Bændablaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 17
„Ef marsmánuður er skoðaður
sýnist okkur að fiskeldið hafi
nokkurn veginn haldið sjó í þess
um hremm ingum. Útflutnings
verð mæti laxaafurða frá Íslandi
í mars nam um 2,8 milljörðum
króna sem er nálægt 25% aukn
ing frá sama mánuði í fyrra. Það
er auðvitað mjög ánægjulegt, en
ég held samt að hægt sé að full
yrða að ef áhrifa farsóttarinnar
hefði ekki gætt hefði aukningin
orðið ennþá meiri,“ segir Einar
K. Guðfinnsson, sem vinnur að
fiskeldismálum hjá Samtökum
fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS.
Með harðfylgi
„Það hefur útheimt mikið harð-
fylgi og útsjónarsemi að koma
fiskinum út á markaðina og yfir-
stíga þær hindranir sem mætt hafa
mönnum þar, en þó má segja að
þetta hafi í meginatriðum gengið
upp. Neikvæðu tíðindin eru hins
vegar þau að verðið á laxinum hefur
lækkað talsvert mikið á þessum eina
mánuði. Að vísu ber þess að geta
að markaðsverð á laxi var sögulega
séð mjög hátt mánuðina á undan.
Oftast hefur verðið haft tilhneigingu
til að lækka eftir jólin en það hélst
hátt lengur í ár en áður, sem sýnir
að þegar til lengri tíma er litið er
eftirspurn eftir laxaafurðum sterk og
góð og helst í hendur við þá fram-
leiðslu sem verið hefur. Það segir sig
hins vegar sjálft að lokun veitinga-
húsa og annarra matsölustaða hefur
mikil áhrif á söluna og sömuleiðis
er ljóst að kaupmáttur í helstu mark-
aðslöndunum hefur minnkað mikið
og algjörlega óljóst hvenær úr rætist.
Það eru því miklir óvissutímar fram
undan,“ segir Einar.
Áætlanir um eldi óbreyttar
Að sögn Einars hefur sá lax sem
áður fór til veitingahúsa verið seldur
inn á aðra markaði í Evrópu þar
sem hann er unninn í annars konar
afurðir. Fram kom í máli hans að
fiskeldisfyrirtækin hérlendis myndu
ekki breyta sínum áætlunum um
framleiðslumagn á árinu þrátt fyrir
þetta ástand. Þegar komið væri fram
á þennan árstíma væri jafnan minna
í eldiskvíunum en á öðrum tímum
árs og svo hefðu framleiðendur
þann kost að ala fiskinn lengur en
ella ef erfitt væri að koma honum
á markað á hefðbundnum tíma. En
þetta væru auðvitað ráðstafanir til
skemmri tíma.
Áætlað hafði verið að eldisfram-
leiðslan yrði 30–32 þúsund tonn á
þessu ári samanborið við um 25 þús-
und tonn í fyrra. Sú áætlun hefur
ekki verið endurskoðuð. Áætlað
verðmæti laxaafurða í ár var 25
milljarðar króna á móti 19 millj-
örðum á síðasta ári.
SMIÐJUVEGI 7 200 KÓPAVOGUR SÍMI 54 54 300 ISPAN.IS
ER KOMINN TÍMI
Á NÝTT GLER ?
VIÐ SÉRSMÍÐUM GLER
EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM
• EINANGRUNARGLER
• SÓLVARNARGLER
• HLJÓÐVARNARGLER
• ÖRYGGISGLER
• HAMRAÐ GLER
• HERT GLER
• LAKKAÐ GLER
• SPEGLAR
Fiskeldið hefur haldið sjó
Fiskeldiskvíar í Reyðarfirði. Mynd / EKG
Hafrannsóknastofnun leggur til
að heildaraflamark hrognkelsis
á fiskveiðiárinu 2019/2020 verði
4.646 tonn. Hafrannsóknastofnun
leggur jafnframt til að
upphafsaflamark fiskveiðiársins
2020/2021 verði 1.459 tonn. Aflinn
góður en fáir bátar að veiðum.
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
um endanlegt heildaraflamark fyrir
hrognkelsi fiskveiðiárið 2019/2020
byggir á stofnvísitölu úr stofn-
mælingu botnfiska í mars 2020.
Niðurstöður mælinga liggja nú
fyrir og reyndist vísitalan vera 7,2
sem er hækkun frá fyrra ári (6,2).
Stofnvísitala hrognkelsis hefur
sveiflast mikið milli ára sem endur-
speglar að hluta til óvissu í mæl-
ingunum. Vegna þessa vegur stofn-
vísitala sama árs 70% á móti 30%
vægi vísitölu fyrra árs við útreikning
ráðlagðs hámarksafla.
Vertíðin fer vel af stað
Samkvæmt því sem segir á vefsíðu
Landssambands smábátaeigenda
hefur grásleppuvertíðin farið vel af
stað. Veiði á hvern bát er helmingi
meiri en á sama tíma í fyrra og afli
hverrar veiðiferðar einnig nokkuð
betri.
Það veldur hins vegar miklum
vonbrigðum hversu fækkað hefur
bátum sem stunda veiðarnar, 38%
færri eru nú á veiðum en á sama tíma
í fyrra, aðeins 67 bátar búnir að leggja
en 103 í fyrra.
Margar ástæður liggja að baki
fækkuninni. Flestir segja allan
kostnað við veiðarnar hafa stórauk-
ist á undanförnum árum og hæpið
að verð sem nú er í boði skili hagn-
aði af veiðunum. Önnur skýring er
óvenjuslæmt veður, sem nánast hefur
staðið linnulaust frá því í lok nóv-
ember. Þriðja skýringin sem menn
nefna er COVID-19. Samskipti við
veiðarnar verða ekki umflúin og því
aukin hætta á smiti. /VH
Hafrannsóknastofnun:
Grásleppuaflamark
verði 4.646 tonn
Samkvæmt því sem segir á vefsíðu
Landssambands smábátaeigenda
hefur grásleppuvertíðin farið vel af
stað.