Bændablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202032
NYTJAR HAFSINS
Eitt stykki loðnuvertíð
Áætlað er að meðal loðnuvertíð
geti gefið af sér um 14 milljarða
króna. Verði ekkert af henni
kemur það illa niður á þeim ver-
stöðvum sem unnið hafa loðnu svo
og þjóðinni allri. Eins er hætta á
að markaðir tapist vegna þess
að fái ekki japanskir neytendur
loðnuna sína er hætta á að þeir
snúi sér að öðrum fiski og gleymi
loðnunni. Nú verður heldur ekki
leyfð loðnuveiði í Barentshafi svo
Japansmarkaður sveltur alveg.
Ekki hefur gengið þrautalaust að
finna loðnu á Íslandsmiðum þetta
árið. Fyrsti leiðangur var farinn
13.–25. janúar og þá mældust 64
þúsund tonn. Loðnan var þá mest
NA af landinu.
Breytt göngumynstur loðnu sagt
vera vegna aukins sjávarhita
Menn sögðu að loðnan hefði breytt
göngumynstri sínu vegna aukins
sjávarhita, væri nú nær Grænlandi
en áður. Nokkuð merkilegt að halda
slíku fram vegna þess að mælingar
sýna að sjór hefur kólnað við
Grímsey frá 2003.
Næst var farið snemma í febrú-
ar og mældust þá 250 þúsund tonn
aðallega út af Norðurlandi. Það gaf
bjartsýni og því var farið í þriðja
leiðangurinn 16.–20. febrúar en þá
mældist enn minna, sem sýnir hve
mælingarnar eru ónákvæmar og
hafið stórt.
Þeir á Hafró viðhafa þá reglu
að minnst 400 þúsund tonn þurfa
að mælast svo hægt sé að gefa út
kvóta. Þessi síðasta leit eða mæling
fór öll fram fyrir Norðurlandi og inni
á fjörðum og flóum fyrir norðan.
Nokkuð merkilegt því þá er loðn-
an venjulega komin suður fyrir land.
Enda, þremur dögum seinna, verða
skip vör við loðnutorfur við Papey.
Eftir að Hafró hafði metið stærð
þeirrar göngu þótti hún ekki nógu
stór til að gefa út veiðiheimildir.
Eitt af undrum náttúrunnar
Í tilefni þessa er rétt að fara yfir lífs-
feril hennar eins og hann hefur verið
í stórum dráttum:
Hún hrygnir í febrúar-mars með
allri suðurströndinni, vestur um
til Breiðafjarðar og stundum enn
norðar. Loðnan sem gengur á hrygn-
ingarstöðvarnar er að koma þangað í
fyrsta sinn, hefur aðeins komið þar
áður sem hrogn í búk móður sinnar.
Eitt af undrum náttúrunnar.
Límir hrognin við botninn
Þótt loðnan sé smá eru um 25–40
þúsund hrogn í hverri hrygni, miðað
við 5–10 þús. í laxi t.d. Hún límir
hrognin við botninn og þau klekjast
á nokkrum vikum. Þau leita upp í
sjó og lifa þar á svifi í 1–2 mánuði
og berast á meðan með straumi rétt-
sælis í kringum landið.
Seiðin lifa á grunnsævi fyrstu
tvö sumrin. Þá ganga þau norður,
burtu af landgrunninu, í ætisleit. Þá
hverfa þau af matarborði þorsksins
og það er ekki fyrr en þau koma
til baka rúmu ári síðar og ganga til
hrygningar að hann sér þau aftur,
og þá aðallega við austur- og suður-
ströndina.
Oft aðalfæða þorsksins
Loðnan er oft aðalfæða þorsksins en
hann lifir aðallega á 1 og 2 ára loðnu
og stjórnar því hve margar komast
í ætisgönguna norður í Dumbshaf.
Það er því þorskurinn, sem
með áti sínu á ungloðnu skammtar
hversu mikið gengur til hrygningar
og þar með veiðistofninn. Sé
mikið af þorski gengur hann
nærri ungloðnunni og komandi
loðnuvertíð verður léleg.
Það er því mikið til í þeirri
fullyrðingu að með því að veiða
meira af þorski getum við líka veitt
meiri loðnu.
Ekki er hægt að geyma loðnu
milli vertíða frekar en laxinn
Margir halda að flottrollsveiðar
eigi þátt í hve lítið er af loðnu nú
sem stendur. En slíkar veiðar hafa
auðvitað engin áhrif á hve mikið
finnst af loðnu áður en veiðar hefjast.
Loðnan drepst öll eftir hrygningu svo
ekki er unnt að geyma hana milli
vertíða, frekar en laxinn í ánum, sem
drepst 95% eftir hrygningu.
Jón Kristjánsson.
fiskifræðingur
Jón Kristjánsson.
Myndin sýnir leiðarlínur loðnuleitarskipa 16.–20. febrúar. Þrem dögum seinna fundust svo nokkrar góðar torfur
við Papey, en ekkert hafði verið leitað sunnan Gerpis, þótt menn hefðu átt að vita að á þessum tíma væri loðnan
að öllu jöfnu á leið suður fyrir land.
„Hlýnun sjávar“ er oft notuð til
skýringar á ýmsum fyrirbrigðun
eins og göngum og útbreiðslu
fiska. Sérfræðingur Hafró í
loðnumálum hefur sagt að loðnan
hefði breytt göngumynstri og
hrygningartíma vegna hækkandi
sjávarhita og oft er breytt
útbreiðsla og gönguhegðun fiska
skýrð með hlýnun sjávar.
Allir virðast ganga út frá því að
hafið í kringum Ísland sé að hlýna.
En er það svo? Til þess að svara
þessu verður að lesa af hitamælum
og skoða tiltæk gögn. Lítum á
nokkrar hitatölur, sem finna má á
vefsíðu Hafró (sjora.hafro.is).
Hvar er hún þessi hlýnun sjávar?
Hér má sjá mælikvarða sem oftast er
notaður um ástand sjávar við Ísland,
en það er hitastig að vori á 50 m dýpi
á Siglufjarðarsniði, rauða línan. Ekki
er að sjá að hiti nú sé eitthvað meiri
en hann var á góðu loðnuárunum
1980-90. Þarna sést greinilega
skellurinn sem varð 1965, sem olli
því að síldin hvarf frá Norðurlandi.
Hér er hitamæling frá dufli við Grímsey en hún sýnir smávægilega hlýnun
frá 1987-2003 en þá fer að kólna og kólnunin heldur áfram til 2020.
Vestmannaeyjaduflið sýnir hitalækkun sl. 10 ár.
Hér eru svo hitamælingar 1990-
2018 úr Stofnmælingaleiðöngrum
Hafró sem farnir eru í mars ár
hvert. Þar má sjá að hiti við botn
er að hækka fram að 2003 en
síðan hefur hann farið
lækkandi eða staðið í stað.
Sammerkt þessum gögnum er
að vandséð er að staðhæfingar
um að hafið við Ísland sé að hlýna
fái staðist.
Efsta línan, sú rauða, eru S mið,
gula línan NV mið, græna línan
SA mið og sú blá er N mið.
Gönguleiðir loðnunnar fyrir 2001. Hrygningarsvæðið er rautt, blátt er
uppeldissvæði ungloðnu og grænt er uppeldissvæði fullorðnu loðnunnar.
Grænar örvar sýna gönguleiðir loðnu í fæðuleit, bláar sýna hana á
heimleiðinni. Bláu örvarnar breytast í rauðar þegar hún gengur austur með
norðurströndinni Heimild / Hjálmar Vilhjálmsson, 2002
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300