Bændablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 11
Nýlega tóku 70 nemendur í
fram haldsskólum víðs vegar um
landið sveinspróf í vélvirkjun.
Sérstaka athygli vekur að nú var
haldið sveinspróf í Fjölbrauta
skóla Suðurlands á Selfossi í
fyrsta skipti í 20 ár í náminu.
Vélvirkjun er í heildina 6 anna
nám sem byrjar með grunndeild
málmiðna sem er fjórar annir og
svo eru tvær annir í vélvirkjun.
Eftir skóla þá tekur við 18
mánaða vinna í faginu og þá fyrst
er nemandinn klár í sveinspróf.
Sveins prófinu er skipt upp í
nokkra hluta. Fyrst er skriflegt
próf úr öllu námsefni annanna
á undan. Því næst er prófað í
smíða stykkjum, bilanagreiningu,
slitmælingu og suðu. „Það voru
12 nemendur sem tóku prófið
núna og stóðu sig allir með mikilli
prýði. Höfðu nemendur á orði að
aðstaðan okkar í skólanum væri
framúrskarandi enda erum við með
nýtt og glæsilegt verknámshús,
sem heitir Hamar,“ segir Olga
Lísa Garðarsdóttir, skólameistari
Fjölbrautaskóla Suðurlands. /MHH
Náttúrulegur
styrkur
Styrkjum úr Uppbyggingarstjóði Norðurlands eystra var úthlutað við athöfn í Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra:
Áttatíu og tvö verkefni hlutu 76 milljónir króna í styrki
Úthlutað hefur verið úr Upp
byggingar sjóði Norðurlands eystra
76 milljónum króna til menn ingar,
atvinnuþróunar og nýsköp unar
en athöfnin var í Skjól brekku í
Mývatnssveit.
Ávörp fluttu Þorsteinn Gunnars
son, sveitarstjóri Skútu staða hrepps,
Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri
Samtaka sveitar félaga á Norðurlandi
eystra, Eva Hrund Einarsdóttir,
formaður úthlut unarnefndar
Uppbyggingar sjóðs og Hilda Jana
Gísladóttir, formaður stjórnar SSNE.
Jóla svein arnir í Dimmuborgum sáu
um skemmti atriðin og SelHótel sá
um veitingarnar.
Sjóðurinn er samkeppnis sjóður
og veitir verkefnastyrki til menn
ingar verkefna, atvinnu þróunar
og nýsköpunar auk stofn og
rekstrar styrkja til menningar mála.
Samningurinn er hluti af samningi
milli SSNE og ríkisins um Sóknar
áætlun Norðurlands eystra 2020–
2024.
Uppbyggingarsjóði bárust sam
tals 158 umsóknir, þar af 68 til
atvinnu þróunar og nýsköpunar og
90 til menningar.
Uppbyggingarsjóður samþykkti
að veita 82 verkefnum styrkvilyrði
að upphæð 76 milljónum króna.
Sam tals var sótt um tæpar 335
milljónir króna.
/MÞÞ
Sjötíu tóku sveinspróf í vélvirkjun
Einbeittir nemendur í sveinsprófinu í vélvirkjun í verknámshúsinu Hamri en
prófið var tekið á einni helgi. Mynd / MHH
Brunavarnir Húnaþings vestra:
Nýr tankbíll í stað bíls sem
skemmdist í óveðrinu í vetur
Byggðarráð Húnaþings vestra
hefur samþykkt að nýta fjár
magn á fjárhagsáætlun fyrir árið
2020 sem ætlað var til endur
nýjunar á bifreið fyrir félags
þjónustu til kaupa á tankbíl fyrir
Brunavarnir Húnaþings vestra.
Alvarleg bilun varð á tankbíl
Brunavarna Húnaþings vestra í
óveðrinu í desember við hreinsun á
tengivirki Landsnets í Hrútatungu.
Við skoðun kom í ljós að viðgerð á
bílnum svarar ekki kostnaði.
Breytingin, þ.e. að kaupa tank
bíl í stað bifreiðar fyrir félags
þjónustuna, hefur ekki áhrif á
heilda r niðurstöðu fjárhagsáætlunar
2020. /MÞÞ
Hvammstangi. Mynd / HKr.