Bændablaðið - 23.04.2020, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 20204
Heilbrigðisráðherra hefur með
breytingu á reglugerð veitt
Lyfjastofnun undanþáguheim-
ild með stoð í lögum um ávana-
og fíkniefni sem gerir innflutn-
ing, meðferð og vörslu fræja til
ræktunar iðnaðarhamps mögu-
lega.
Hjónin Pálmi Einarsson
og Oddný Anna Björnsdóttir,
bændur á Gautavík í Berufirði,
hófu ræktun á iðnaðarhampi
síðastliðið sumar með leyfi frá
Matvælastofnun og hafa unnið
sleitulaust að því að fá ræktunina
gerða löglega hér á landi eftir að
Lyfjastofnun sagði hana ólöglega.
Ræktun á iðnarhampi fer vaxandi
í heiminum og velta tengd honum
gríðarleg.
Lagaumgerðin skýrari
„Við fögnum því að sú vegferð
sem við hófum síðastliðið vor sem
hafði það markmið að vekja athygli
á notagildi hamps og möguleikum
hans til að stórauka sjálfbærni á
fjölmörgum sviðum hafi skilað ár
angri,“ segir Oddný. „Með því að
rækta sjálf hamp á okkar jörð og
greina frá því opinberlega, stuðl
uðum við að því að lagaumgjörð í
kringum iðnaðarhampinn er orðin
skýrari.
Þessi tímabundna ráðstöfun á að
tryggja að þeir sem hafa áhuga á að
rækta hamp í sumar eigi að geta flutt
inn fræ vandræðalaust, fylgi þeim
tilskilin vottorð. Þar sem reglu
gerðin tók gildi á elleftu stundu er
tíminn þó naumur því fræin þurfa að
komast ofan í jörð í maí, en á meðan
beðið er eftir fræjunum er mikilvægt
að byrja að undirbúa jarðveginn.“
Nýjar lausnir
„Við viljum nota tækifærið og þakka
þeim Svandísi, Þórdísi Kolbrúnu og
Kristjáni Þór og þeirra fólki fyrir að
láta þetta verða að veruleika og að
ætla að gera ráðstafanir til að stuðla
að ræktun iðnaðarhamps hér á landi.
Samskiptin við þau í þessu ferli hafa
verið bæði jákvæð og uppbyggileg.
„Um leið vonum við að lær
dómurinn af þessu máli og öðrum
sambærilegum verði sá að stofnanir
hætti að siga lögreglunni á frum
kvöðla sem eru að reyna að stuðla
að framþróun í samfélaginu og
benda á nýjar lausnir. Þær viðhafi
frekar góða stjórnsýsluhætti, fari
eftir meðalhófsreglunni og leysi
málin á faglegan og lausnamiðað
an hátt.“
Fullnýting á afurðunum
Oddný segir að tilgangur ræktunar
innar til þessa hafi verið að athuga
hvort hún væri möguleg og hvort
íslenskur hampur væri nothæfur til
iðnframleiðslu. „Við höfum ekki
skoðað markaðsmöguleika fyrir
hampinn enda markmiðið að full
nýta okkar framleiðslu sjálf.“ /VH
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur með breytingu
á reglugerð nr. 233/2001 veitt
Lyfjastofnun undanþáguheimild
með stoð í 2. gr. laga um ávana- og
fíkniefni sem gerir inn flutning,
meðferð og vörslu fræja til rækt-
unar iðnaðarhamps mögulega.
Heimildin er háð skilyrðum
og takmörkunum svo tryggt sé að
ekki verði fluttar inn eða ræktaðar
plöntur sem innihalda vímuefnið
THC í nýtanlegu magni, eða að
hámarki 0,2%.
Mikill áhugi fyrir ræktun
Vaxandi áhugi er fyrir ræktun iðnað
arhamps hér á landi til að nota í
ýmsum iðnaði, t.d. við framleiðslu
húsgagna og sem byggingarefni
en talið er að iðnaðarhampur geti
komið í staðinn fyrir ýmis efni sem
ógna umhverfinu, eins og t.d. plasts.
Iðnaðarhampur er ein tegund
kannabis en planta með því heiti
er ýmsum kunn sem vímugjafi.
Vímuvaldurinn í kannabis er virka
innihaldsefnið THC sem auk þess
að valda vímu er ávanabindandi.
Iðnaðarhampur, þ.e. þau yrki kanna
bisplöntunnar sem ræktuð eru til
iðnaðarframleiðslu, eru aftur á móti
frábrugðin hefðbundnum yrkjum
plöntunnar þar sem þau innihalda
lítið sem ekkert af THC.
Leyft gegn skilyrðum
í Svíþjóð og Danmörku
Sé litið til regluverks annarra þjóða
varðandi ræktun iðnaðarhamps þá
er ræktun á tilteknum yrkjum sem
innihalda minna en 0,2% af THC
heimil að uppfylltum tilteknum skil
yrðum í Svíþjóð og Danmörku. Svo
er aftur á móti ekki í Noregi en þar
eru þessi mál til skoðunar um þessar
mundir.
Fellur undir styrkjakerfi ESB
Innan Evrópusambandsins hefur
ræktun á iðnaðarhampi verið hluti
af styrkjakerfi ESB frá árinu 2000.
Reglugerðarbreyting aðeins
tímabundin ráðstöfun
Svandís Svavarsdóttir heil brigðis
ráðherra leggur áherslu á að reglu
gerðarbreytingin sé tímabundin
ráðstöfun:
„Ávana og fíkniefnalöggjöfin
hefur skýr markmið og tilgang sem
fellur augljóslega að málefnasvið
um heil brigðisráðuneytisins. Það
gerir sú ræktun sem hér um ræðir
hins vegar ekki, að því gefnu að
hún stangist ekki á við inntak og
markmið þessara sömu laga,“ segir
ráðherra. Hún segir því nauðsynlegt
að skipa starfshóp til að koma þess
um málum í farveg, ekki síst til að
skýra lagagrundvöllinn og ábyrgð
þeirra stofnana sem þurfa að koma
að framkvæmdinni þegar kemur
að leyfisveitingum og eftirliti með
ræktun iðnaðarhamps.
Þurfa að vinna saman
„Heilbrigðisráðuneytið og atvinnu
vega og nýsköpunar ráðuneytið
þurfa að vinna þetta saman ásamt
þeim stofnunum ráðuneytanna þar
sem nauðsynleg þekking er fyrir
hendi,“ segir Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra sem stefnir að
því að skipa slíkan starfshóp sem
fyrst.
Reglugerðin hefur verið send
Stjórnartíðindum og tekur gildi við
birtingu, eigi síðar en 21. apríl næst
komandi. /VH
FRÉTTIR
Látið ekki lamb úr
túni sleppa.
Í fyrra seldist
allt upp!
LEIKANDI LÉTTAR
FJÁRGRINDUR
Liprar og léttar fjárgrindur. Krækt saman án aukahluta, engir teinar eða skrúfur.
Breidd 180 cm, hæð 90 cm.
Verð kr. 7.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri, verð kr. 6.900 stk. auk vsk.
Fyrstu 200 grindurnar á kr. 5.900 stk. auk vsk.
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Pantanir og upplýsingar í símum 899 1776 og 669 1336. Meira fyrir aurinn
Vortilboð á fjárgrindum
Liprar og lét
tar fjárgrindu
r. Krækt sam
an án aukah
luta, engir te
inar eð skrú
fur.
Breidd 180 c
m, hæð 90 c
m.
Verð kr. 7.90
0 stk. auk vs
k.
Ef keyptar e
ru 10 grindu
r eða fleiri, v
erð kr. 6.900
stk. auk vsk
.
Fyrstu 200 g
rindurnar á
kr. 5.900 stk
. auk vsk.
Fyrstur kem
ur, fyrstur fæ
r!
Pantanir og
upplýsingar
í símum 899
1776 og 669
1336.
Meira fyrir au
rinn
Vortilboð á
fjárgrindum
Liprar og léttar fjárgrindur.
Krækt saman án aukahluta.
Breidd 180 cm. Hæð 90 cm.
Verð kr. 7.900 stk. auk vsk.
Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri
er verðið kr. 6.900 stk. auk vsk.
Pantanir og upplýsingar í símum
669 1336 og 899 1776.
Ræktun á iðnaðarhampi er orðin stór atvinnugrein í Kanada og víðar um heim.
Ræktun iðnaðarhamps verður heimiluð með skilyrðum
– Ráðherra breytir reglugerð sem heimilar Lyfjastofnun að veita undanþágur
Gríðarlega aukin eftirspurn á vörum úr iðnaðarhampi:
Búist við að veltan á heimsmarkaði
aukist um 578% fram til 2025
Virði iðnaðarhamps sem hráefnis
á heimsmarkaði á árinu 2019 var
áætlaður 4,6 milljarðar dollara.
Stöðugur vöxtur er í þessari
grein og á síðasta ári áætluðu
markaðssérfræðingar að veltan
á iðnaðarhampsmarkaði aukist
um 578% og verði komin í 26,6
milljarða dollara á árinu 2025.
Þótt hamptrefjar sé stærsti hluti
framleiðslunnar þá er vaxandi fram
leiðsla á iðnaðarhampi ekki síður
knúin af mikilli eftirspurn eftir
CBDhampolíu og hampfræi sem
fæðubótarefni.
Hampfræ í morgunverð
Samkvæmt frétt af vefsíðu Industrial
Hemp Market er í auknum mæli
farið að nota hampfræ í morgun
verðarkorn sem ætlað er til dag
legrar neyslu. Þá er einnig að stór
aukast notkun á bæði hampfræi og
hampolíu í margháttaða fæðu vegna
hás próteininnihalds. Er farið að
nota hampfræ m.a. í mjúkdrykki
(smoothies), jógúrt og kornstangir.
Neysla á slíkum vörum er t.d. orðin
mjög mikil í Þýskalandi og Hollandi.
Hampur nýttur í vefnað, bíla,
húsgögn og byggingar
Tvenns konar trefjar eru í hamp
jurtinni, langar (bast 250 mm)
og stuttar (hurds 0,5 mm) sem
nýtast í margvís
lega iðnaðarfram
leiðslu. Úr hampi er
m.a. spunnið band til
vefnaðar. Um 70–80%
af hamp stilkunum inni
halda stuttar trefjar sem
m.a. eru nýttar í byggingar iðnaði,
húsgagna iðnaði, bíla iðnaði og sem
undirlegg fyrir húsdýr. Hefur vax
andi umhverfisvitund vakið mikinn
áhuga á að leysa af notkun á plasti
með endurvinnanlegum hampi, m.a.
í innréttingum bifreiða.
Mörg stór hampfyrirtæki
Helstu söluaðilar á hampi í heim
inum eru Hemco í Kanada,
Ecofibre í Ástralíu, Hemp
Inc í Banda ríkjunum,
GenCanna í Banda
ríkjunum, HempFlax í
Hollandi, Konoplex Group
í Rússlandi, Hemp Oil
Canada, BAFA í Þýskalandi,
Hemp Poland, Dun Agro í
Hollandi, Colorado Hemp Works í
Bandaríkjunum, Canah International
í Rúmeníu, South Hemp Tecno á
Ítalíu, Plain Industrial Hemp
Processing í Kanada og MH Medical
Hemp í Þýskalandi. /HKr.
Yfirbyggingin á þessum Kestrel sportbíl var smíðuð úr hamptrefjaefni árið
2010.
Múrsteinar úr hamptrefjasteypu og
jógúrt með hampfræi.
Svandís Svavarsdóttir.
Markmiðið að fullnýta afurðirnar
Oddný Anna Björnsdóttir,