Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 31

Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 31 SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA80ÁRA ist það helst af því að erfitt var að flytja ferskt grænmeti á marga staði á landinu. Markaðshlutdeild SFG jókst jafnt og þétt og á sjötta ára- tug síðustu aldar er félagið orðið allsráðandi á grænmetismarkaði hér á landi. Félagsmenn Sölufélags garð- yrkjumanna í dag eru 51 en inn- leggjendur milli 60 og 70 og fram- boð grænmetis og krydds mjög fjöl- breytt. Auk þess sem félagið rekur dótturfyrirtækin Í einum grænum, sem framleiðir tilbúna rétti úr íslensku grænmeti og Matartíminn sen er veitingasvið SFG. Tilraunir með að frysta grænmeti Sölufélagið gerði tilraunir með að frysta grænmeti, aðallega gúrkur, hvít- og blómkál, á árunum 1949 til 1952. Frystingin tókst vel en erfið- legar gekk að koma vörunni til neyt- enda þar sem fæstar verslanir voru með frysti. Einnig var erfitt að fá neyt- endapakkningar á þeim tíma vegna innflutningshafta og varð félagið að notast við úreltar fiskumbúðir sem fengust hjá hraðfrystihúsum. Önnur fyrirstaða var að hraðfrystihúsin neit- uðu að taka við grænmeti til frystingar lægi fyrir að frysta ætti síld eða annan fisk. Um miðja síðustu öld reyndi Sölufélagið einnig fyrir sér með fram- leiðslu á tómatsúpu í dósum. Sagan segir að sala á þeirri vöru hafi mis- heppnast gersamlega og að framleið- endur tómatanna hafi að lokum fengið greitt fyrir með nokkurra ára birgðum af tómatsúpu í dós fyrir fjölskylduna Kynntist mörgu góðu fólki Bárður M. Níelsson, innkaupa stjóri hjá Bönunum ehf., þekkir vel til starfsemi SFG. Faðir hans, Níels Marteinsson, var sölustjóri grænmetis hjá félaginu. „Ég man hvað mér þótti gaman að fara með pabba í vinnuna sem krakki og fá að vera með í atinu og fylgjast með. Seinna starfaði ég hjá félaginu á sumrin og í skólafríum og að lokum á grænmetislagernum.“ Á þeim árum var SFG til húsa að Reykjanesbraut 6 sem síðar kallaðist Skógarhlíð 6 í húsnæði sem félagið byggði á árunum 1954 til 1956 og við það breyttist öll starfsaðstaða félags- ins. Auk lagers rak félagið verslun í húsinu með garðyrkjuvörur í mörg ár. Í dag er Sölufélag garðyrkju- manna með aðsetur að Brúarvogi 2 í Reykjavík. Ég fékk fyrst greitt fyrir vinnu hjá Sölufélaginu 1967 og ég starf- aði þar til 1992. Á þeim tíma sem ég starfaði hjá SFG voru allir tómatar og gúrkur flokkaðar og þeim pakk- að í Skógarhlíðinni en í dag gera bændurnir það sjálfir. Það starfaði því töluvert af sumarfólki á staðnum yfir uppskerutímann og ég kynntist mörgu góðu og skemmtilegu fólki,“ segir Bárður Öskjuhlíðarmálið Í febrúar 1990 sameinast Sölufélag garðyrkjumanna og Bananasalan og er fyrirtækið rekið undir heiti beggja fyrirtækjanna. Í tilkynningu sem fyr- irtækin sendu frá sér vegna samein- ingarinnar segir að mikil hagræðing muni fylgja sameiningunni. Á níunda áratug síðustu aldar átti Fengur hf., sem áður var Bananasalan, um tíma ríkjandi hlut í Sölufélagi garðyrkjumanna og tók félagið þá að mati Samkeppnisráðs þátt í víðtæku ólögmætu verðsam- ráði, markaðsskiptingu og fram- leiðslustýringu. Í frétt frá þeim tíma segir að Samkeppnisráð telji hafið yfir allan vafa að á árinu 1995 hafi SFG og tengd fyrirtæki, Ágæti og Mata, tekið upp víðtækt ólögmætt verðsamráð og markaðsskiptingu varðandi viðskipti með grænmeti, kartöflur og ávexti. Samkvæmt áliti Samkeppnisráðs mynduðu fyrirtækin með sé einokunarhring með það að markmiði að eyða samkeppni og hækka verð á þessum vörum. Fyrirtækin voru dæmd til að greiða tugi milljóna til ríkissjóðs í sekt vegna málsins. Málið, sem var litið alvarleg- um augum á sínum tíma, kallað- ist allmennt Öskjuhlíðarmálið þar sem sagt var að aðilar þess hafi iðulega hist í Öskjuhlíðinni til að ráða ráðum sínum. Ferskleiki, hollusta og bragð Gunnlaugur Karlsson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri SFG frá 2002, segir að í framhaldi af samráðsmálinu hafi eignarhald félagsins breyst, samvinnuformið var lagt niður og stofnað ehf. sem tók til starfa 2003 eftir að bændur komu inn og endurfjármögnuðu fyr- irtækið. Við breytinguna rofnuðu öll tengsl við fyrri eigendur. „Árið 2002 hefst tollfrjáls innflutn- ingur á helstu grænmetis tegundunum, gúrkum, tómötum og papriku og sam- tímis var gerður aðlögunarsamning- ur milli bænda og ríkisins við ríkið. Samkomulagið fólst í því að fella niður alla tolla á innflutt grænmeti en í staðinn fengu garðyrkjubændur eingreiðslusamning sem tengdur var ákveðinni upphæð. Samningurinn var að evrópskri fyrirmynd og framsækin og ákveðin vítamínsprauta fyrir grein- ina. Bændum var gert kleift að sækja um styrki, til dæmis til að auka lýsingu eða til úreldingar. Á móti kom að bændur voru að keppa við frjálsan innflutn- ing á ódýru grænmeti og blasti við frá upphafi að þeir væru ekki samkeppnishæfir um verð. Okkur varð fljótlega ljóst að það sem við höfum fram að færa voru meiri gæði og að við yrðum að koma því til skila á einhvern hátt og aðgreina okkar vöru frá þeirri innfluttu. Sölufélagið lagði því áherslu á að upplýsa neytandann um vöruna með því að hanna merkingar og að leggja áherslu á að hún sé innlend. Félagið leggur einnig ríka áherslu á gæði vörunnar með því að velja tegundir sem eru bragðgóðar og beita lífrænum vörnum þannig að heilbrigði uppskerunnar sé sem mest. Enda kjörorð okkar síðustu 20 ár; ferskleiki, hollusta og bragð.“ Aukið framboð tegunda Þrátt fyrir niðurfellingu tolla á inn- flutt grænmeti hefur starfsemi SFG aukist jafnt og þétt frá árinu 2002. Fjöldi vörutegunda hefur aukist úr 20 í 50 frá því um síðustu aldamót enda garðyrkjubændur bæði vilj- ugir og duglegir að koma til móts við væntingar og þarfir neytenda með auknu og spennandi vöru- framboði. Fjölbreytni tegunda er sífellt að aukast og í dag eru í boði ellefu tegundir af tómötum, margs konar salat og ferskar kryddjurtir sem fáir hefðu trúað að yrðu í boði fyrir tutt- ugu árum. Auk þess sem nú eru í boði gult og fjólublátt blómkál sem neytendur kunna að meta. Ræktun á sveppum hefur aukist mikið og fjöldi tegunda í boði bæði heilir og sneyddir. Í einum greinum Árið 2004 stofnaði SFG dóttur- félagið Í einum grænum með það að leiðarljósi að fullnýta uppskeru grænmetisbænda og koma í veg fyrir matarsóun. Markmið Í einum grænum er að koma nýjum vörum á framfæri og bjóða neytendum upp á fullunna voru úr íslensku grænmeti. Mikil vöruþróun hefur átt sér stað innan fyrirtækisins gegnum árin og býður það upp á fjölbreytta og breiða vörulínu. Í einum græn- um selur jafnframt og dreifir vörum frá Örnu ehf. í Bolungarvík og hefur samstarfið verið farsælt og gott frá 2014. Matartíminn Matartíminn, veitingasvið SFG, var stofnað árið 2017. Fyrirtækið sérhæfir sig í skólamat fyrir leik- og grunnskóla og leggur metnað sinn í að auka hlut íslenskra afurða, ferskt íslenskt grænmeti, kjöt og fisk, á borðum skólabarna. Orkuverð hækkar Tækniframfarir í gróðurhúsaræktun er sífellt að aukast og með auk- inni lýsingu hefur verið hægt að lengja ræktunartímabilið og auka uppskeru og framleiðni. Gunnlaugur segir að hátt orku- verð sé það sem standi íslenskri garðyrkju helst fyrir þrifum í dag og komi í veg fyrir að hægt sé að auka hana og efla. „Forsendur þess að greinin nái að þroskast og dafna eru stöðugt efnahagsástand og að orkuverð lækki. Samþykkt orkupakka eitt fól í sér aðskilnað orkuframleiðslu og orkudreifingar og orkuverð til garðyrkju bænda hækkaði um 40% á nánast einni nóttu. Hækkunin á flutningi á orku var algerlega á skjön við þróunina sem var í gangi og kippti víða grundvellin- um undan því að nýta rafmagn og lýsingu til að auka innlenda fram- leiðslu. Eins og ástandið er í heimin- um í dag ætti það að vera deginum ljósara að öflug innlend framleiðsla á mat er öllum þjóðum nauðsynleg og skiptir þá engu hvort við erum að tala um kjöt eða grænmeti.“ Grunngildin halda Að sögn Gunnlaugs er ótrúlegt hvað grunngildi Sölufélags garðyrkju- manna hafa haldið í þau 80 ár sem félagið hefur verið starfandi. „Verkefnin í dag eru nánast þau sömu og þau voru við stofnun félagsins, þrátt fyrir að umsvifin hafi aukist. Gildin eru enn að stuðla að auknum vörugæðum og vöruvöndun og að koma vörunni á markað á sem bestan hátt. Stefnan er því sú sama, sem er að halda áfram að byggja greinina upp og tryggja framtíð hennar. Í tilefni af þessum tímamótum langar okkur að fara í vinnu við að kortleggja garðyrkjuna í landinu og taka myndir af býlum og fólki. Ég er að tala um eins konar úttekt á garðyrkju á Íslandi árið 2020 sem eins konar söguspegil fyrir fram- tíðina.“ Garðsfjölskyldan og kaupakonan Gulla taka upp kartöflur um 1950. Útplöntun í káli í Hvammi í Hrunamannahreppi árið 1991. Kartöflur teknar upp í Birtingarholti 1991. Auglýsing í Alþýðublaðiðinu 1942. Kaupakonurnar í Hvammi búnta gulrætur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.