Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202024
Unnið hefur verið að þróun kyn-
bótamats hrossa að undanförnu.
Það er tölvudeild Bændasamtaka
Íslands sem hefur haft þetta
verkefni á sinni könnu undir
stjórn Elsu Albertsdóttur og fékk
Þorvald Árnason til liðs við sig
nú á haustmánuðum. Búið er
að skipuleggja verkefnið út árið
og ákveðið að koma fram með
ákveðnar breytingar núna og svo
endanlega í haust.
Þessar nýjungar eru afar spennandi
þar sem þær fela í sér auknar upplýs
ingar til handa ræktendum. Einnig
nýtir kynbótamatið sér nú enn meira
af upplýsingum um hvern grip og
leiðir þar af leiðandi til réttara mats og
raunhæfari röðunar á afkvæmahross
um.
Þær endurbætur sem koma fram
í nýju kynbótamati, sem hefur verið
birt í WorldFeng, eru margvíslegar
og verða kynntar í þessum pistli.
Þær eru:
• Nýtt kynbótamat er byggt á
nýjum vægisstuðlum eigin
leikanna
• Kynbótamat fyrir hægt stökk
• Mæting til dóms – hlutfall
sýndra dætra hefur áhrif á kyn
bótamat afkvæmahrossa
• Endurbót á kynbótamati fyrir
skeið
• Kynbótamat á aðaleinkunn án
skeiðs
• Afkvæmaverðlaun – afkvæma
hross einnig verðlaunuð á
grundvelli aðaleinkunnar án
skeiðs.
• Eins og kunnugt er voru sam
þykktir, á aðalfundi FEIF
nú í vetur, nýir vægisstuðlar
eiginleikanna í aðaleinkunn
og byggir nýtt kynbótamat á
þeim. Nýir vægisstuðlar hafa
verið kynntir og greinar og efni
þessu tengt þegar aðgengilegt á
vef RML, rml.is.
Kynbótamat fyrir hægt stökk
Í nýju kynbótamati er komið sér
stakt mat fyrir hægt stökk sem hefur
vantað hingað til. Þetta var nauðsyn
legt að gera, ekki síst vegna þess að
nú er búið að skilgreina hægt stökk
sem sér eiginleika. Hægt stökk
og hægt tölt eru meðhöndluð sem
tengdir eiginleikar í nýja kynbóta
matinu. Það þýðir að notaðar eru
upplýsingar um erfða og svipfars
fylgni þessara eiginleika við aðrar
eiginleika þegar kynbótamat er
reiknað. Hægt tölt hefur hingað til
verið meðhöndlað sem stakur eig
inleiki.
Mæting til dóms
Búið er að bæta við eiginleika sem
heitir mæting til dóms. Þetta er í raun
0/1 eiginleiki sem lýsir því hvort
hrossið hafið verið sýnt í kynbóta
dómi eða ekki. Þá er tekið tillit til
allra mögulegra upplýsinga um
hvern grip eins og með aðra eigin
leika; það er hvort hrossið er sýnt
sjálft eða ekki og hlutfall sýndra af
kvæma og skyldra hrossa (foreldra,
afar, ömmur o.s.frv.) Þetta er verð
mæt viðbót þar sem þessi mætingar
eiginleiki hefur háa erfðafylgni við
þá eiginleika sem eru innifaldir í
ræktunarmarkmiðinu og eru metnir
á kynbótasýningum. Þetta hlutfall
sýndra hrossa í frændgarði hvers
hests segir því mikið til um kyn
bótagildi hans og má segja kynfestu
HROSS&HESTAMENNSKA
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Nýtt kynbótamat í hrossarækt
Gáska frá Álfhólum er dæmi um afkvæmahryssu sem breytist mikið í kyn-
bótamatinu. Hún var með 106 stig en er nú með 112 stig í aðaleinkunn
og 120 stig í aðaleinkunn án skeiðs. Enda búið að sýna mikið af góðum
hrossum undan henni, ekki síst hvað tölt og klárgang varðar og er á leiðinni
í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi byggt á aðaleinkunn án skeiðs.
Mynd / Jens Einarsson
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
Stóðhestar sem eiga 30 eða fleiri dæmd afkvæmi og eru á leiðinni í heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi (á Íslandi) byggt á kynbótamati á aðaleinkunn og/eða aðaleinkunn án skeiðs
Nafn Uppruni Aðaleinkunn Aðaleinkunn án skeiðs Dæmd afkvæmi
Skýr Skálakot 128 125 30
Hrannar Flugumýri II 125 122 32
Óskasteinn Íbishól 122 113 45
Kjerúlf Kollaleira 119 123 40
Loki Selfoss 118 127 42
Sveinn-Hervar Þúfa í Landeyjum 110 120 122
Meðal
breyting
Ódæmd hross -7,7
Hross með fullnaðardóm 0,4
Afkvæmahestar með minnst 30% mætingarhlutfall* -0,7
Afkvæmahestar með 20% mætingarhlutfall* eða lægra -5,3
Afkvæmhryssur með 5 eða fleiri dæmd afkvæmi 3
Afkvæmahryssur með 0% mætingarhlutfall* -7,4
*Mætingarhlutfallið byggir á dætrum, 6 vetra og eldri.
Breytingar í kynbótamati á öllum hrossum fæddum 2000 og síðar
Þessar breytingar í kynbóta-
matinu kalla ekki á breytingar á
verðlaunastigum stóðhesta fyrir
landsmót. Þau eru nú 118 stig
og 15 dæmd afkvæmi til fyrstu
verðlauna og 118 stig og 50
dæmd afkvæmi til heiðursverð-
launa. Þegar fjöldi og hlutfall
hesta úr hverjum árgangi er
skoðað frá 1980 má sjá að þetta
eru að meðaltali um 3 hestar úr
hverjum árgangi sem hafa hlotið
fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi
(einn til tíu) eða að meðaltali
0.6%. Þetta eru yfirleitt á bilinu
2-4 hestar úr hverjum árgangi,
oftast þrír.
Nokkrir árgangar skera sig þó úr
með fjölda en það eru árgangarnir
1984 og 1999 með fimm hesta og
2007 árgangurinn með tíu hesta.
2007 árgangurinn er raunar alveg
sérstæður en 1.3% hestanna úr
þeim árgangi hafa hlotið fyrstu
verðlaun fyrir afkvæmi. Þegar
fjöldi og hlutfall þeirra hesta sem
hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi úr hverjum árgangi frá
1980 er skoðað er fjöldinn frá 0
til 4. Að meðaltali rétt rúmlega
einn hestur úr hverjum árgangi.
Hlutfall heiðursverðlaunahesta
úr hverjum árgangi er þannig að
meðaltali 0.2%.
Fjöldi og hlutfall hesta sem
hljóta afkvæmaverðlaun úr hverj
um árgangi virðist ekki breytast
að ráði við þessar breytingar í
kynbótamatinu og því hægt að
halda sig við 118 stig til fyrstu
og heiðursverðlauna. Það sama á
við hryssur með að lágmarki 116
stig og fimm dæmd afkvæmi.
Sú verðmæta breyting verður á
verðlaunastigunum að nú verður
bæði horft til kynbótamats fyrir
aðaleinkunn og einnig til aðal
einkunnar án skeiðs. Þannig getur
t.d. stóðhestur sem er með 118 stig
eða meira í aðaleinkunn án skeiðs
einnig hlotið afkvæmaverðlaun.
Þetta mun auka á fjölbreytileika
þeirra dýrmætu hestgerða sem
hljóta afkvæmaverðlaun og er
afar jákvæð og verðmæt breyting.
Hvað varðar afkvæmaverð
laun stóðhesta er einnig breyting
að ekki er lengur krafa að hestur
inn sé sýndur með afkvæmum á
stórmóti (lands eða fjórðungs
móti) til að hljóta verðlaunin. Á
aðalfundi FEIF 2018 voru settar
alþjóðlegar reglur um hvaða verð
launastig afkvæmahrossa í öllum
löndum FEIF birtast í WorldFeng
og var miðað við reglur Íslands um
verðlaunastig fyrir afkvæmahross.
Hvað stóðhestana varðar eru nú
sömu viðmið alls staðar í FEIF
löndunum; 118 stig og 15 dæmd
afkvæmi til fyrstu verðlauna og
118 stig og 50 dæmd afkvæmi til
heiðursverðlauna. Eini munur
inn var að ekki eru gerðar kröf
ur erlendis um að stóðhestarnar
séu sýndir með afkvæmum á
stórmótum til að hljóta verðlaun
in eins og gert hefur verið hér á
landi. Það þótti ekki raunhæft að
gera þá kröfu erlendis þar sem
afkvæmi hestanna gætu verið
í fleiri en einu landi og því afar
erfitt að koma afkvæmasýningu
við. Sýning afkvæmahesta með
afkvæmum á stórmótum er því
valkvæð. Þegar stóðhesturinn
nær fyrrgreindum verðlauna
stigum fara upplýsingarnar inn
í Worldfeng og eigandinn getur
ákveðið sjálfur hvort hann stillir
upp hópi afkvæma á Lands eða
Fjórðungsmótum. Að mæta með
hóp á stórmót verður engu að síður
skilyrði verðlauna og verður t.d.
handhafi Sleipnisbikarsins að
mæta með hóp á stórmót.
Afkvæmaverðlaun
Elsa Albertsdóttir
Erfða- og kynbótafræði
Fjármála- og tæknisvið
elsa@rml.is
Skýr frá Skálakoti stendur efstur í
kynbótamati á aðaleinkunn með 128
stig af stóðhestum sem eiga 30 til 49
dæmd afkvæmi.
Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum
er dæmi um hest sem er á leiðinni
í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
byggt á aðaleinkunn án skeiðs. Sú
nýjung eykur á fjölbreytileika þeirra
dýrmætu hestgerða sem hljóta af-
kvæmaverðlaun. Mynd/Jens Einarsson