Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 31
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA80ÁRA
ist það helst af því að erfitt var að
flytja ferskt grænmeti á marga staði
á landinu. Markaðshlutdeild SFG
jókst jafnt og þétt og á sjötta ára-
tug síðustu aldar er félagið orðið
allsráðandi á grænmetismarkaði
hér á landi.
Félagsmenn Sölufélags garð-
yrkjumanna í dag eru 51 en inn-
leggjendur milli 60 og 70 og fram-
boð grænmetis og krydds mjög fjöl-
breytt. Auk þess sem félagið rekur
dótturfyrirtækin Í einum grænum,
sem framleiðir tilbúna rétti úr
íslensku grænmeti og Matartíminn
sen er veitingasvið SFG.
Tilraunir með að
frysta grænmeti
Sölufélagið gerði tilraunir með að
frysta grænmeti, aðallega gúrkur,
hvít- og blómkál, á árunum 1949 til
1952. Frystingin tókst vel en erfið-
legar gekk að koma vörunni til neyt-
enda þar sem fæstar verslanir voru
með frysti. Einnig var erfitt að fá neyt-
endapakkningar á þeim tíma vegna
innflutningshafta og varð félagið að
notast við úreltar fiskumbúðir sem
fengust hjá hraðfrystihúsum. Önnur
fyrirstaða var að hraðfrystihúsin neit-
uðu að taka við grænmeti til frystingar
lægi fyrir að frysta ætti síld eða annan
fisk.
Um miðja síðustu öld reyndi
Sölufélagið einnig fyrir sér með fram-
leiðslu á tómatsúpu í dósum. Sagan
segir að sala á þeirri vöru hafi mis-
heppnast gersamlega og að framleið-
endur tómatanna hafi að lokum fengið
greitt fyrir með nokkurra ára birgðum
af tómatsúpu í dós fyrir fjölskylduna
Kynntist mörgu góðu fólki
Bárður M. Níelsson, innkaupa stjóri hjá
Bönunum ehf., þekkir vel til starfsemi
SFG. Faðir hans, Níels Marteinsson,
var sölustjóri grænmetis hjá félaginu.
„Ég man hvað mér þótti gaman að
fara með pabba í vinnuna sem krakki
og fá að vera með í atinu og fylgjast
með. Seinna starfaði ég hjá félaginu á
sumrin og í skólafríum og að lokum á
grænmetislagernum.“
Á þeim árum var SFG til húsa að
Reykjanesbraut 6 sem síðar kallaðist
Skógarhlíð 6 í húsnæði sem félagið
byggði á árunum 1954 til 1956 og við
það breyttist öll starfsaðstaða félags-
ins. Auk lagers rak félagið verslun í
húsinu með garðyrkjuvörur í mörg
ár. Í dag er Sölufélag garðyrkju-
manna með aðsetur að Brúarvogi 2
í Reykjavík.
Ég fékk fyrst greitt fyrir vinnu
hjá Sölufélaginu 1967 og ég starf-
aði þar til 1992. Á þeim tíma sem ég
starfaði hjá SFG voru allir tómatar
og gúrkur flokkaðar og þeim pakk-
að í Skógarhlíðinni en í dag gera
bændurnir það sjálfir. Það starfaði
því töluvert af sumarfólki á staðnum
yfir uppskerutímann og ég kynntist
mörgu góðu og skemmtilegu fólki,“
segir Bárður
Öskjuhlíðarmálið
Í febrúar 1990 sameinast Sölufélag
garðyrkjumanna og Bananasalan og
er fyrirtækið rekið undir heiti beggja
fyrirtækjanna. Í tilkynningu sem fyr-
irtækin sendu frá sér vegna samein-
ingarinnar segir að mikil hagræðing
muni fylgja sameiningunni.
Á níunda áratug síðustu aldar
átti Fengur hf., sem áður var
Bananasalan, um tíma ríkjandi hlut
í Sölufélagi garðyrkjumanna og tók
félagið þá að mati Samkeppnisráðs
þátt í víðtæku ólögmætu verðsam-
ráði, markaðsskiptingu og fram-
leiðslustýringu. Í frétt frá þeim tíma
segir að Samkeppnisráð telji hafið
yfir allan vafa að á árinu 1995 hafi
SFG og tengd fyrirtæki, Ágæti og
Mata, tekið upp víðtækt ólögmætt
verðsamráð og markaðsskiptingu
varðandi viðskipti með grænmeti,
kartöflur og ávexti. Samkvæmt
áliti Samkeppnisráðs mynduðu
fyrirtækin með sé einokunarhring
með það að markmiði að eyða
samkeppni og hækka verð á þessum
vörum. Fyrirtækin voru dæmd til að
greiða tugi milljóna til ríkissjóðs í
sekt vegna málsins.
Málið, sem var litið alvarleg-
um augum á sínum tíma, kallað-
ist allmennt Öskjuhlíðarmálið þar
sem sagt var að aðilar þess hafi
iðulega hist í Öskjuhlíðinni til að
ráða ráðum sínum.
Ferskleiki, hollusta og bragð
Gunnlaugur Karlsson, sem starfað
hefur sem framkvæmdastjóri SFG
frá 2002, segir að í framhaldi af
samráðsmálinu hafi eignarhald
félagsins breyst, samvinnuformið
var lagt niður og stofnað ehf. sem
tók til starfa 2003 eftir að bændur
komu inn og endurfjármögnuðu fyr-
irtækið. Við breytinguna rofnuðu
öll tengsl við fyrri eigendur.
„Árið 2002 hefst tollfrjáls innflutn-
ingur á helstu grænmetis tegundunum,
gúrkum, tómötum og papriku og sam-
tímis var gerður aðlögunarsamning-
ur milli bænda og ríkisins við ríkið.
Samkomulagið fólst í því að fella
niður alla tolla á innflutt grænmeti
en í staðinn fengu garðyrkjubændur
eingreiðslusamning sem tengdur var
ákveðinni upphæð. Samningurinn var
að evrópskri fyrirmynd og framsækin
og ákveðin vítamínsprauta fyrir grein-
ina. Bændum var gert kleift að sækja
um styrki, til dæmis til að auka lýsingu
eða til úreldingar.
Á móti kom að bændur voru
að keppa við frjálsan innflutn-
ing á ódýru grænmeti og blasti
við frá upphafi að þeir væru ekki
samkeppnishæfir um verð. Okkur
varð fljótlega ljóst að það sem við
höfum fram að færa voru meiri gæði
og að við yrðum að koma því til
skila á einhvern hátt og aðgreina
okkar vöru frá þeirri innfluttu.
Sölufélagið lagði því áherslu á
að upplýsa neytandann um vöruna
með því að hanna merkingar og að
leggja áherslu á að hún sé innlend.
Félagið leggur einnig ríka áherslu
á gæði vörunnar með því að velja
tegundir sem eru bragðgóðar og
beita lífrænum vörnum þannig að
heilbrigði uppskerunnar sé sem
mest.
Enda kjörorð okkar síðustu 20
ár; ferskleiki, hollusta og bragð.“
Aukið framboð tegunda
Þrátt fyrir niðurfellingu tolla á inn-
flutt grænmeti hefur starfsemi SFG
aukist jafnt og þétt frá árinu 2002.
Fjöldi vörutegunda hefur aukist úr
20 í 50 frá því um síðustu aldamót
enda garðyrkjubændur bæði vilj-
ugir og duglegir að koma til móts
við væntingar og þarfir neytenda
með auknu og spennandi vöru-
framboði.
Fjölbreytni tegunda er sífellt að
aukast og í dag eru í boði ellefu
tegundir af tómötum, margs konar
salat og ferskar kryddjurtir sem fáir
hefðu trúað að yrðu í boði fyrir tutt-
ugu árum. Auk þess sem nú eru í
boði gult og fjólublátt blómkál sem
neytendur kunna að meta.
Ræktun á sveppum hefur aukist
mikið og fjöldi tegunda í boði bæði
heilir og sneyddir.
Í einum greinum
Árið 2004 stofnaði SFG dóttur-
félagið Í einum grænum með það
að leiðarljósi að fullnýta uppskeru
grænmetisbænda og koma í veg
fyrir matarsóun. Markmið Í einum
grænum er að koma nýjum vörum á
framfæri og bjóða neytendum upp á
fullunna voru úr íslensku grænmeti.
Mikil vöruþróun hefur átt sér
stað innan fyrirtækisins gegnum
árin og býður það upp á fjölbreytta
og breiða vörulínu. Í einum græn-
um selur jafnframt og dreifir vörum
frá Örnu ehf. í Bolungarvík og
hefur samstarfið verið farsælt og
gott frá 2014.
Matartíminn
Matartíminn, veitingasvið SFG,
var stofnað árið 2017. Fyrirtækið
sérhæfir sig í skólamat fyrir leik- og
grunnskóla og leggur metnað sinn í
að auka hlut íslenskra afurða, ferskt
íslenskt grænmeti, kjöt og fisk, á
borðum skólabarna.
Orkuverð hækkar
Tækniframfarir í gróðurhúsaræktun
er sífellt að aukast og með auk-
inni lýsingu hefur verið hægt að
lengja ræktunartímabilið og auka
uppskeru og framleiðni.
Gunnlaugur segir að hátt orku-
verð sé það sem standi íslenskri
garðyrkju helst fyrir þrifum í dag
og komi í veg fyrir að hægt sé að
auka hana og efla.
„Forsendur þess að greinin nái
að þroskast og dafna eru stöðugt
efnahagsástand og að orkuverð
lækki. Samþykkt orkupakka eitt
fól í sér aðskilnað orkuframleiðslu
og orkudreifingar og orkuverð til
garðyrkju bænda hækkaði um 40%
á nánast einni nóttu. Hækkunin
á flutningi á orku var algerlega
á skjön við þróunina sem var í
gangi og kippti víða grundvellin-
um undan því að nýta rafmagn og
lýsingu til að auka innlenda fram-
leiðslu.
Eins og ástandið er í heimin-
um í dag ætti það að vera deginum
ljósara að öflug innlend framleiðsla
á mat er öllum þjóðum nauðsynleg
og skiptir þá engu hvort við erum
að tala um kjöt eða grænmeti.“
Grunngildin halda
Að sögn Gunnlaugs er ótrúlegt hvað
grunngildi Sölufélags garðyrkju-
manna hafa haldið í þau 80 ár sem
félagið hefur verið starfandi.
„Verkefnin í dag eru nánast
þau sömu og þau voru við stofnun
félagsins, þrátt fyrir að umsvifin hafi
aukist. Gildin eru enn að stuðla að
auknum vörugæðum og vöruvöndun
og að koma vörunni á markað á sem
bestan hátt. Stefnan er því sú sama,
sem er að halda áfram að byggja
greinina upp og tryggja framtíð
hennar.
Í tilefni af þessum tímamótum
langar okkur að fara í vinnu við að
kortleggja garðyrkjuna í landinu og
taka myndir af býlum og fólki. Ég
er að tala um eins konar úttekt á
garðyrkju á Íslandi árið 2020 sem
eins konar söguspegil fyrir fram-
tíðina.“
Garðsfjölskyldan og kaupakonan Gulla taka upp kartöflur um 1950.
Útplöntun í káli í Hvammi í Hrunamannahreppi árið 1991.
Kartöflur teknar upp í Birtingarholti 1991.
Auglýsing í Alþýðublaðiðinu 1942.
Kaupakonurnar í Hvammi búnta gulrætur.