Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 51
úr köfnunarefnisgjöfinni er hætt við
að bónd-inn fái minni uppskeru eins
og fram kom hér að framan og þá sér
í lagi uppskeru með lægra prótein-
innihaldi. Rick sagði þó að það
þyrfti ekki að vera of neikvætt því
þó að það gæti dregið úr afurðasemi
kúnna þá sýndu rannsóknir háskól-
ans að á bak við hvern framleiddan
lítra af mjólk, þrátt fyrir minni af-
urðir kúnna, væri minna magn af
köfnunarefni. Þá bentu niðurstöður
rannsókna til þess að kýrnar verði
frjósamari og þörf fyrir endurnýjun
kúa væri minni. Á móti kæmi áð-
urnefnt afurðatap og möguleg áhrif
þess á hagkvæmni kúabúskaparins.
Niðurstöðurnar bentu jafnframt til
þess að teknu tilliti til allra þátta væri
hagkvæmast að fara einhverskonar
milliveg og nú er verið að vinna að
því að endurmeta fóðurleiðbeiningar
svo bændur geti nýtt sér þessa þekk-
ingu.
Skiptu kúnum í tvo hópa
Ráðunautarnir Henrik Martinus sen
og Anne Mette Kjeldsen frá SEGES
eru sérfræðingar í fóðrun og fóru
þau yfir tilraun með hópa skiptingu
á kúm eftir stöðu á mjaltaskeiði.
Á stærri kúabúum, þar sem kýrnar
skipta etv. einhverjum þúsundum,
er kúnum í dag nánast undantekn-
ingarlaust skipt í marga mismunandi
hópa eftir því hve gamlar þær eru,
hve mikið þær mjólka og hvar þær
eru staddar á mjaltaskeiðinu. Þessir
hópar eru oft 8 á hverju búi auk
hópskiptra geldkúa og kvígna og á
þessum búum er því verið að búa til
10-12 mismunandi heilfóðurblöndur
á hverjum degi! Þetta er auðvitað
algjörlega óraunhæft á minni búum
en sumir danskir bændur hafa verið
að fikra sig áfram við að skoða að-
lögun að þessum hópaskiptingum og
kynntu þau Henrik og Anne Mette
niðurstöður tilraunar með tvískipt-
ingu á kúnum þ.e. eftir stöðu á
mjaltaskeiði.
Tvær heilfóðurgerðir
Heilfóður er í dag langalgengasta
fóðurgerðin í Danmörku og víðar
en gallinn við heilfóðurgjöfina er
sá að þá er oftast búin til ein alhliða
fóðurblanda fyrir kýrnar og er þá
yfirleitt reynt að útbúa blönduna
þannig að hún henti fyrir kýr á fyrri
hluta mjaltaskeiðsins en fyrir vikið
er hún of næringarefnarík fyrir kýr
á síðari hluta mjaltaskeiðsins.
Hingað til hefur þó verið talið
betra að gera bara eina blöndu,
vinnulega séð, fyrir allar kýrnar
jafnvel þó svo að þá sé verið að sóa
næringarefnum í nytlægri kýrnar.
Auk þess sem þá þarf ekki að skipta
kúnum í hópa. Í dag eru dönsk kúa-
bú hins vegar að jafnaði með um 210
árskýr og bústærðin því orðin slík að
það er talinn raunhæfur möguleiki á
því að hópaskipta kúnum og fóðra
þær því með tveimur mismunandi
heilfóðurtegundum eftir því hvort
þær séu á fyrri hluta mjaltaskeiðs
eða síðari hluta. Sumir danskir
bændur hafa þegar farið þessa leið
en svo virðist sem vísindin geti ekki
stutt við þessa þróun því niðurstöð-
ur Henrik og Anne Mette voru á þá
leið að við það eitt að skipta kúm
í hópa og færa kýr á milli hópa þá
verður svo mikil ókyrrð í hópnum
að nytin fellur meira en svo að lægri
fóður-kostnaður borgi upp muninn.
Það var með öðrum orðum óhag-
kvæmt að skipta kúnum í hópa.
Kúabóndinn á öðru máli
Þó svo að niðurstaðan hafi verið
sú að hópaskiptingin hafi ekki
skilað gróða í krónum og aurum
byggt á fóðurkostnaði og tekjum
vegna mjólkurframleiðslu þá sagði
kúabóndinn Rik Kool, sem næstur
fór í pontu, að reynsla hans af
hópaskiptingu væri afar góð. Eftir
að hann fór að skipta kúnum í hópa
hafi yfirsýn hans orðið betri enda
með viðkvæmari kýrnar, þessar á
fyrri hluta mjaltaskeiðsins, saman
í einum hóp. Hann vildi því meina
að skoða þurfi langtímaáhrif þess að
hópaskipta og hvort bætt bústjórn
vegi ekki upp á móti því tekjutapi
sem verður þegar kýr er flutt á milli
hópa. Áhugavert sjónarmið og rétt
að minna á að þó svo að hér á landi
séu í dag ekki mörg bú sem eru
svona stór, þá má í raun nokkuð
auðveldlega, með aðstoð tæknilegra
lausna sem notkun mjaltaþjóna gefur
möguleika á, hópaskipta kúm jafnvel
þó svo að hjarðirnar séu mun minni.
Fitusýrumælingar á mjólk
Með áhugaverðari erindum á fag-
þinginu að þessu sinni var klár-
lega erindi fyrrgreinds Henrik
Martinussen og Morten Kargo sem
einnig er ráðunautur en sem starfar
einnig hjá háskólanum í Aarhus.
Þeir fjölluðu um fitusýrumælingar
á mjólk en danskir bændur fá með
kýrsýnaniðurstöðum upplýsingar
um flokkun á fitusýrum mjólkursýn-
anna. Í dag er Danmörk eina landið
í heiminum þar sem öll kýrsýni eru
greind með þessum hætti en fleiri og
fleiri lönd eru nú að taka upp þessa
mælingu þar sem reynslan af þessum
mælingum frá Danmörku er einkar
áhugaverð. Mjólkurfita stjórnast af
þremur aðskildum þáttum þ.e. fóðr-
uninni, erfðum og umhverfinu og
með því að vita hvernig fitusýru-
flokkun mjólkursýnanna er má segja
töluvert mikið til um bústjórnina!
15 milljón sýni!
Fitusýrumælingar á mjólk, eins og
gert er amk. í Danmörku, byggja á
því að mæla lengd fitusýrukeðjanna
sjálfra. Niðurstöðurnar eru flokkaðar
í þrjá flokka:
a. Fitusýrur sem myndast í
júgurvef (De Novo).
b. Fitusýrur sem koma frá
fóðri og umbreyttri líkams-
fitu (Preformed).
c. Fitusýrur sem myndast með
báðum framangreindum
aðferðir (Mixed).
Þeir félagarnir notuðu niðurstöður
15 milljón sýna, sem tekin voru á
tímabilinu frá maí 2015 til desem-
ber 2017 og báru saman við ótal
upplýsingar úr skýrsluhaldinu og
komust að því að niðurstöður um
fitusýrugerð kýrsýna gefa ýmsar
áhugaverðar upplýsingar sem má
nýta við bústjórn. Þannig kom m.a.
fram að bú þar sem hlutfall af fitu-
sýrum sem myndast í júgurvef var
almennt hátt gefa yfirleitt minna
af fitu í fóðri, eru almennt með
nákvæmari fóðrun, fóðra oftar og
hafa rúmbetri fjós! Þá fundu þeir
að þar sem þessi fitusýrugerð var
algengari var frumutalan almennt
lægri og kýrnar entust einnig betur
í þessum fjósum. Samantekið
komust þeir að því að ef hlutfall
stuttra fitusýrukeðja var hátt, þá
benti það til þess að kýrnar hefðu
það fóðrunarlega gott og að bú-
stjórnin væri í lagi. Afar gagnlegar
niðurstöður sem munu geta nýst
um allan heim.
Með rannsóknarstofuna
í traktornum
Síðasta erindið sem greint verður
frá úr þessari afar faglega sterku
málstofu er erindi ráðunautanna
Peter Hvid Laursen og Niels
Bastian Kristensen, en báðir
starfa hjá SEGES. Þeir fjölluðu
um notkun á stafrænni tækni til
þess að meta fóður og fóðurgæði
en í dag eru til ótrúlega fjöbreytt
mælitæki sem ætlað er að einfalda
bændum að meta fóður nautgripa.
Einna áhugaverðust er notkun á
NIR mælibúnaði (Nær innrauð lit-
rófsgreining) en með þeirri tækni
er unnt að mæla efnasamsetningu
fóðurs á fljótlegan og einfaldan
hátt og engrar sýnameðhöndlunar
er krafist og því sérlega hentugt
til notkunar. Í dag er hægt að fá
svona búnað settan beint á t.d. hey-
hleðsluvagninn og mæla þannig
fóðurgæðin um leið og hirt er og
bjóða líklega flestir vélaframleið-
endur einhverskonar NIR lausnir
í dag. Sögðu þeir Peter og Niels
að tæknin væri orðin all góð í dag
en þó væri ákveðin óvissa fyrir
hendi þar sem stilla þurfi tækin
rétt af miðað við uppskerugæð-
in. Það væri þó alltaf að safnast í
gagnagrunninn sem bætir stöðugt
öryggi tækninnar.
Mæla af nákvæmni
Þó nokkur munur sé á NIR mæl-
unum kom fram að þeir sem
standa sig best eru á pari við það
sem fæst frá rannsóknarstofum en
gerðar hafa verið margar saman-
burðarmælingar. Þannig nær besti
búnaðurinn að meta þurrefni, hrá-
prótein og sykurinnihald uppsker-
unnar af mikilli nákvæmni. Með
svona vitneskju um fóðrið, strax
þegar það er sett í geymslu, fást
einstakar upplýsingar sem geta
bætt bústjórnina. Þá aflast mik-
ilvægar upplýsingar á staðnum af
hverri einustu spildu ekki bara um
uppskerumagn heldur einnig gæði
uppskerunnar og því hægt að taka
ákvörðun nánast á staðnum um að
fara í endurræktun á viðkomandi
spildu ef uppskerutölurnar eru
slakar.
Í næsta Bændablaði verð-
ur lokið við umfjöllun um þetta
áhugaverða fagþing. Þess má þó
geta að hægt er að skoða og hlaða
niður öllum erindum af fagþinginu
með því að fara inn á upplýsinga-
síðu danska landbúnaðarins www.
landbrugsinfo.dk. Þar þarf svo að
velja „Kvæg“ (þ.e. nautgriparækt)
og þar undir „Kvægkongressen“
og þá opnast heimasíða fagþings-
ins þar sem hægt er að skoða
öll erindin með því að smella á
„Præsentationer fra kongressen
2020“.
Með því að nota smára í tún er hægt að draga verulega úr áburðarþörf vegna
köfnunarefnisbindingar smárans. Mynd / SEGES
Sauðburður
Í Líflandi færðu mikið úrval af
vörum fyrir sauðburðinn
Burðargel, Lambaboost,
burðarhjálp, lambafötur,
mjólkurflöskur, lambamjólkurduft,
sótthreinsivörur, hlífðarfatnað
og margt fleira.
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði, Aldan og
Bakkahverfi
Seyðisfjarðarkaupstaður hefur tilkynnt til athugunar Skipulags-
stofnunar frummatsskýrslu um snjóflóðavarnir á Seyðisfirði.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 17. apríl til 1. júní 2020 hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan
er einnig aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 1. júní 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.