjöldi yrkja og afbrigða eru í
ræktun. Öll eiga þau það sammerkt
að vera að mestu laus við óværur og
vera hraðvaxta. Vegna vaxtarhraðans
þykja trén góð til að binda jarðveg
og draga úr jarðvegseyðingu.
Víðfeðmasta króna kasjútrés sem
vitað er um þekur yfir 7.500 fermetra
og finnst í Natal, höfuðborg Rio
Grande do Norte í Brasilíu. Kasjútré
lifa sjaldnar í meira en 50 ár.
Nafnaspeki
Ættkvíslarheitið Anacardium er
grískt að uppruna og vísar til fræsins.
Ana þýðir að vísa upp á við en
gardium þýðir hjarta. Tegundarheitið
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Kasjúhnetan sem vildi skoða heiminn
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Aldinin eru rauð eða gul að lit og hangir hnetan neðan úr því.
Kasjútré eru vindþolin og með víðfeðma krónu.