Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 25
hans í því að skila jöfnum gæðum
til afkvæma sinna. Hvað afkvæmi
hrossa varðar mun þetta fyrsta kastið
bara ná til dætra þar sem svo lágt
hlutfall hesta mætir til dóms. Þá
munu allar dætur sem mæta til dóms
hafa jákvæð áhrif á kynbótamat for-
eldranna en neikvæðu áhrifin (af því
að dóttirin er ósýnd) mun fyrst hafa
áhrif þegar dóttirin er orðin sex vetra
eða eldri. Því mun það ekki hafa
neikvæð áhrif þótt ekki sé búið að
sýna dæturnar 4 eða 5 vetra. Þetta
mun leiða til raunhæfari röðunar á
afkvæmahrossum í framtíðinni þar
sem upplýsingar frá afkvæmum hafa
nú í raun meiri áhrif á kynbótamatið.
Kynbótamat fyrir skeið
Uppgötvun á skeiðgeninu kallar á
breytingar á kynbótamati fyrir skeið.
Arfhreinleiki fyrir skeiðgeninu (AA
arfgerðin) er forsenda fyrir skeið-
getu af einhverju tagi. Hross sem
eru arfblendin fyrir skeiðgeninu (CA
hross) eða arfhrein CC hross geta því
ekki skeiðað og þess vegna er talið
rétt að meðhöndla einkunnina 5.0
fyrir skeið hjá þessum hrossum sem
vöntun á upplýsingum. Þá er kyn-
bótagildi þeirra fyrir skeið metið út
frá upplýsingum frá foreldrum/for-
feðrum, afkvæmum þeirra og upplýs-
ingum um aðra eiginleika sem hafa
tengsl við skeið. Þetta mun einungis
ná til hrossa sem eru arfgerðargreind
með CA eða CC arfgerð.
Kynbótamat á aðal-
einkunn án skeiðs
Eins og kynnt hefur verið þá munu
í vor verða reiknaðar tvær aðal-
einkunnir fyrir hvert hross sem hlýtur
fullnaðardóm á kynbótasýningum.
Auk aðaleinkunnar eins og hún er
reiknuð í dag verður reiknuð sérstak-
lega aðaleinkunn án skeiðs þar sem
vægi skeiðs er tekið úr útreikningi á
aðaleinkunn og dreift hlutfallslega
út á aðra eiginleika hæfileikanna.
Þetta verður gert fyrir öll hross,
hvort sem þau búa yfir fjórum eða
fimm gangtegundum. Þetta býður
upp á afar áhugaverðan samanburð á
milli hrossa. Í framhaldi af þessu var
ákveðið að meta einnig kynbótagildi
fyrir þessa nýju aðaleinkunn; þannig
verður birt kynbótamat fyrir bæði
hæfileika og aðaleinkunn án skeiðs.
Breytingarnar
Breytingar á vægisstuðlum eigin-
leika og viðbót nýrra eiginleika mun
hafa þau áhrif á niðurstöðu kynbóta-
mats að hliðrun verður niður á en
meðal breyting á öllum hrossum
er lækkun um 8 stig. Þetta gerðist
einnig árið 2004 þegar alþjóðlega
kynbótamatið var kynnt til sögunnar.
En það sem gerist einnig núna er að
dreifni (teygni) skalans eykst heldur,
þar sem mörg efstu hrossin hækka
og lægstu hrossin lækka. Þetta er
þó afar misjafnt á milli hrossa og
einnig hvaða áhrif þessar nýjungar
í kynbótamatinu hafa á hvert hross.
Breytingarnar eru t.d. háðar aldri en
vegna erfðaframfara eru elstu hrossin
að lækka mest og einnig þau sem
hafa lágt mætingarhlutfall til dóms;
eru ekki sýnd sjálf og fá hross í
frændgarðinum. Þá eru efstu hrossin
í kynbótamatinu að lækka minnst
og mörg þeirra hækka að sjálfsögðu
einnig. Í töflunni hérna fyrir neðan
eru teknar saman meðalbreytingar í
mismunandi hópum hrossa.
Kynbótamat byggt
á keppnisgögnum
Þá mun í haust verða birt kynbóta-
mat byggt á keppnisgögnum en það
hefur verið í undirbúningi lengi og
tímabært að láta verða af því á þessu
ári. Stefnan er að leggja mat á og
birta í WorldFeng kynbótamat fyrir
eiginleika sem lýsa frammistöðu í
fjórgangs- og fimmgangsgreinum og
einnig kynbótamat sem lýsir keppn-
ishæfni í tölti og skeiðgreinum. Við
þessar viðbótarupplýsingar fæst mat
á hærra hlutfall hesta og því mun þá
verða hægt að byggja kynbótamat á
mætingu til dóms á báðum kynjum
(sjá að ofan). Þessi viðbót mun auka
öryggi hins hefðbundna kynbótamats
vegna þess að þeir eiginleikar sem
lagt er mat á í kynbótadómum, og
eru grunnur hins hefðbundna kyn-
bótamats, hafa í flestum tilvikum háa
erfðafylgni við keppniseiginleikana.
Ennfremur nýtast þá upplýsingar um
mun fleiri hross sem aldrei koma til
kynbótadóms.
MJÓLKIN GEFUR STYRK
Öll sækjum við styrk í það sem byggir okkur upp og heldur
með okkur alla leið. Mjólk er góður kalkgjafi en kalk er
nauðsynlegt fyrir eðlilegan vöxt og viðhald beina og tanna.
Þú sérð hvernig mjólkin styrkir þig á mjolk.is
HAUKUR ÞRASTARSON
LANDSLIÐSMAÐUR Í HANDBOLTA
Stóðhestar með 4-15 dæmd afkvæmi (á lífi og staddir á Íslandi) og eru með 118 stig
eða hærra í kynbótamati á aðaleinkunn og/eða aðaleinkunn án skeiðs
Nafn Uppruni Aðaleinkunn Aðaleinkunn án skeiðs Dæmd afkvæmi
Ölnir Akranes 127 122 4
Konsert Hof 127 122 4
Knár Ytra-Vallholt 124 115 9
Dagur Hjarðartún 123 123 4
Skaginn Skipaskagi 122 116 8
Ársæll Hemla II 119 114 9
Sólbjartur Flekkudalur 118 115 8
Kórall Lækjarbotnar 118 114 5
Lord Vatnsleysa 117 118 8
Hreyfill Vorsabæ II 115 126 6
Vákur Vatnsendi 113 123 4
Spuni frá Vesturkoti stendur efstur í kynbótamati á aðaleinkunn með 130
stig af stóðhestum sem eiga 50 eða fleiri dæmd afkvæmi.