Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Qupperneq 35
Ljósmynd: Bára Snæfeld
i 'Tífiín ~ " Wf/’ i1-
■Ml' " a||» Ejv - ».■ M
Á skrifstofunni veita ráðgjafar bandalagsins al-
mennar upplýsingar og ráðgjöf til öryrkja, fatl-
aðra og aðstandenda og hefur þörf á þeirri þjón-
ustu aukist til muna í kreppunni. Upplýsingar
um réttindi og skyldur og aðstoð í samskiptum
við ýmsar stofnanir er varða hagsmunamál eru
ekki síður mikilvægt. Þá er lögfræðiráðgjöf veitt
til öryrkja og aðildarfélaga ÖBÍ. Lögfræðingurinn
tekur ekki að sér einstök mál nema þau hafi for-
dæmisgildi fyrir fleiri.
Mikilvægur þáttur í starfi bandalagsins er að
standa vörð um réttindi öryrkja og þrýsta á nýj-
ungar í þeim efnum og er liður í því að veita um-
sagnir um lagafrumvörp, þingsályktanir og skrifa
álitsgerðir. ÖBÍ er með fulltrúa í ýmsum opin-
berum nefndum og ráðum og hefur sá þáttur í
starfi bandalagsins aukist sfðustu ár. Yfirfærsla
á þjónustu við fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga,
sem tók gildi um síðustu áramót, leiddi til þess
að ráða varð sérstakan starfsmann til að fylgjast
með því sem fram fer og taka þátt í nefndarstarfi
og samráðsnefndum því samfara.
mál sem hafa frá upphafi verið helstu baráttumál
ÖBÍ. Vegna skorts á úrræðum stofnaði ÖBÍ fyrir-
tæki á sínum tíma til að koma til móts við þarfir
öryrkja og hafa þau skipt sköpum í daglegu lífi.
Fyrirtækin eru Brynja hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins, Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing
og Vinnustaðir ÖBÍ. Þau starfa sjálfstætt en ÖBÍ á
fulltrúa í stjórn þeirra.
Brynja - Hússjóður Öryrkjabandalagsins
Brýn þörf var á leiguhúsnæði fyrir öryrkja þegar
Hússjóður Öryrkjabandalagsins var stofnaður
árið 1966. Fyrir nokkrum árum var nafninu breytt
í Brynja - Hússjóður Öryrkjabandalagsins. Fjöldi
leiguíbúða í eigu hússjóðsins eru í dag rúmlega
700 víðsvegar um landið. Þeir sem geta sótt um
húsnæði hjá Brynju eru öryrkjar með 75% örorku-
mat og eru tekjur, eignir og félagslegar aðstæðar
lagðartil grundvallar við úthlutun. Biðlistinn eftir
húsnæði er langur en skortur er á öruggu að-
gengilegu húsnæði til leigu á viðráðanlegu verði.
Tekjustofn Brynju eru leigutekjur og framlag ÖBÍ
sem er hagnaður frá íslenskri getspá (Lottó).
35
Nauðsynlegt er fyrir Öryrkjabandalagið að fylgj-
ast með þróun í málefnum fatlaðra og er erlent
samstarf mikilvægur liður í því. ÖBÍ tekur virkan
þátt f norrænu samstarfi og innan Evrópusam-
bandsins. Slíkt samstarf virkar hvetjandi í bar-
áttunni, eykur þekkingu og víðsýni og hugmyndir
fást að leiðum til að ná settum markmiðum.
Saumastofa ÖBÍ.
Fyrirtæki ÖBÍ
Húsnæðismál öryrkja, möguleikar til atvinnu-
þátttöku og náms- og starfsendurhæfing eru þau
Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing
Hringsjá er skóli fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem
vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra
áfalla þurfa endurhæfingu til að geta stundað
nám eða vinnu. Hringsjá er staðsett í Hátúni 10d
og tók til starfa árið 1987. Þjónustusamningur
er við velferðarráðuneytið en ÖBÍ hefur stutt við
starfsemina. Hringsjá hefur skilað góðum ár-
angri. Mikil þörf er á endurhæfingu, en skólinn
annar ekki eftirspurn. Nemendur eru rúmlega
60 talsins en 20 manns eru teknir inn í skólann
tvisvar á ári. í janúar á þessu ári bárust rúmlega
100 umsóknir sem sýnir greinilega hversu mikil
þörfin er. Það er Ijóst að fjölga þarf endurhæf-
ingarúrræðum til að auka möguleka fólks til at-
vinnuþátttöku.
Vinnustaðir ÖBÍ
Starfsemi Vinnustaða ÖBÍ í Hátúni 10 hófst árið
1976. Markmið með rekstrinum er að veita fötl-
uðum einstaklingum verkþjálfun eða vinnu til
frambúðar. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 44
starfsmenn, þar af 36 fatlaðir í 18 stöðugildum.
AFMÆLISRIT ÖBÍ