Bændablaðið - 23.04.2020, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Skráningar á folöldum og fleira tengt skýrsluhaldi
Þrátt fyrir að ástandið í þjóðfé-
laginu sé fordæmalaust eins og
við höfum heyrt ansi oft á síðustu
vikum kemur vorið með fuglasöng
og grænum grundum. Fyrstu
folöldin fara að fæðast og því rétti
tíminn til að rifja svolítið upp um
skýrsluhaldið í hrossarækt.
Í WorldFeng hefst nýtt skýrslu
haldsár 1. apríl ár hvert. Það þýðir að
frá og með þeim degi er ekki hægt
að skrá það sem gerðist árið á undan.
Þess vegna er ekki lengur hægt að
skrá í heimaréttinni folöld sem
fæddust á árinu 2019, það er held
ur ekki hægt að skrá fyljun hryssna
frá því ári. Hafi það gleymst verður
að senda grunnskráningarblöð og
stóðhestaskýrslur/fyljunarvottorð
á pappír til Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins (RML) til að fá það
skráð inn. Tekið er á móti skýrslu
haldspappírum á öllum starfsstöðv
um RML en þeir eru aðallega skráðir
á starfsstöðvunum á Akureyri og
á Selfossi og því æskilegt að þeir
sem senda pappíra með pósti sendi
á heimilisföngin:
RML, Óseyri 2, 603 Akureyri eða
RML, Austurvegi 1, 800 Selfoss.
Hvað er heimarétt
WorldFengs (WF)?
Heimaréttin hýsir öll þau hross sem
skráð eru á viðkomandi eiganda. Þar
má á rafrænan hátt skila inn upplýs
ingum um hrossin. Þarna er hægt
að hafa eigendaskipti, grunnskrá
folöld, skrá afdrif, geldingu, fyl o.fl.
Heimaréttin er verkfæri ræktanda til
að halda utan um sitt skýrsluhald. Á
heimasíðu RML er að finna leiðbein
ingar um notkun á heimarétt WF.
Eftirfarandi skilyrði þarf að upp-
fylla til að skrá folöld í gegnum
heimarétt WF:
• Ræktandi þarf að hafa aðgang
að WF, hægt er að fá frían
aðgang í gegnum hestamanna
félög og aðildarfélög Félags
hrossabænda.
• Ræktandi þarf að vera skráð
ur þátttakandi í skýrsluhaldi
WF og ef viðkomandi er það
hefur hann svokölluð föst
númer. Föstu númerin eru þær
þrjár tölur sem koma aftast í
fæðingarnúmeri hrossa. Þessi
númer eru tengd uppruna hross
anna og á meðan ræktandi kenn
ir hross sín við sama uppruna
hefur hann sömu númeraröð.
• Fyljun þarf að hafa verið
skráð á hryssurnar árið áður.
Fylskráningar geta skilað sér
inn í WF með misjöfnum hætti
en alltaf þarf stóðhestseigandinn
eða umsjónarmaður hestsins að
samþykkja skráninguna.
Þessar leiðir eru til að skrá
fyljun:
• Stóðhestseigandinn skrá
ir í sinni heimarétt hvaða
hryssur voru hjá hestinum.
Hryssueigandinn fær sjálf
krafa tilkynningu úr WF í
tölvupósti þegar það hefur
verið gert. Þetta gerist reynd
ar ekki nema hryssueigandinn
hafi skráð rétt netfang inn í
WorldFeng!
• Hryssueigandi skráir fyljun á
hryssurnar sínar í heimarétt
sinni. Hryssur birtast síðan í
heimarétt stóðhestseigandans
og hann þarf að samþykkja
að hryssurnar hafi verið hjá
hestinum. Geri hann það ekki
fer skráning hryssueigandans
ekki í gegn. Það er því mjög
mikilvægt að stóðhests
eigendur fylgist með hvort
hryssur eru að bætast inn á
hestinn. Skráning hryssu
eiganda á fyljun er í raun til
kynning til stóðhestseiganda
sem hann þarf síðan að stað
festa til að hún verið virk.
• Stóðhestaskýrslu eða
fyljunar vottorði skilað inn
til RML, undirrituðu af stóð
hestseiganda eða umsjónar
manni hestsins. Ef hryssurnar
hafa verið sónarskoðaðar þarf
dýralæknir að votta niður
stöðurnar úr henni með sinni
undirskrift.
Ef skráning á folöldum kemur ekki í
gegnum heimarétt hryssueigandans
er hægt að senda grunnskráningar
eða örmerkjablöð til RML.
Hvað þarf til að gerast
þátttakandi í skýrsluhaldi?
Hafa þarf samband við Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins í síma eða
tölvupósti. Ráðgjafarmiðstöðin
úthlutar föstum númerum sem eru
tengd við þann uppruna sem við
komandi kennir hross sín við. Þrír
síðustu stafirnir í fæðingarnúmeri
hrossa eru þessi númer. Upplýsingar
um hvernig fæðingarnúmer er upp
byggt má sjá hér á eftir.
Þátttakendum í skýrsluhaldi WF
er ætlað að skrá fang hryssna, notk
un stóðhesta, fædd folöld, geldingu,
afdrif, eigandaskipti og umráða
mann. Tilgangurinn með þessum
skráningum er að gagnagrunnurinn
gefi sem réttasta mynd af hrossa
stofninum hverju sinni.
Þeir sem ekki hafa aðgang að WF
geta skilað inn gögnum til skrán
ingar hjá RML.
Eins og áður hefur komið fram
eru félagsmenn í Landssambandi
hestamannafélaga og Félagi
hrossa bænda með frían aðgang að
WorldFeng í gegnum sín aðildar
félög. Félagsmenn þurfa hins vegar
að hafa samband við sitt félag til að
fá úthlutað aðgangi. Þeir sem eru
félagsmenn í áður nefndum félög
um eru hvattir til að verða sér út um
aðgang hafi þeir hann ekki nú þegar.
Hvaða upplýsingar má lesa
út úr fæðingarnúmeri hrossa?
Fæðingarnúmer (ISnúmer) er í raun
kennitala hestsins. Út úr fæðingar
númerinu má lesa fæðingar land,
fæðingarár, kyn, landssvæði sem
hrossið er upprunnið á og fast númer
ræktanda. Eins og þegar hefur komið
fram eru föst númer þau númer sem
viðkomandi ræktanda er úthlutað
um leið og hann gerist þátttakandi í
skýrsluhaldi. Í meðfylgjandi töflum
eru tekin tvö dæmi.
Það er því um að gera fyrir hesta
menn að setja sig aðeins inn í hvað
má lesa út úr fæðingarnúmerinu.
Snilldin í þessu kerfi er að rækt
andinn getur ár eftir ár notað sömu
númer á folöldin sem honum fæðast
því alltaf breytist ártalið. Eins er
hægt að nota sama númer á hryssu
og hest, því kynin hafa sitt hvort
númerið (l fyrir hest og 2 fyrir hrys
su). Margir ræktendur hafa gaman
af því að láta öll afkvæmi uppáhalds
hryssna hafa sama númerið því þá
er auðveldara að muna fæðingar
númer afkvæma þeirra.
Geta fjölskyldur haft
sameiginlega heimarétt?
Með tilkomu heimaréttar í WF gefst
notanda tækifæri til að grunnskrá
folöld, hafa eigandaskipti, skrá af
drif hrossa, skrá fyljun, setja inn
myndir og ýmislegt fleira. Notendur
ættu því ekki að gefa öðrum upp
aðgangsorðin sín að WF frekar en
aðgang sinn að heimabankanum eða
rafrænum skilríkjum. Hins vegar er
hægt að sækja um til RML að vera
með sameiginlega heimarétt. Í því
felst að sá sem er með aðganginn
að WF tekur að sér að sjá um skýr
sluhaldið fyrir t.d. maka og börn.
Framkvæmdin á því er einfaldlega
sú að prenta þarf út eyðublað sem
er að finna á heimasíðu RML undir
„Eyðublöð í hrossarækt“ og kallast
„Umboð heimaréttar“. Eyðublaðið
er fyllt út og umboðshafinn er sá
sem hefur aðganginn að WF en
hinir eru umboðsgjafar. Allir aðilar
þurfa að skrifa undir þennan pappír
og vottur þarf að kvitta fyrir að
undirskrifir séu réttar. Foreldrar eða
forráðamenn verða að skrifa undir
fyrir hönd barna sem eru yngri en
18 ára og prókúruhafar fyrir hönd
fyrirtækja. Þegar búið er að fylla
út blaðið er það sent til skráningar
hjá RML, þegar það hefur verið
afgreitt koma öll hross sem skráð
eru á umboðsgjafana inn í heimarétt
umboðshafans.
Á heimasíðu RML er að finna
ýmsan fróðleik varðandi skýrslu
haldið, meðal annars leiðbeiningar
um notkun á heimarétt WF. Ef
spurningar vakna varðandi skýr
sluhaldið eða eitthvað annað er um
að gera að setja sig í samband við
starfsmenn RML og við reynum að
leysa úr ykkar málum. Hægt er að
hringja í síma 5165000 eða senda
tölvupóst á netfangið rml@rml.is,
einnig er velkomið að senda tölvu
póst beint á netfang undirritaðrar
halla@rml.is. Að lokum óska ég
ykkur öllum gleðilegs sumars.
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur í hrossarækt
halla@rml.is
Hvað má lesa úr eftirfarandi númeri IS 1999 1 87 196?
Fæðingarland Fæðingarár Kyn Landssvæði Föst nr.
IS (Ísland) 1999 1 (hestur) 87 (Árnessýsla) 196 (ræktandi)
Hestur fæddur árið 1999 í lágsveitum Árnessýslu en þær sveitir hafa svæðisnúmerin 82 og 87.
Uppsveitir Árnessýslu hafa svæðisnúmerin 83 og 88.
Hvað má lesa úr eftirfarandi númeri IS 2019 2 53 810?
Fæðingarland Fæðingarár Kyn Landssvæði Föst nr.
IS (Ísland) 2019 2 (hryssa) 53 (V-Húnavatnss.) 810 (ræktandi)
Hryssa fædd árið 2019 í Vestur-Húnavatnssýslu en það landssvæði hefur svæðisnúmerin 53 og 55.
Í WorldFeng hefst nýtt skýrsluhaldsár 1. apríl ár hvert. Það þýðir að frá og með þeim degi er ekki hægt að skrá það
sem gerðist árið á undan. Þess vegna er ekki lengur hægt að skrá í heimaréttinni folöld sem fæddust á árinu 2019,
það er heldur ekki hægt að skrá fyljun hryssna frá því ári.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
FISKINN HEIM Á BÆ
Verslaðu fiskinn heim í netverslun okkar.
Við afhendum frítt á allar Flytjanda stöðvar og
útibú hringinn í kringum landið.
10 kg lausfrystir
Þorskbitar - 14.900 kr. m. vsk.
10 kg lausfrystir
Ýsubitar - 14.900 kr. m. vsk.
www.fiskinnheim.is