Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 39
Frístunda- og atvinnufatnaður
frá REGATTA
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Bænda 7. maí
LESENDABÁS
Matarkistan
Ísland
Það má í raun teljast ótrúlegt að
búa í landi sem hefur jafn mikla
möguleika á hreinni matarfram-
leiðslu og Íslandi en búa jafn-
framt við gífurlegan innflutning
af matvælum sem við gætum með
auðveldu móti ræktað sjálf. Eins
mætti það teljast með ólíkindum
að þegar grænn flokkur situr í
ríkisstjórn að ekki sé lögð meiri
áhersla á að styðja við lífræna
íslenska framleiðslu á matvörum
en raun ber vitni. Sér í lagi þegar
forsætisráðherra hefur sérstakan
áhuga á hamfarahlýnun og gæti
sparað mörg kolefnisspor með
því að stuðla að því að flytja ekki
vörur yfir hafið sem við getum
auðveldlega framleitt sjálf.
Nú erum við Íslendingar svo
heppnir að búa í landi vatns og
vinda þar sem fallvötn eru ekki af
skornum skammti. Við framleið-
um því nánast einvörðungu græna
raforku sem hefði verið rakið að
nýta til að framleiðslu á hreinu, líf-
rænu og umhverfisvottuðu græn-
meti. Vandinn er þó sá að hingað
til hefur raforkuverð til bænda verið
allt of hátt og hefur það komið
niður á framleiðslugetu þeirra sem
og nýliðun í stéttinni. Þetta okur er
mikill ljóður á ráði Landsvirkjunar
því hún er í þjóðareigu og skilar
töluverðum hagnaði ár hvert og því
er engin ástæða til að vinna gagn-
gert á móti bændum á þennan hátt.
Það vekur einnig furðu að
Landsvirkjun hafi tekið upp á því að
selja upprunavottorð fyrir raforku
sem hefur breytt hreinu orkunni
okkar í óhreina orku í orði en ekki
á borði. Þetta eyðileggur vissulega
möguleika allra þeirra sem vilja
kaupa þessa hreinu orku og aug-
lýsa vöruna sína sem framleidda
á náttúruvænan hátt. Á tímum
umhverfisumræðu og áhuga fyrir
náttúrunni er stórundarlegt að stjórn
Landsvirkjunar skuli láta sér detta
þetta til hugar og skemma þannig
fyrir orðspori íslenskrar orku og
íslenskrar framleiðslu.
Ofan á allt saman hefur sú
umframorka sem var inni á kerfi
Landsvirkjunar nú verið seld að
umtalsverðu leyti til gagnavera
sem hefur gert það að verkum að
forstjóri Landsnets hefur boðað
orkuskort. Það hefði verið nær að
þessi orka færi til bænda sem vildu
hefja búskap eða ylrækt í stað þess
að hún væri seld til fyrirtækja sem
grafa eftir rafmynt og skapa sára-
litla atvinnu í landinu. Hafa menn á
borð við Gylfa Magnússon, fyrrum
viðskiptaráðherra, vakið athygli á
að hér sé um sóun á raforku að
ræða og sé slík sóun eitt helsta
vandamál sem jarðarbúar standa
frammi fyrir.
Það er í mínum huga engin
spurning að ráðamenn eigi að styðja
við bakið á bændum í landinu og
hvetja þá heldur til framleiðslu
en letja. Við sjáum það best nú
á tímum heimsfaraldurs hversu
mikilvægt það er að innlend
matvælaframleiðsla ráði við að
brauðfæða landsmenn þegar í
harðbakkann slær. Svo ekki sé
talað um þá gífurlegu og einstöku
möguleika sem eru fyrir íslenska
bændur á alþjóðamarkaði með sína
vöru. Mig langar því að lokum að
hvetja stjórnvöld til að hætta að setja
bændum stólinn fyrir dyrnar og gera
heldur allt sem í þeirra valdi stendur
til að ljúka upp öllum dyrum sem
auðvelda þeim framleiðslu á þessari
frábæru íslensku vöru.
Guðmundur Franklín Jónsson
Guðmundur Franklín Jónsson.
Kynning á drögum að
stjórnar- og verndaráætlun
fyrir Friðland að Fjallabaki
Drög að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Friðland
að Fjallabaki hafa verið lögð fram til kynningar á vef
Umhverfisstofnunar.
Markmiðið með gerð Stjórnunar- og verndaráætluninni er að leggja
fram stefnu um verndun friðlandsins og hvernig viðhalda skuli
verndargildi svæðisins í sem bestri sátt.
Hægt er að skila inn ábendingum og athugasemdum með því að
senda tölvupóst til Umhverfisstofnunar á netfangið ust@ust.is, eða
senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Hákon Ásgeirsson í gegnum tölvupóst
(hakon.asgeirsson@ust.is) eða í síma 591-2000 / 591-2134.
Handmjaltartæki
34.900kr m/vsk
Fyrir ær og hryssur
Sjálfvirkt sog
Til að safna broddi
Til að létta á bólgu
Til að mjólka í lömb
Eigum auka flöskur og varahluti
Pantaðu á netverslun
okkar
www.kb.is