Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 45
ekki fyrr en skömmu fyrir aldamótin
1700 að trönuberjaheitið festist í
sessi meðal þýskra og hollenskra
innflytjenda í Nýja-Englandi. Heitið
vísar til þess að blómið þykir líkjast
háls, haus og gogginum á trönu. Á
Bretlandseyjum kallast mýraberja-
lyng fenbeery, eða fenjaber.
Á Spáni kallast trönuber aránda-
no, Ítalíu mirtillo rosso en boron-
icë e kuqe í Albaníu og klyukva í
Úsbekistan. Á afríkans er það rooi-
bosbessie, á finnsku er sagt karpa-
lo, á sænsku tranbär en á norsku og
dönsku tranebær.
Íslenska heitið fyrir trönuber er
allt eins komið úr dönsku eða ensku.
Útbreiðsla
Trönuber finnast einungis villt í
Norður-Ameríku. Þau dafna best í
súru og næringarsnauðu deiglendi,
þar sem þau fá nóg af vatni. Mest
er um þau í norðaustanverðum
Bandaríkjunum og í Kanada.
Saga
Frumbyggjar Norður-Ameríku
hafa safnað og notað trönuber til
matar allt frá því að fólk settist
fyrst að í álfunni. Indíánar, eins og
Narragansett-fólkið í Nýja-Englandi,
blandaði þeim meðal annars saman
við þurrkað kjöt og fitu. Blandan
kallast pemmican og þótti góð til
að auka geymsluþol kjöts og svipar
til þurrkaðs kjöts eða beef jerky á
bragðið. Heitið pemmican kemur
úr máli Kree Indíána, pimîhkân, og
mun vera dregið af pimî sem þýðir
fita. Berjanna var einnig neytt hrárra,
þau elduð eða þurrkuð.
Hluti evrópskra innflytjenda
til Nýja heimsins þekkti ef til vill
til mýraberjalyngs frá heimkynn-
um sínum en líklegt er talið að
þeir hafi lært að nytja trönuber af
Narragansett-fólkinu sem kölluðu
berin sasemineash. Fyrstu landnem-
arnir kölluðu berin ýmsum nöfnum
og það var ekki fyrr en í lok sautj-
ándu aldar að trönuberjaheitið varð
almennt.
Elsta evrópska heimild um
nytja Indíána á trönuberjum er frá
1550 og höfð eftir landkönnuðin-
um James White Norwood. Í bók
James Rosier, The Land of Virginia,
frá 1605 segir frá því þegar breskir
landnemar ganga á land þar sem í
dag er Virginia-ríki og á móti þeim
tóku Indíánar með skálar fullar af
trönuberjum. Frá 1633 er til lýsing
frá Plymouth í Massachusetts-ríki
sem segir að eiginmaður Mary Ring
hafi selt undirpils konu sinnar sem
litað var með trönuberjum á uppboði
fyrir 21 krónu á núverandi gengi.
Roger Williams kallar berin
bjarnaber í bók um tungumál Indíána
árið 1643 vegna þess að birnir eru
sólgnir í þau. Fimm árum síðar,
1648, er haft eftir prestinum John
Elliott í bókinni Clear Sunshine of
the Gospel, sem gæti útlagst Tært
sólskin guðspjallanna, eftir Thomas
Shepart, að landnemarnir séu í sár-
ustu vandræðum með að halda inn-
fæddum að verki þegar kemur að
því að tína trönuber því þeir kjósi
fremur að eyða tímanum til dýra- og
fiskveiða.
Árið 1667 sendu íbúar Nýja-
Englands Karli II Englandskonungi
tíu tunnur af trönuberjum, þrjár tunn-
ur af söltuðum þorski og slatta af
Indíánakorni, eða maís, til að sefa
reiði konungs fyrir að hafa hunsað
nýja konungsmynt, furuskilding,
sem átti að gilda í nýlendunni.
Sjómenn notuðu trönuber sem
C-vítamíngjafa gegn skyrbjúgi.
Fyrsta skráða heimildin um
trönuberjasósu er í uppskriftabók
landnema frá 1663 og í lýsingu á
mat í boði í brúðkaupi skipstjórans
Richard Cobb og Mary Gorham árið
1669. Þar er kalkúnn með trönu-
berjasósu nefndur. Með tímanum
tengdust trönuber eða trönuberjasósa
og kalkúnn þakkargjörðarhátíð,
eins kona uppskeruhátíð að hausti,
Bandaríkjanna órjúfanlegum bönd-
um.
Ræktun og uppskera
Ræktun trönuberja er tiltölulega ný
og eru elstu heimildir um hana frá
því snemma á 19. öld.
Talið er að Henry Hall, fyrrum her-
maður í frelsisstríði Bandaríkjanna,
hafi fyrstur manna ræktað trönu-
ber árið 1816. Hall bjó í lítilli borg
sem heitir Dennis á Cape Cod eða
Þorskhöfða í Massachusetts-ríki á
norðausturströnd Bandaríkjanna.
Fjórum árum seinna var Hall farinn
að selja trönuber í tunnuvís til New
York og Boston og flytja út til borga
í Evrópu.
Í framhaldi af velgengni Hall
breiddist ræktun berjanna úr til
annarra ríkja ríkjasambandsins
eins og Wisconsin, New Jersey,
Washington og Oregon sem
eru í austur- og norðausturhluta
Bandaríkjanna og til Kanada. Tölur
segja að aldamótaárið 1990 hafi
trönuber verið ræktuð á um 8.700
hekturum í Nýja-Englandi og á
16.400 hekturum í Massachusetts-
ríki árið 2014.
Í fyrstu fólst ræktun trönuberja
aðallega í að hólfa af svæði þar sem
villtar plöntur gáfu vel af sér og
voru berin tínd með höndum. Síðar
var farið að búa til beð og vökva
plönturnar og auka þannig uppsker-
una. Með tímanum hafa kynbæt-
ur gefið af sér plöntur með stærri
berjum og yrki sem þrífast á ólíkum
stöðum. Þegar nýtt land er brotið
undir trönuberjaræktun er efsta
jarðvegslagið, helst í votri mýri,
fjarlægt að hluta og 10 til 20 sentí-
metra sandlag sett í staðinn og búin
til upphækkuð beð. Milli beðanna er
akvegur fyrir vélar. Umhverfis rækt-
unarsvæðið eru garðar sem gera það
kleift að vökva og kaffæra akrana í
vatni til að auðvelda uppskeru.
Yfir vaxtartímann eru plönturnar
vökvaðar eftir þörfum en á haustin,
september og fram í nóvember,
þegar berin hafa náð tilætluðum
þroska, eru akrarnir kaffærðir í vatni
til vottínslu. Þroskuð trönuber losna
auðveldlega af plöntunum og fljóta
í vatni. Uppskera þeirra fer þannig
fram að þreskivél með mjúkum
burstum er ekið yfir akrana og losar
hún berið af plöntunni sem fljóta á
yfirborðinu. Að þreskingunni lokinni
er berjunum rakað eða ýtt saman
á ákveðinn stað og þeim safnað á
flutningabíla og síðan flokkuð á
þurru.
Á köldustu ræktunarsvæðunum
liggja akrarnir undir vatni yfir vetr-
armánuðina til að hlífa plöntunum
fyrir frosthörkum og kali. Að öllu
jöfnu eru beðin sönduð á þriggja til
fimm ára fresti og þegar frost er í
jörðu.
Fjölgun plantnanna er yfirleitt
gerð með því að grisja beð og flytja
plöntur milli ræktunarstaða.
Nytjar
Hrá trönuber eru 87% vatn, 12% kol-
vetni en þau innihalda nánast engin
prótein eða fitu og í 100 grömmum
af þeim eru 46 kaloríur. Berin inni-
halda trefjar, C-vítamín og slatta
af magnesíum en eru að öðru leyti
fremur fátæk af næringarefnum.
Frumbyggjar Norður-Ameríku
notuðu ólíka hluta trönuberja-
plöntunnar til lækninga við margs-
konar meinum eins og hita, maga-,
blóð-, þvagfæra-, lifrar- og nýrna-
kvillum og í bakstur til að með-
höndla sár og sýkingar.
Verð á trönuberjum hækkaði jafnt
og þétt í Bandaríkjunum allt fram til
1917 þegar það kolféll með þeim
afleiðingum að fjöldi ræktenda varð
gjaldþrota. Um 1930 nutu niðursoð-
in trönuber í dósum talsverðra vin-
sælda en gæði niðursoðnu berjanna
voru fremur lök.
Í dag eru trönuber seld fersk en
berin eru hörð, súr og bitur á bragðið
og er langstærstur hluti uppskerunn-
ar fyrstur til safa-, sósu- og sultu-
gerðar og baksturs. Auk þess sem
trönuber eru seld þurrkuð eða sem
duft í fæðubótarefnum.
Fryst trönuber geymast í allt að
níu mánuði áður en þau fara að missa
bragð og trönuberjasafi er grunnefni
í kokkteilnum Cosmopolitan ásamt
Cointreau, limesafa og vodka.
Nýlegar rannsóknir benda til að
efni í trönuberjum og trönuberjasafa
geti reynst vel við sýkingum í þvag-
færum.
Trönuber á Íslandi
Í sögu Leifs Eiríkssonar um Vínland
hið góða segir frá því er suðurmað-
urinn Tyrkis, fóstri Leifs heppna,
fann vínvið og vínber. „Ek var
genginn eigi miklu langrs en þit.
Kann ek nökkur nýmæli að segja.
Ek fann vínvið ok vínber.“ Mun þat
satt, fóstri min? kvað Leifur. „At
vísu er þat satt,“ kvað hann, „því
at ég var þar fæddr, er hvárki skorti
vínvið né vínber.“
Áhugavert er við þessa lýsingu
að á þeim slóðum sem talið er að
Leifur heppni hafi lent í Norður-
Ameríku vex ekki vínviður né
þroskast þar vínber en þar vaxa
villt trönuber. Hugsanlegt er að
Tyrki, fóstri Leifs, hafi ruglað
saman vínviði og trönuberjaviði
og grænum og rauðum vínberjum
við grænjaxla og fullþroskuð rauð
trönuber.
Í auglýsingu frá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga í
Tímanum í des ember 1958 er
auglýsing þar sem fólk er hvatt til
að gera jólainnkaupin tímanlega.
Meðal þess sem er boðið er upp á
eru margs konar niðursuðuvörur
eins og niðursoðin jarðarber, plómur
og einnig trönuber.
Vinsældir trönuberja hafa aukist
mikið hér á landi undanfarin ár og
mörgum þykir hún ómissandi með
kalkún.
• Trönuberjasósa
• Einn bolli sykur
• Einn bolli vatn
• 500 grömm fersk trönuber
• Einn bolli söxuð epli
• Einn bolli saxaðar valhnetur
• ½ bolli rúsínur
• ½ bolli Grand Marnier
• Safi úr hálfri appelsínu
• Ein teskeið kanill
• Ein teskeið múskat
Sjóðið vatn og sykur saman í potti.
Bætið trönuberjunum út í. Látið
suðuna koma upp. Lækkið undir
og látið krauma. Bætið hinum
íblöndunarefnunum við. Sjóðið í
10 til 15 mínútur. Gott með hvaða
máltíð sem er.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Trönuberjatínsla á Nantucket-eyju árið 1880. Málverk eftir Jonathan Eastman Johnson
Árið 1939 þótti sjálfsagt að börn hjálpuðu til við uppskeruna.
Yfir vaxtartímann eru plönturnar vökvaðar eftir þörfum.
Heitið trönuber tengist því að blóm
plöntunnar þykja líkjast hálsi, haus
og goggi trönu.
Trönuberjasafi er grunnefni í kokk
t eilnum Cosmopolitan ásamt Coin-
treau, limesafa og vodka.