Bændablaðið - 23.04.2020, Page 1
Magnús Óskarsson, fyrrverandi
kennari og tilraunastjóri við
Landbúnaðarháskóla Íslands,
hefur arfleitt skólann að öllum
eignum sínum sem áætlað er að
nemi um 200 milljónum króna.
Magnús lést 28. desember síðast-
liðinn, 93 ára að aldri.
Ragnheiður I. Þórarins dóttir,
rektor Landbúnaðarháskóla Íslands,
segir að gjöfin sé mjög rausnarleg,
komi að góðum notum fyrir skólann
og að allir starfsmenn skólans séu
mjög þakklátir fyrir hana.
Arfinum fylgir það skilyrði
að hann verði nýttur við skólann
að starfsemi sem tengdist starfi
Magnúsar.
„Kvaðir arfsins fela í sér að fjár-
munina skuli nýta til að byggja upp
aðstöðu til rannsókna og kennslu á
sviði jarðræktarfræða, umhverfis-
fræða og landnýtingar. Arfinn má
einnig nýta til að efla íþróttaað-
stöðu við skólann eða verknáms-
aðstöðu á Hvanneyri.“
Magnús varð búfræðikandídat
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
1953 og réðist svo til skólans
sem kennari og tilraunastjóri
eftir framhaldsnám og störf í
Danmörku. Hlutverk Magnúsar
var, auk kennslu, að koma upp
grasagarði og stunda tilraunir
og er hann einn af frumherjum
í íslenskri tilrauna- og rækt-
unarsögu á sviði landbúnaðar.
Magnús starfaði við skólann og
bjó á Hvanneyri nánast allan sinn
starfsferil. /VH
8. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 23. apríl ▯ Blað nr. 561 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Erlendir starfsmenn hafa borið uppi störfin í sláturhúsum í sláturtíð en óvíst er að þeir komi vegna COVID-19:
Áhyggjur af mönnun sláturhúsanna í haust
Sláturleyfishafar hafa þegar hafið
undirbúning vegna sláturtíðar á
komandi hausti. Stór hluti starfs-
manna á hverri sláturtíð kemur
frá útlöndum, í stórum stíl frá
Póllandi og víðar. Sama fólkið
kemur gjarnan ár eftir ár í sömu
sláturhúsin, vant fólk sem þekkir
vel til verka og heldur afköstum
uppi.
Alla jafna er gengið frá ráðn-
ingum starfsfólks í maí og því
telja sláturleyfishafar brýnt að
innan tíðar verði ljóst hvort höml-
ur verði í gildi varðandi komur
fólks til landsins þannig að unnt
verði að leita annarra leiða til að
manna sláturhúsin. Hópur slátrara
frá Nýja-Sjálandi hefur komið til
starfa í tveimur sláturhúsum en
hefur nú dregið umsóknir til baka,
sem sýnir að fólk hefur vaðið fyrir
neðan sig þegar að ferðalögum milli
landa kemur.
SS reiknar með að
fólkið fái að koma
Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands (SS), segir
það láti nærri að um 80% af mönnun
sláturtíðar sé erlent verkafólk sem
einkum komi frá Póllandi en slátr-
arar frá Nýja-Sjálandi.
„Að svo komnu máli reiknum
við með að í haust verði ekki hindr-
anir í að fá þetta fólk til landsins,“
segir hann.
„En ef í það stefnir verður aug-
ljóslega mikill vandi á höndum
hjá öllum sláturleyfishöfum og þá
einnig hjá bændum. Eflaust yrði þá
sótt um undanþágu eða rýmkun á
skilyrðum svo hæg verði að slátra
með vönum mannskap.“
KS segir að staðan sé langt
frá því að geta talist eðlileg
„Við erum að sjálfsögðu farin að
huga að sláturtíð og værum það
hvort heldur sem er þó allt væri eðli-
legt,“ segir Ágúst Andrésson, fram-
kvæmdastjóri hjá Kjötiðnaðarsviði
KS. Staðan nú sé hins vegar langt
frá því að geta talist eðlileg, „og
við höfum vissulega áhyggjur af
mönnun sláturhúsanna í haust“.
Ef til vill meira framboð
af innlendu vinnuafli
Um 75–80% af starfsfólki í sláturtíð
hjá KS hefur verið erlent vinnuafl.
Ágúst segir að KKS og SS hafi
fengið sérhæft starfsfólk frá Nýja-
Sjálandi til starfa og voru alls 21
slátrari tilbúnir að mæta í sláturtíð
á komandi hausti. Nánast allir hafi
þeir dregið boð sitt til baka. „Það
segir okkur að þetta snýst líka um
viðhorf fólks til ferðalaga, ekki
einungis hvaða reglur muni gilda
á Íslandi í haust hvað þetta varðar,“
segir Ágúst. Ráðning á sérhæfðu
starfsfólki utan ESB þarf jafnan
góðan aðdraganda vegna allra þeirra
tilskildu leyfa sem sem krafist er og
segir Ágúst að til þess geti komið að
beðið verði um undanþágur verði
annað komið í lag fyrir haustið. „Ef
fer sem horfir verður líka kannski
eitthvað meira framboð af vinnuafli
hér innanlands, sem vonandi gefur
kost á sér í þessi störf.“
Gætum þurft að draga úr
afköstum og minnka nýtingu
Ágúst segir að sláturhús hafi árum
saman verið mönnuð yfir sláturtíð
með erlendu vinnuafli og að stórum
hluta komi sama fólkið ár eftir ár og
kunni því vel til verka. Þannig náist
fljótt upp afköst og unnt að veita
bændum skjóta og góða þjónustu á
þeim tveimur mánuðum sem slátur-
tíð jafnan stendur yfir. „Ef þetta næst
ekki gætum við þurft að grípa til þess
að draga úr afköstum og nýtingu, þ.e.
slátra minna hvern dag og sláturtíðin
næði þá yfir lengra tímabil. Eins
gæti þá komið til þess að við þyrftum
að minnka nýtingu á aukaafurðum
og leggja megin áhersluna á slátrun
og nýtingu aðalafurða með sem ein-
földustum hætti,“ segir Ágúst og
bætir við að það væru mörg skref
aftur á bak fyrir afurðastöðvar eins
og KKS á Sauðárkróki og SKVH á
Hvammstanga.
„Allt eru þetta verkefni eins og
hvað annað sem þarf að leysa og ég
trúi því að allir munu leggjast á eitt
í því,“ segir hann. /MÞÞ
– Sjá stöðuna hjá fleiri
sláturhúsum á bls. 2
Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur-
félags Suðurlands.
Ágúst Andrésson, framkvæmdastjóri
hjá Kjötiðnaðarsviði KS.
Guðrún Lárusdóttir í Keldudal í Skagafirði er nú með 10 fullorðnar geitur á bænum auk þess að vera með um 80
fjár og 65 mjólkurkýr í fjósi. Þá hefur þar einnig verið rekin ferðaþjónusta. Hún segir að geitur séu mjög fjörug
og skemmtileg dýr, en ekki sé jafn einfalt að stýra því hvenær afkvæmin koma í heiminn eins og gert er varðandi
sauðfé. Hafrarnir séu gjarnan að gera sér dælt við huðnurnar síðsumars og þá komi kiðlingarnir í heiminn í janúar
eða febrúar. Segir Guðrún að þótt það sé kannski ekki heppilegasti árstíminn í sveitum, þá séu geiturnar mjög
sjálfbjarga við burð og þurfi enga aðstoð. Þá sýna þær líka þá tillitssemi að bera bara yfir daginn, en ekki á kvöldin
og nóttunni eins og gjarnt er með sauðfé. Mynd / GL
Stórgjöf til Landbúnaðarháskóla Íslands:
Fékk 200 milljónir í arf
frá fyrrum kennara
– á m.a. að nýta til rannsókna á jarðræktarsviði
Magnús Óskarsson.
Bændur óttast óvenju-
mikið kal á norðan-
verðu Austurlandi
8 24–25
Nýtt kynbótamat
í hrossarækt „ÞÚ VEIST hvaðan það kemur“
30–31