Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 55 Síðustu tveir pistlar hér í forvarnarskrifunum hafa verið um COVID-19, faraldur sem er að lama ýmsa starfsemi á landinu. Okkur Íslendingum virðist farnast betur í baráttunni við þessa veiru sem stundum hefur verið nefnd „veira djöfulsins“ í samanburði við margar þjóðir erlendis sem ekkert ráða við faraldurinn. Í síðustu grein fjallaði ég um að líklega væri hreinleiki íslenskrar framleiðslu á kjöti og matvælum að hjálpa okkur og að góð útkoma úr faraldrinum megi þakka hrein­ leika við matvælaframleiðslu hér á landi. Baráttan að halda frá landinu innfluttu kjöti og öðrum landbún­ aðarafurðum virðist vera að skila þjóðinni góðum árangri. Vorið er að koma þrátt fyrir COVID-19 með sínum hefðbundnu vorverkum Baráttutæknin sem Íslendingar hafa notað við faraldurinn vekur athygli víða og á eflaust eftir að koma okkur til góðs í framtíðinni enda landið hreint og strjálbýlt sem býður upp á fegurð og góðan hollan innlendan mat sem ekki er fullur af lyfjum. Lífið gengur sinn vanagang, far­ fuglarnir flestir komnir, sauðburður að byrja og fólk flykkist á hjólbarða­ verkstæðin til að setja sumardekkin undir bílana. Sem starfsmaður á hjólbarðaverkstæði til margra ára þá hefur í gegnum árin gengið mikið á þegar sumardekkjatörnin er í gangi, langar raðir bíla og mikill „pirring­ ur“ í ótrúlega mörgum. Get séð mikla breytingu á hegðun og umburðarlyndi í ár Allir vilja hlýða fyrirmælum „þrí­ eykisins“ og berja niður far aldurinn og þess vegna eru stærstu hjól­ barðaverkstæðin í klemmu í þessari törn. Fjöldi þeirra sem mega vera inni á hverju verkstæði má ekki fara yfir 20 með starfsmönnum og viðskiptavinum hverju sinni og öllum er beint eftir megni í að virða tveggja metra regluna. Ég vinn á einu af stærstu hjól­ barðaverkstæðum landsins þar sem venjulega vinna yfir 20 manns, en nú eru starfsmenn inni á verkstæðinu ekki nema 13 svo að 7 viðskipta­ vinir geti verið inni í einu, en mér var úthýst, gerður að starfsmanni á plani, móttökustjóra, dyraverði og útkastara. Skrítið starf, en það sem af er hefur þetta gengið frábærlega og þrátt fyrir að hafa verið á dekkja­ verkstæði margar dekkjatarnir hef ég aldrei orðið vitni að svona miklu umburðarlyndi. Allir gera sitt besta, virða tveggja metra regluna, ef of margir eru í afgreiðslunni og ég bið einn að fara og bíða úti bjóðast yfirleitt fleiri en einn til þess að fara út. Þessi vinna sem ég hafði dæmt fyrirfram sem erfiða, „rex og pex vinnu“ er alveg í lagi. Af um 400 viðskiptavinum í síðustu viku var bara einn við­ skiptavinur sem var ósáttur og vil ég þakka lærdómi okkar af þessari „COVID­baráttu“ fyrir breytta hegðun og meira umburðarlyndi um að lífið er ekki alltaf sjálfgefið. Talandi um sumardekk og bílana okkar er ýmislegt sem þarf að skoða Dekkin undir bílunum okkar er hlutur sem við viljum að sé í lagi og þoli það álag sem sett er á þau þegar á reynir. Nánast allir dekkja­ framleiðendur ábyrgjast að þekking þeirra séu góð og dekkin örugg í allt að sex ár, en eftir þann tíma (og jafnvel fyrr) byrja oft að sjást sprungur í dekkjunum sem segir að þau eru að þorna og gefa minna grip. Til að sjá hvað hjólbarðinn er gamall þá er á næstum öllum dekkjum sporöskjulaga merking á dekkjum með fjórum tölustöfum inni í rammanum. Sem dæmi þá er ramminn í líkingu við þetta (3917) sem segir að þetta dekk var fram­ leitt í 39. viku 2017 (sjá mynd). Fyrir ári síðan kom maður á gömlum fjölskyldubíl inn á verk­ stæði með fjögur dekk sem honum hafði verið gefið, ég sá strax að dekkin væru mjög gömul og þar sem að ég sá tvo barnastóla aftur í bílnum var ég ekki alveg til í að setja dekkin undir bílinn. Eigandinn var frekar ósáttur við afskiptasemi mína og taldi nóg munstur fyrir sumar­ keyrslu vera eftir, en þegar ég press­ aði dekkið saman með höndunum og hann sá allar sprungurnar og í beran vírinn (sjá mynd) skildi hann hvað ég átti við og keypti ný dekk undir fjölskyldubílinn. Margir eru að bjóða gömlu dekk­ in sín til sölu á ýmsum sölusíðum á netinu, oft dekk með góðu mynstri, en bæði fyrir seljanda og kaupanda er hér ábending: Ekki kaupa né selja dekk sem eru með (0113), eða lægri tölu en 13 í endastaf. Þessi dekk eru hvorki söluvara, né vara sem maður vill kaupa. Það að selja eða að kaupa svona dekk er sambærilegt og að í mjólkurkælinum væri til sölu mjólkurferna með síðasta neyslu­ dag í gær. Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 SKAUT KANNA ÞEI EIN-DREGIN VIÐ- KVÆMNI INNI- LEIKUR FLOKKAR USUNDRUNG-AR P P L A U S N A R MAFTUR-GANGA Ó R I STYBBA S V Æ L A BTRÚAR-HÁTÍÐ L Ó SAMHYGÐBELJAKI S A M Ú Ð L F U R TITRA HALA- RÓFA R I Ð A MÁLMUR HVÍLST LÉREFT Á Ð ÞÁTT- TAKANDI TVEIR EINS A Ð I L I ÞRÆTU BEITA R KÍKTUÐPAKKNINGA ÚRÁNDÝRSTREITA T G Ú L L A S EGNA KASTATÍMABIL S E N D A KVK NAFNPOTT-RÉTTUR A R Í A SESSVIÐBÓT S Æ T I S FJALLS- BRÚN VAKT E G GEIN-SÖNGUR M A N G A ÆTÍÐSLIKKERÍ S Í TVENND SANNAR- LEGA T V I N NGÆLU-NAFN A N SKYLDI GLEÐIDEILUR U N A Ð S BORKRAPI A L ÆSIR ÁBRÁÐ-RÆÐI L UPP- VÖXTUR FUGL Æ S K A AUÐN MATAR- ÍLÁT SPYR A S K U R NÓRA D O T T HÖGGVA M E I T L A KEYRIUMDÆMI E KSYFJA A R T A KRYDD M Y N T A VÆTA A G INABBI G S R I I P P P FAG A I TVEIR EINS Ð I N I VÆNKAST B B Á VÍXL A M T I N S A HALD LEIKUR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 127 RÍKI Í SV-ASÍU KVAÐ TILDRA UPP STJÓRN JAFN- FRAMT GRAS- BOLLI SKRÍN ÓFRJÁLS DÓMS LYF BOÐI RJÁLA DVALDIST FUGL MYRKVAST AFÞILJA EFNI SKRÍKJA NÁTTHAGI EIND VÖRU- MERKI FRIÐUR MYLSNA HEST- BURÐUR SNÆÐI BURT MALAR- LEIR ÖFUGT PLANTA LEIFAR KVK NAFN ÓGÆFA NÁTTA BRAKA DRYKKURALLTAF SPJALD FARÐI AÐFERÐ ÞRÍFUR VANA- LEGUR BLANKUR VAND- RÆÐI FÍFLAST ÓHLJÓÐ GERA TORVELD TOLLA STORKA ÓVISSA ÁVERKI EKKI ÓSKÖP HLEMMUR SKYNJA BUKKUR MILDUN SJÓÐA GEISA FIPA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 128 Flestir bölva COVID-19, en það er líka ljós í myrkrinu Talan 3917 stendur fyrir að þetta dekk var framleitt í 39. viku 2017. Gamalt vörubíladekk með 100 psi. loftþrýsting. Að standa við hliðina á svona dekki sem hvellspringur jafngildir að fá á sig 10 tonna högg. Munstrið virðist innan marka, en þegar betur er að gáð er þetta dekk ekki nothæft.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.