Bændablaðið - 23.04.2020, Page 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 55
Síðustu tveir pistlar hér í
forvarnarskrifunum hafa verið
um COVID-19, faraldur sem er
að lama ýmsa starfsemi á landinu.
Okkur Íslendingum virðist farnast
betur í baráttunni við þessa veiru
sem stundum hefur verið nefnd
„veira djöfulsins“ í samanburði
við margar þjóðir erlendis sem
ekkert ráða við faraldurinn.
Í síðustu grein fjallaði ég um að
líklega væri hreinleiki íslenskrar
framleiðslu á kjöti og matvælum
að hjálpa okkur og að góð útkoma
úr faraldrinum megi þakka hrein
leika við matvælaframleiðslu hér á
landi. Baráttan að halda frá landinu
innfluttu kjöti og öðrum landbún
aðarafurðum virðist vera að skila
þjóðinni góðum árangri.
Vorið er að koma þrátt
fyrir COVID-19 með sínum
hefðbundnu vorverkum
Baráttutæknin sem Íslendingar hafa
notað við faraldurinn vekur athygli
víða og á eflaust eftir að koma okkur
til góðs í framtíðinni enda landið
hreint og strjálbýlt sem býður upp
á fegurð og góðan hollan innlendan
mat sem ekki er fullur af lyfjum.
Lífið gengur sinn vanagang, far
fuglarnir flestir komnir, sauðburður
að byrja og fólk flykkist á hjólbarða
verkstæðin til að setja sumardekkin
undir bílana. Sem starfsmaður á
hjólbarðaverkstæði til margra ára þá
hefur í gegnum árin gengið mikið á
þegar sumardekkjatörnin er í gangi,
langar raðir bíla og mikill „pirring
ur“ í ótrúlega mörgum.
Get séð mikla breytingu á
hegðun og umburðarlyndi í ár
Allir vilja hlýða fyrirmælum „þrí
eykisins“ og berja niður far aldurinn
og þess vegna eru stærstu hjól
barðaverkstæðin í klemmu í þessari
törn. Fjöldi þeirra sem mega vera
inni á hverju verkstæði má ekki
fara yfir 20 með starfsmönnum
og viðskiptavinum hverju sinni og
öllum er beint eftir megni í að virða
tveggja metra regluna.
Ég vinn á einu af stærstu hjól
barðaverkstæðum landsins þar sem
venjulega vinna yfir 20 manns, en nú
eru starfsmenn inni á verkstæðinu
ekki nema 13 svo að 7 viðskipta
vinir geti verið inni í einu, en mér
var úthýst, gerður að starfsmanni á
plani, móttökustjóra, dyraverði og
útkastara. Skrítið starf, en það sem
af er hefur þetta gengið frábærlega
og þrátt fyrir að hafa verið á dekkja
verkstæði margar dekkjatarnir hef
ég aldrei orðið vitni að svona miklu
umburðarlyndi. Allir gera sitt besta,
virða tveggja metra regluna, ef of
margir eru í afgreiðslunni og ég
bið einn að fara og bíða úti bjóðast
yfirleitt fleiri en einn til þess að fara
út. Þessi vinna sem ég hafði dæmt
fyrirfram sem erfiða, „rex og pex
vinnu“ er alveg í lagi.
Af um 400 viðskiptavinum í
síðustu viku var bara einn við
skiptavinur sem var ósáttur og vil
ég þakka lærdómi okkar af þessari
„COVIDbaráttu“ fyrir breytta
hegðun og meira umburðarlyndi
um að lífið er ekki alltaf sjálfgefið.
Talandi um sumardekk
og bílana okkar er ýmislegt
sem þarf að skoða
Dekkin undir bílunum okkar er
hlutur sem við viljum að sé í lagi
og þoli það álag sem sett er á þau
þegar á reynir. Nánast allir dekkja
framleiðendur ábyrgjast að þekking
þeirra séu góð og dekkin örugg í
allt að sex ár, en eftir þann tíma
(og jafnvel fyrr) byrja oft að sjást
sprungur í dekkjunum sem segir
að þau eru að þorna og gefa minna
grip.
Til að sjá hvað hjólbarðinn
er gamall þá er á næstum öllum
dekkjum sporöskjulaga merking
á dekkjum með fjórum tölustöfum
inni í rammanum. Sem dæmi þá er
ramminn í líkingu við þetta (3917)
sem segir að þetta dekk var fram
leitt í 39. viku 2017 (sjá mynd).
Fyrir ári síðan kom maður á
gömlum fjölskyldubíl inn á verk
stæði með fjögur dekk sem honum
hafði verið gefið, ég sá strax að
dekkin væru mjög gömul og þar
sem að ég sá tvo barnastóla aftur í
bílnum var ég ekki alveg til í að setja
dekkin undir bílinn. Eigandinn var
frekar ósáttur við afskiptasemi mína
og taldi nóg munstur fyrir sumar
keyrslu vera eftir, en þegar ég press
aði dekkið saman með höndunum
og hann sá allar sprungurnar og í
beran vírinn (sjá mynd) skildi hann
hvað ég átti við og keypti ný dekk
undir fjölskyldubílinn.
Margir eru að bjóða gömlu dekk
in sín til sölu á ýmsum sölusíðum á
netinu, oft dekk með góðu mynstri,
en bæði fyrir seljanda og kaupanda
er hér ábending:
Ekki kaupa né selja dekk sem
eru með (0113), eða lægri tölu en
13 í endastaf. Þessi dekk eru hvorki
söluvara, né vara sem maður vill
kaupa. Það að selja eða að kaupa
svona dekk er sambærilegt og að
í mjólkurkælinum væri til sölu
mjólkurferna með síðasta neyslu
dag í gær.
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
SKAUT KANNA ÞEI EIN-DREGIN
VIÐ-
KVÆMNI
INNI-
LEIKUR FLOKKAR
USUNDRUNG-AR P P L A U S N A R
MAFTUR-GANGA Ó R I STYBBA S V Æ L A
BTRÚAR-HÁTÍÐ L Ó SAMHYGÐBELJAKI S A M Ú Ð
L F U R
TITRA
HALA-
RÓFA R I Ð A
MÁLMUR
HVÍLST
LÉREFT Á Ð
ÞÁTT-
TAKANDI
TVEIR EINS A Ð I L I ÞRÆTU BEITA R
KÍKTUÐPAKKNINGA
ÚRÁNDÝRSTREITA
T
G Ú L L A S EGNA KASTATÍMABIL S E N D A KVK NAFNPOTT-RÉTTUR
A R Í A SESSVIÐBÓT S Æ T I S
FJALLS-
BRÚN
VAKT E G GEIN-SÖNGUR
M A N G A ÆTÍÐSLIKKERÍ S Í
TVENND
SANNAR-
LEGA T V I N NGÆLU-NAFN
A N SKYLDI GLEÐIDEILUR U N A Ð S BORKRAPI A L ÆSIR ÁBRÁÐ-RÆÐI
L
UPP-
VÖXTUR
FUGL Æ S K A AUÐN
MATAR-
ÍLÁT
SPYR A S K U R NÓRA
D O T T HÖGGVA M E I T L A KEYRIUMDÆMI E KSYFJA
A R T A KRYDD M Y N T A VÆTA A G INABBI
G
S
R
I
I
P
P
P
FAG
A
I
TVEIR
EINS
Ð
I
N
I VÆNKAST
B
B
Á VÍXL
A
M
T
I
N
S
A
HALD
LEIKUR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
127
RÍKI Í
SV-ASÍU
KVAÐ
TILDRA
UPP STJÓRN
JAFN-
FRAMT
GRAS-
BOLLI
SKRÍN
ÓFRJÁLS
DÓMS
LYF
BOÐI
RJÁLA
DVALDIST
FUGL
MYRKVAST
AFÞILJA
EFNI
SKRÍKJA
NÁTTHAGI
EIND
VÖRU-
MERKI
FRIÐUR
MYLSNA
HEST-
BURÐUR
SNÆÐI
BURT
MALAR-
LEIR ÖFUGT PLANTA
LEIFAR
KVK NAFN
ÓGÆFA
NÁTTA
BRAKA
DRYKKURALLTAF
SPJALD FARÐI
AÐFERÐ
ÞRÍFUR
VANA-
LEGUR
BLANKUR
VAND-
RÆÐI
FÍFLAST
ÓHLJÓÐ
GERA TORVELD TOLLA
STORKA
ÓVISSA
ÁVERKI
EKKI
ÓSKÖP HLEMMUR
SKYNJA
BUKKUR
MILDUN
SJÓÐA
GEISA
FIPA
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
128
Flestir bölva COVID-19, en það er líka ljós í myrkrinu
Talan 3917 stendur fyrir að þetta
dekk var framleitt í 39. viku 2017.
Gamalt vörubíladekk með 100 psi.
loftþrýsting. Að standa við hliðina
á svona dekki sem hvellspringur
jafngildir að fá á sig 10 tonna högg.
Munstrið virðist innan marka, en
þegar betur er að gáð er þetta dekk
ekki nothæft.