Bændablaðið - 20.02.2020, Síða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202040
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Baldur og Sigríður hófu saman
búskap á Kirkjuferju árið
2006. Baldur er þar fæddur og
uppalinn.
Afi hans og amma fluttu á jörðina
árið 1948.
Baldur tekur við jörðinni af
foreldrum sínum.
Býli: Kirkjuferja.
Staðsett í sveit: Ölfus.
Ábúendur: Baldur Guðmundsson og
Sigríður Sigfúsdóttir ásamt dætrum
sínum fjórum, þeim Vigdísi Þóru, 19
ára, Jónínu, 17 ára, Helgu Guðrúnu,
13 ára og Sigurbjörgu Mörtu, 11 ára.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við erum sjö í heimili, við sex ásamt
einum tilvonandi tengdasyni. Svo eru
það hressu hundarnir, þeir Sallý, Týra
og Hrappur. Einn köttur sem heitir
Mýra.
Stærð jarðar? 130 ha að stærð og
þar af er 15 ha tún.
Gerð bús? Blómlegur hobbíbúskapur
með kindum og hestum.
Fjöldi búfjár og tegundir? Við
erum með 83 kindur og 30 hesta.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnu dagur fyrir sig á bænum?
Hefðbundinn vinnudagur hjá okkur
í sveitinni gengur þannig vanalega
fyrir sig að allir á bænum vakna á
virkum dögum um klukkan sjö og
borða saman morgunmat. Börnin
fara í skólann og aðrir til vinnu
utan bús. Þegar líða fer á daginn fara
ábúendur að tínast heim og farið er
í hesthúsið og fjárhúsið.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast við
bústörfin er þegar sauðburður
stendur yfir og heyskapur. En
leiðinlegast er þegar moka þarf
út úr fjárhúsinu.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Færri en betri hross,
fleiri kindur en það eru ekki allir
sammála í fjölskyldunni með það.
Hvaða skoðun hafið þið á félags
málum bænda? Félagsmál bænda
eru í ágætum málum en afkoma
bænda mætti vera betri.
Hvernig mun íslenskum land
búnaði vegna í framtíðinni?
Hann mun náttúrlega blómstra, því
hráefnið er svo gott sem við erum
með.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra
búvara? Á útflutningi á ferskum
landbúnaðarvörum í gegnum
Þorlákshöfn.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Lýsi, mjólk, smjör, piparostur og
stundum einn til tveir bjórar.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambalæri eða hryggur
með öllu tilheyrandi, þess má geta
að kvöldmatartíminn er samveru
stund fjölskyldunnar á bænum, því
þá borða allir saman og fara yfir
daginn og hvað þurfi að gera á búinu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar hrúturinn Hannibal
tók sig til og reyndi að rota bóndann
á bænum með því að stanga hann
beint á hausinn. Það gerðist þegar
verið var að rýja, en hrúturinn átti
einfaldlega ekki að vera viðstaddur.
Lambalundir með viskíi og hlynsírópi
Lambalundir er hægt að mat
reiða mjög hratt og þær er hægt
að framreiða á séríslenskan hátt,
með grænum baunum og rauðkáli,
eða sem framandi rétt.
Til dæmis er sniðugt fyrir þá sem
eru í lágkolvetna mataræði að vefja
þeim inn í salat og borða með góðu
grænmeti.
Lambalundir með viskíi
og hlynsýrópi
Hráefni
› 125 ml hlynsíróp
› 75 ml viskí eða annað gott, eins og
maltöl
› 1 fersk timjangrein (garðblóðberg)
› 675 g lambakjöt
› 15 m ólífuolía
› 1 msk. smjör
› 1 skalottlaukur, fínt saxaður
› 2 geirar hvítlaukur, fínt saxaðir
› Salt og pipar
Á glerfati eða í þéttum plastpoka er
hlynsírópi, viskíi og timjan blandað
saman. Bætið kjötinu við og veltið
því vel í kryddleginum.
Lokið pokanum. Geymið í kæli í
tvær klukkustundir eða yfir nótt.
Takið kjötið úr marineringunni og
geymið marineringuna. Hendið
timjangreininni.
Brúnið lambalundirnar í olíu og
smjöri í pönnu í um það bil tvær
mínútur á hlið fyrir meðalsteikt.
Kryddið með salti og pipar. Haldið
hita á réttinum.
Á sömu pönnu er skalottlaukurinn
og hvítlaukurinn karamellseraður.
Bætið marineringunni við og sjóðið
niður um helming eða þar til vökv
inn er orðinn að sírópi.
Kryddið með salti og pipar. Setjið
lambalundirnar aftur á pönnuna og
hjúpið þær vel með marineringunni.
Berið fram lundir. Berið fram með
grænum baunum og kartöflumús.
Eða í salatvefjunum hér að neðan:
Avókadó- og salatvefjur
› Avókadó, tómatur, salat (baby gem)
með jalapeno chili
› Hráefni fyrir dressingu:
› 100 g majónes
› 8 stk. graslaukur, fínt saxaðir
› ½ búnt steinselja, fínt saxað
› ¼ búnt estragonlauf, fínt saxað
› safi af 1 ferskri sítrónu
› 1 tsk. fisksósa (fæst í asíu
krydddhillunni)
› klípa sjávarsalt
› nýmalaður hvítur pipar eftir smekk
› 3 msk. sýrður rjómi
› Salat
› 2 baby gem salat, stór lauf helminguð
› 1 box kirsuberjatómatar, skornir í
helminga
› 2 avókadó, skrælt og skorið í þriggja
sentimetra klumpa
› safi af einni ferskri sítrónu
› 40 ml jómfrúarólífuolía
› klípa sjávarsalt
› 1 jalapenó eða annað chili,
fræhreinsað og skorið í 1 cm bita
› 10 stilkar af graslauk, fínt saxaður
Aðferð
1. Til að gera dressinguna, blandið
þá saman majónes, graslauk,
steinselju, estragon, sítrónusafa,
fisksósu, salti og pipar í blandara
og vinnið saman þar til þetta er
slétt (hægt að nota þær jurtir
sem eru til eða ræktaðar í
glugganum með hækkandi sól).
2. Í skál skaltu blanda saman
sýrðum rjóma og jurta
blöndunni og blanda varlega
saman. Smakkið til og kryddið
og geymið í kæli.
Framreiðsla:
Þvoið, hreinsið og hristið salatið
þurrt í sigti. Afhýðið og saxið
laukinn.
Skerið avókadóið til helminga,
fjarlægið kjarnann, afhýðið og
skerið í bita.
Skerið tómata í fjórðunga og
blandið þeim saman við avókadó,
sítrónusafa, ólífuolíu og salt í skál.
Steikið kjötið í olíunni þar til það
verður fallega brúnt, hægt er að
nota hvaða kjöt sem er og jafnvel
sjávarfang, skötusel eða rækjur.
Raðið nú kjötinu, tómötunum og
blöndunni með avókadóinu upp á
disk.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Kirkjuferja
Fjölskyldan og skiptinemarnir.