Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202046
Margir þættir hafa áhrif á áburðar
gildi kúamykjunnar sem bændur
munu bera á túnin í vor og hvernig
hún mun nýtast sem áburður fyrir
grös.
Þegar tilbúinn áburður er borinn
á tún er vitað hve mikið er borið á
af plöntunærandi efnum. Magnið er
stillingaratriði og magn næringar-
efna er ákvarðað með vali á áburðar-
tegund. Hvað varðar búfjáráburð er
talsverð óvissa um þessa þætti. Til
að vita innihald mykju af plöntunær-
andi efnum þarf að efnagreina hana
og mæla þurrefnisinnihald hennar
við dreifingu. Þetta þarf að gera
reglulega, kannski oftar í byrjun til
að fá fleiri samhljóma niðurstöður
og betri tilfinningu fyrir þurrefnis-
innihaldi, en síðan á nokkurra ára
fresti því innihald mykju af næring-
arefnum endurspeglar innihald þess
fóðurs sem gripirnir eru fóðraðir á
og nýtingu þess við fóðrun þeirra.
Breytingar í fóðrun hafa því áhrif á
efnainnihald mykjunnar. Aðbúnaður
mjólkurkúa og mjaltatækni hefur
breyst mikið á síðustu árum og með
tilkomu mjaltaþjóna fer í mörgum
tilvikum meira vatn í haughúsin en
áður var vegna þess að vatnsnotkun
við þrif hefur aukist mikið.
Í gegnum tíðina hefur verið notast
við töflugildi um innihald búfjár-
áburðar til að áætla hve mikið af
næringarefnum hann gefur, m.a.
við gerð áburðaráætlana. Þessi
töflugildi eru góð útaf fyrir sig og
eru vissulega meðaltöl úr mælingum
en breytileikinn er það mikill að ekki
er víst að þau gefi rétta niðurstöðu
fyrir einstök bú. Niðurstöður úr
sýnum sem tekin hafa verið á síðustu
árum sýna talsverðan mun milli búa,
bæði hvað varðar efnainnihald kúa-
mykju og þurrefnisinnihald hennar
við dreifingu. Dæmi um þetta má
sjá í 1. töflu sem sýnir mælingar frá
5 búum. Til samanburðar er viðmið
úr Jörð.is fyrir kúamykju með 6,2%
þurrefnisinnihaldi. Eins og sjá má er
mikill munur milli búa hvað varð-
ar þurrefni, magn efna og hlutföll
þeirra. 1. mynd sýnir hve mikið væri
borið á af fosfór og kalíi ef 30 tonn/
ha væru borin á af mykju með inni-
haldi skv. þessum mælingum.
Hvert er þurrefnið í mykjunni
þegar henni er dreift á tún?
Það er mjög mikilvægt að vita
hvert þurrefnið er í mykjunni þegar
henni er dreift á tún. Bæði er það
til að vita hve mikið er í raun borið
á af næringarefnum og eins hefur
það áhrif á nýtingu þeirra, einkum
köfnunarefnisins í mykjunni. Til að
fá rétta niðurstöðu eru sýni tekin
meðan á útkeyrslu stendur.
Kalíið og um helmingur köfn-
unarefnisins er í vatnshluta mykj-
unnar en fosfórinn bundinn í föstu
efni hennar. Með mikilli þynningu
verður mykjan þunn og léttfljót-
andi og rennur hratt niður í jarð-
veginn. Þannig megum við búast
við mun betri nýtingu, einkum á
köfnunarefni þar sem tap á amm-
oníaki út í andrúmsloftið verður
minna.
Köfnunarefni (N)
Í áburðaráætlunum vinnum við út
frá því magni af köfnunarefni sem
áætlað er að bera þurfi á tún eða
akra því það hefur jafnan mest áhrif
á uppskerumagn. Köfnunarefni í
búfjáráburði má skipta í lífrænt
bundið köfnunnarefni og amm-
oníum (NH4+). Ammoníum
(ólífræna köfnunarefnið) nýtist
plöntum hratt en getur líka auð-
veldlega tapast út í andrúmsloftið
við dreifingu þegar skilyrði eru
óhagstæð. Lífrænt bundið köfn-
unnarefni er oft tæplega helmingur
af heildarmagni köfnunnarefnis í
mykjunni. Það verður aðgengilegt
plöntum á lengri tíma samhliða því
sem hið lífræna efni mykjunnar
brotnar niður í jarðvegi og skilar
sér á nokkrum árum. Í norskum
tölum er ætlað að þannig skili sér
árlega sem áburður 10-20% af líf-
rænt bundna köfnunarefninu eftir
því hver niðurbrotshraðinn er. Hér
á landi má væntanlega frekar horfa
á lægri töluna.
Til að lágmarka tap af amm-
oníum við dreifingu er eins og
áður segir góð þynning mykjunnar
mikilvæg þannig að hún sígi hratt
niður í jarðveginn. En það er fleira
sem hefur áhrif. Aðstæður við
dreifingu eru þar afgerandi þáttur.
Þannig eru hátt hitastig, mikill
vindur og þurrviðri ávísun á mikið
tap ammoníaks en að sama skapi
lágt hitastig, logn og hátt raka-
stig kjöraðstæður til dreifingar.
Að ekki sé nú talað um ef rignir
meðan á dreifingu stendur eða
strax að henni lokinni. Í 2. töflu
má sjá norskar viðmiðunartölur um
nýtingu á ammoníum við ólíkar
aðstæður og ólíkt þurrefni mykj-
unnar. Tölurnar eiga við um mykju
sem er dreift með yfirbreiðslu á
vaxtartíma grasa.
Aðferð við dreifingu hefur
einnig mikil áhrif á nýtingu köfn-
unarefnisins. Þannig er nýting
þess best ef mykjan er felld niður,
niðurlagning þar sem mykjan er
lögð niður í rastir með slöngum
er lítið lakari. Yfirbreiðsla (bunu-
dreifing) er sú aðferð sem mest er
notuð hér á landi og er hún talsvert
lakari en niðurfelling og niðurlögn
mykju þegar kemur að nýtingu
köfnunarefnisins auk þess sem
dreifing mykjunnar verður ekki
eins jöfn.
Vordreifing mykju er jafnan
besta tímasetningin en dreifing
milli slátta er einnig góður kostur
séu veðuraðstæður sem áður eru
nefndar hagstæðar. Haustdreifing
hentar einnig ef hún er gerð meðan
rætur grasa og aðrar lífverur jarð-
vegsins geta nýtt sér næringarefni
mykjunnar. Á 2. mynd má sjá hve
miklu skiptir að vel takist til við
dreifingu mykjunnar m.t.t. nýt-
ingar á köfnunnarefninu í henni.
Reiknuð er annars vegar slæm
nýting (40%) og hins vegar góð
(70%) fyrir niðurstöður mælinga
á ammoníum í mykju, frá fimm
búum. Einnig sést að miklu munar
á milli búa í innihaldi mykjunnar.
Til viðmiðunar er mykja úr Jörð.
is með 6,2% þe.
Fosfórinn er fyrst og fremst að
finna í „fasta efninu“ í mykjunni.
Fyrir nýtingu hans hefur þynning
mykjunnar hvorki jákvæð áhrif
né neikvæð. Fosfór í búfjárá-
burði nýtist plöntum jafn vel eða
betur en fosfór í tilbúnum áburði.
Fosfórþarfir túngrasa eru yfirleitt
ekki það miklar að stundum má
uppfylla þær með búfjáráburði.
Hann er dýrastur megin næring-
arefnanna í tilbúnum áburði og
því full ástæða til að nýta búfjár-
áburðinn þannig að spara megi
innkaup á fosfór. Til þess að svo
megi vera þarf að vita hve mikið
er af honum í búfjáráburðinum.
Það sýnir sig að innihald búfjár-
áburðar af kalíi er breytilegt. Það
hefur líka sýnt sig að oft er erfitt
er að áætla kalíþörf túna því niður-
stöður jarðvegssýna og heyefna-
greininga af sömu spildum sýna
stundum ólíka mynd. Innihaldi
búfjáráburður mikið af kalíi og
mikið er borið á af honum getur
það valdið því að kalí verður of
mikið í uppskeru og raskar eðli-
legum steinefnahlutföllum. Þau
áhrif snerta einkum kalsíum og
magnesíum. Jafnframt vill kalígjöf
verða of lítil ef innihald mykjunnar
er minna en gert er ráð fyrir. Það
getur líka raskað eðlilegum hlut-
föllum steinefna í fóðri og dregið
úr magni uppskeru, sérstaklega í
þurrkatíð.
Heimildir:
• NIBIO. Tabeller over virknings
grad av husdyrgjødsel. Sótt
af https://www.nibio.no/tema/
j o rd / g j o d s l i n g s h a n d b o k /
husdyrgjodsel/2.tabellerover
virkningsgradavhusdyrgjodsel
• Ragnhild Borchsenius, 2020.
Usikre verdier for næringsinhold
i husdyrgjødsel. Buskap 2. tbl.
2020.
• Ríkharð Brynjólfsson, 2013.
Efnamagn mykju. Freyja, 3 (1) 20.
• Svanhildur Ósk Ketilsdóttir
og Þóroddur Sveinsson, 2010.
Efnainnihald kúamykju og
mælingar in situ á þurrefni, NH4N
og P með Agros Nova mælibúnaði.
Fræðaþing landbúnaðarins, 207
215.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eiríkur Loftsson
ráðunautur, Rekstrar- og
umhverfissvið
el@rml.is
Kúamykja, innihald og nýting
N ýlegar efnagreiningar á búfjáráburði sýna mjög
breytilegar niðurstöður. Á það bæði
við um þurrefni og efnainnihald.
Það er því talsvert að vinna fyrir
bændur að taka sýni úr búfjáráburði
og senda til efnagreiningar.
Leiðbeiningar um sýnatöku er að
finna á heimasíðu RML (Ráðgjöf/
Jarðrækt/Áburður).
Þurrefni Köfnunnarefni Ammoníum Fosfór Kalí
% Alls NH4
+
kg/tonn kg/tonn kg/tonn kg/tonn
Bú 1 5,0 3,5 2,10 0,51 3,12
Bú 2 7,1 4,5 2,56 1,24 3,56
Bú 3 8,1 4,5 2,43 0,72 3,12
Bú 4 6,6 3,0 1,65 0,84 2,14
Bú 5 5,5 2,3 1,16 0,69 2,29
Jörð.is 6,2 1,90 0,70 2,70
1. tafla. Niðurstöður efnamælinga á mykju frá 5 búum
Hagstæðar Miðlungs Óhagstæðar
Mykja 50% 35% 16%
Þynnt mykja, 4-5% þe 66% 55% 40%
Aðstæður við dreifingu
2. tafla. Nýting ammoníum (NH 4
+ ) úr kúamykju við mismunandi aðstæður
Norskar tölur sem eiga við um yfirbreiðslu mykju á vaxtartíma gras
1. tafla. Niðurstöður efnagreininga á mykju frá fimm búum. Til samanburðar
er viðmiðunargildi úr Jörð.is fyrir kúamykju með 6,2% þurrefni.
2. tafla. Nýting á ammoníum (NH4+ ) úr kúamykju við mismunandi aðstæð-
ur. Norskar tölur sem eiga við um mykju sem dreift er með yfirbreiðslu á
vaxtartíma grasa.
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
Bú 1 - 5,0% Bú 2 - 7,1% Bú 3 - 8,1% Bú 4 - 6,6% Bú 5 - 5,5% Jörð.is - 6,2%
Fosfór Kalí
1. mynd
1. mynd. Fosfór (kg P) og kalí (kg K) í 30 tonnum af kúamykju frá fimm búum
ásamt viðmiði úr Jörð.is fyrir kúamykju með 6.2% þe. Nýting fosfórs er
reiknuð 90% en nýting kalís 80%. Þurrefni mykjunnar er tilgreint fyrir hvert bú.
0
10
20
30
40
50
60
Bú 1 - 5,0% Bú 2 - 7,1% Bú 3 - 8,1% Bú 4 - 6,6% Bú 5 - 5,5% Jörð.is - 6,2%
40% nýting 70% nýting
2. mynd
2. mynd. Reiknuð nýting á ammoníum (kg NH4+) í 30 tonnum af kúamykju
frá fimm bæjum ásamt viðmiði úr Jörð.is fyrir mykju með 6,2% þe. Annars
vegar er slæm nýting (40%), hins vegar góð (70%). Þurrefni mykjunnar er
tilgreint fyrir hvert bú.
GRÆNT ALLA LEIÐ