Bændablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 2020 41
Hvernig væri að hekla sér körfur
undir hekl- og prjónaverkefnin?
Eða skella hekluðum körfum inn
á bað, í eldhúsið eða bústaðinn.
Þessar skemmtilegu körfur eru
heklaðar Drops Eskimo sem er
gróft garn, notuð er stór nál og því
fljótheklaðar. Drops Eskimo er á 30%
afslætti hjá okkur í Handverkskúnst
allan febrúar, er fáanlegt í yfir 50
litbrigðum og hentar vel til þæfingar.
Uppskriftina er einnig að finna
á vef Garnstudio og er hún þar í
tveimur stærðum.
Stærð: Þvermál ca 30 cm, hæð ca 17 cm.
Garn: Drops Eskimo, fæst á www.garn.is
- Beige nr. 48: 250 g
- Lime nr. 35: 100 g
Heklunál: 6 mm
Heklfesta: 12 stuðlar og 6 umferðir = 10 x
10 cm.
Mynstur nr. ee-550.
Hekl leiðbeiningar: Í byrjun hverrar umf með
fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll, umf endar á 1 kl
í 1. ll frá byrjun umf. Í byrjun hverrar umf með
st, skiptið út fyrsta st með 3 ll, umf endar á kl í
3. ll frá byrjun umf.
Skammstafanir á hekli: ll – loftlykkja, kl –
keðjulykkja, fl – fastalykkja, st - stuðull
Uppskriftin:
Stykkið er heklað í hring. Byrjað er á að hekla
botninn.
Með beige lit, heklið 2 ll.
1. umf: Heklið 6 fl í 2. ll frá heklunálinni –
MUNIÐ heklleiðbeiningar.
2. umf: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
3. umf: Heklið *1 fl í næstu fl, heklið 2 fl í næstu
fl*, endurtakið frá *-* út umf = 18 fl.
Munið að passa upp á heklfestuna.
4. umf: Heklið *1 fl í næstu 2 fl, heklið 2 fl í
næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 24 fl.
5. umf: Heklið *1 fl í næstu 3 fl, heklið 2 fl í
næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 30 fl.
6-16. umf: Haldið áfram að auka út um 6 fl í
hverri umf með því að hekla 1 fl fleiri fyrir hverja
útaukningu = 96 fl í umf.
Heklið nú körfuna þannig:
1. umf: Heklið 1 st í hverja fl – MUNIÐ
heklleiðbeiningar = 96 st.
2. umf: Heklið 1 ll, *1 frambrugðinn st í kringum
næstu 4 st, 1 afturbrugðinn st í kringum næstu
4 st*, endurtakið frá *-* út umf.
3. umf: Heklið eins og í umf 2.
4. umf: Heklið 1 ll, *1 afturbrugðinn st í
kringum næstu 4 st, 1 frambrugðinn st í kringum
næstu 4 st *, endurtakið frá *-* út umf.
5. umf: Heklið eins og í umf 4.
Endurtakið umf 2-5 einu sinni til viðbótar.
Skiptið um lit. Heklið með lime lit eina
endurtekningu til viðbótar (= 4 umferðir), þá
ætti karfan að mælast ca 16 cm á hæð.
Síðasta umferðin á körfunni er kantur, þá er
heklað 1 fl í hvern st og er aðeins heklað í aftari
hluta lykkjunnar
Heklkveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Hekluð karfa
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 5 7 8 3
7 4 6
1 2 5 4
4 8 2 1
9 1 6 2
3 9 5 6
3 1 7 6
5 2 8
1 6 8 9 5
Þyngst
6 5 9 2 1
1 7 5 3
7 5 9 8
6 8 3 4
3 9 2 1
8 6 3 5
3 7 2 9 4
5 2 6
8 9 2
8
1 8 3
8 6 2 4
3 7 5
4
1 6 9
9 4 7
7
4 1 6 9
2 5
1
8 3 5
4
2 8
8 1 9 6
3
Langar að verða kúabóndi
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Herdís Lilja er hress og kát
sveitastelpa sem elskar dýr og
íþróttir.
Nafn: Herdís Lilja Valdimarsdóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Sólheimar, Sæmundarhlíð,
Skagafirði.
Skóli: Varmahlíðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði og íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundurinn minn.
Uppáhaldsmatur: Grillað folalda
kjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Albatross.
Uppáhaldskvikmynd: Að temja
drekann sinn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég
heimsótti langalangömmu mína á
sjúkrahúsinu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég æfi frjálsar og
fimleika.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Mig langar að verða
kúabóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Stökk niður af svölunum
í íþróttahúsinu.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt á
nýju ári? Fara á Skólahreysti, áfram
Varmahlíðarskóli!
Næst » Herdís Lilja skorar á Ísleif
Eld Þrastarson, Skagafirði, að svara
næst.
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?