Bændablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 31
Borgartúni 5a | Sími 520 5600 | rikiseignir@rikiseignir.is | www.rikiseignir.is
Ríkiseignir auglýsa eftir umsóknum um leigu á ríkis
jörðunum Miðgarðar, Sveinsstaðir og Sveintún í Grímsey.
Um er að ræða ríkisjarðirnar, Miðgarðar, landnúmer 151851,
Sveins staðir, landnúmer 151857 og Sveintún, landnúmer 151896,
í Grímsey, ásamt öllum réttindum og gæðum jarðanna, s.s. nýtni
hlunninda í fuglabjörgum. Séreignarland jarðanna er samliggjandi
og talið vera samtals um 20 hektarar að stærð. Enginn húsakostur
fylgir jörðunum. Áhugasömum er bent á að fara á staðinn og skoða
jarðirnar og nánasta umhverfi á eigin vegum.
Umsóknarfrestur er til
og með 7. apríl. n.k. og
nálgast má umsóknar
eyðublað og frekari upp
lýsingar um jarðirnar og
fyrirkomulag úthlutunar
á heimasíðu Ríkiseigna,
www.rikiseignir.is.
Leiga á ríkisjörðunum
Miðgarðar, Sveinsstaðir
og Sveintún í Grímsey
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Gerðu verðsamanburð og fáðu tilboð
hjá söluráðgjafa í síma 540 1100
eða á netfanginu lifland@lifland.is
Líf í tún og akra í vor
harðlega þeirri aðför að Fram
leiðnisjóði sem felst í fyrirhugaðri
sameiningu Framleiðni sjóðs og AVS
(rannsókna sjóðs í sjávarútvegi).
Framleiðnisjóður er nýsköpun
arog framfarasjóður greinarinnar.
Hann hefur styrkt hagnýt rann
sóknaog þróunarverkefni af ýmsum
toga ásamt stuðningi við fræðslumál
og verkefni á vegum bænda er lúta
að nýsköpun og þróun á bújörðum.
Fjármunir til Framleiðnisjóðs koma
að nær öllu leyti í gegnum ramma
samning BÍ og ríkis og gildir sá
samningur til ársins 2026. Á þeim
tíma getur ríkið hvorki tekið einhliða
ákvörðun um að leggja sjóðinn niður
né heldur ákveðið að finna þessum
þróunarfjármunum nýjan farveg.
Með sameiningu Framleiðnisjóðs og
AVS er hætta á að þar hverfi frá land
búnaðinum stuðningur sjóðsins við
fjölmörg verkefni sem eru liður í að
styrkja byggð vítt um landið en falla
ekki beint undir matvælaframleiðslu
í þröngri skilgreiningu. Hugmyndir
að þessari breytingu, þ.e. sameining
Framleiðnisjóðs og AVS, hafa ekki
verið ræddar við BÍ.
Byggðamál: Raforka –
Samgöngur - Fjarskipti
Markmiðið er að hinar dreifðu
byggðir landsins búi við
sambærilegar aðstæður og þéttbýli
hvað varðar afhendingaröryggi
og verð á raforku, samgöngur og
fjarskipti. Byggðarstefna BÍ 2016
(BÞ) er ítrekuð auk Samfélag
sveitanna 2018 (BÞ).
Stjórn BÍ er falið að fylgja
eftir aðgerðalýsingu stjórnvalda
um uppbyggingu innviða frá
febrúar 2020 og krefjast þess að
flutningskostnaður rafmagns verði
jafnaður strax.
Hagtölur og mælaborð
landbúnaðarins
Búnaðarþing 2020 samþykkir að
leitað verði leiða til að byggja upp
mælaborð landbúnaðarins. Aukið
aðgengi upplýsinga um stöðu og
þróun landbúnaðar og matvælafram
leiðslu á Íslandi sem eru birtar
reglulega og sýna breytingar innan
árs eða tímabils. Bændasamtökin
safni saman upplýsingum hjá
Hagstofunni, Byggðastofnun,
atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytinu, Ráð gjafar miðstöð land
búnaðarins, Landbúnaðarháskóla
Íslands og fleiri aðilum. Þessar
upplýsingar verði svo birtar á vef
Bændasamtakanna sem mælaborð.
Breytingar á samþykktum BÍ
og þingsköpum búnaðarþings
Stjórn BÍ leggur til að aftur verði
snúið til þess fyrirkomulags að
Búnaðarþing verði haldið árlega.
Eftir fjögurra ára reynslu af því
að halda þingið annað hvort ár og
ársfund á móti er það mat stjórn
arinnar að það sé sterkara fyrir
samtökin að færa fyrirkomulagið
til fyrra horfs og því verði árs
fundarfyrirkomulagið lagt af. Sú
tillaga var því lögð fyrir þingið að
fella burt ákvæði um ársfund og
tilvísanir til hans úr samþykktum
BÍ.
Stjórnin leggur jafnframt til að
skylda um að félagsmenn í BÍ séu
jafnframt í a.m.k. einu aðildarfé
lagi samtakanna falli brott. Þetta
ákvæði hefur reynst þungt í vöfum.
Félagsmenn hafa upplifað það sem
hamlandi og sumir vilja ekki sætta
sig við að það að þeir vilji ganga í
eitt félag hafi í för með sér að þeir
séu þvingaðir til aðildar að öðru.
Stjórnin telur eðlilegt að félags
mönnum sé algerlega í sjálfsvald
sett hvaða félögum þeir kjósa að
vera aðilar að og þessi skylda verði
því afnumin.
Stefnumótun fyrir lífrænan
landbúnað
Búnaðarþing 2020 samþykkir
að unnin verði drög að opinberri
stefnumótun fyrir lífrænan land
búnað á Íslandi. Markmiðið er
að leggja grunn að stefnu fyrir
lífrænan landbúnað́ og leggja mat
á möguleika hans til útbreiðslu hér
á landi og skilgreina markmið þar
um. Slíkt starf gæti skapað grund
völl fyrir opinberri aðgerðaáætlun
fyrir lífrænan landbúnað með sér
stöku fjárframlagi hins opinbera.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
innar er kveðið á um að auka beri
lífrænan landbúnað hér á landi og
ýmis markmið þar um hafa heyrst,
s.s. í tengslum við Græna hagkerfið.
Áhugi neytenda á lífrænt vottuðum
afurðum kemur fram í vaxandi inn
flutningi þar sem innlend framleiðsla
hefur ekki staðið undir eftirspurn.
Í lífrænum landbúnaði hefur ríkt
stöðnun hér á landi undanfarin ár
og stöndum við langt að baki þeim
þjóðum sem við viljum bera okkur
saman við, s.s. í Danmörku þar sem
skýr opinber aðgerðaáætlun hefur
verið forsenda vaxtar í þessari
atvinnugrein.
Mörg fleiri lönd hafa sett sér slíka
stefnu sem stuðlar m.a. að nýsköpun
í landbúnaði og styrkir grundvöll
fyrir búsetu í dreifðum byggðum.
Jarðamál
Það er markmið að tryggja að gott
landbúnaðarland nýtist fyrst og
fremst til landbúnaðar. Koma á í
veg fyrir að eignarhald jarða verði
á höndum fárra aðila. Mikilvægt
er að viðhalda og þróa byggð í
landinu og skapa stjórnvöldum
betri yfirsýn og möguleika að stýra
þróun eignarhalds og nýtingu fast
eigna í samræmi við landkosti og
með hagsmuni samfélagsins og
komandi kynslóða að leiðarljósi.
Leiðir: Stjórn BÍ vinni að umsögn
um um frumvarp til laga um
breytingu á ýmsum lögum er varðar
eignarráð og nýtingu fasteigna. Að
stjórn BÍ vinni að umsögn vegna
reglugerðar um vernd landbúnað
arlands og komi að endurskoðun
á landsskipulagsstefnu.Að tryggja
afkomu landbúnaðarins enn frekar.
Áfallasjóður
Búnaðarþing 2020 skorar á ríkis
valdið að ljúka vinnu við útfær
slu á Hamfara og tryggingasjóði.
Stjórn BÍ er falið að vinna málinu
framgang.
Félagsgjöld BÍ
Félagsgjöld BÍ 2020 verði
innheimt samkvæmt eftirfarandi
þrepaskiptingu veltu í landbúnaði
2019:
Velta m.kr. Félagsgjald, kr.
0-5 18.000
5-10 52.000
10-15 62.000
15-20 72.000
20-25 82.000
25-30 92.000
30-35 112.000
35-40 132.000
40-50 152.000
50-65 172.000
65-85 192.000
85< 212.000
Aaðild að BÍ er samkvæmt
töflunni hér að ofan. Baðild er kr.
18.000. Caðild skv. töflunni hér
að ofan (velta 05 m.kr. ). Daðild
kr. 18.000.
Til viðbótar verði greiddar kr.
2.000 í Velferðarsjóð með hverju
félagsgjaldi. /TB
Guðrún Gauksdóttir og Lára Björk
Ævarsdóttir á Búnaðarþingi 2020.