Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Page 36

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Page 36
c o cn tn "ö C D E *o D C c ru E +■* íU I ■Ö c £ tn IV» f. 1 1 íHf ■ á - i • i taMWf 1 ^ f m ~ 1 ; . m J \ ■ t, /43 á A P #-:■ 1 r % '’ú 1 J •r-rm Starfsemi vinnustaðanna er þríþætt. Örtækni framleiðir og selur tengikapla fyrir tölvur og tæki tengd þeim. Þá hefur Örtækni sérhæft sig í þjónustu með tölvu- og hugbúnað fyrir blinda. Saumastofa framleiðir léttan vinnufatnað, ferm- ingar- og kórkirtla. Þá annast ræstingadeild dag- legar ræstingar á Hátúnssvæðinu og víðar. Starf- semin flytur í stærra og hentugra húsnæði í Hátúni lOc í maí sem gefur möguleika á því að fjölga fólki í verkþjálfun og endurhæfingu. Starfsfólk Örtækni. Tölvumiðstöð fatlaðra ÖBÍ er samstarfsaðili að Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF) ásamt Blindrafélaginu, Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra og Landssamtökunum Þroska- hjálp. Starfsemi TMF, sem hófst 1987, felst í ráð- gjöf fyrir fatlaðra, aðstandendur og fagfólk við val á tölvubúnaði, tölvuforritum og notkun þeirra ásamt ýmsum sérbúnaði. Þá er námskeið mikilvægur þáttur í starfseminni. TMF er til húsa á Háaleitisbraut 13, Reykjavik. Önnur starfsemi ÖBÍ er samtarfsaðili að Fjölmennt, fullorðins- fræðslu fatlaðra og Tölvumiðstöð fatlaðra ásamt öðrum félögum fatlaðra. Fjölmennt Fjölmennt, fullorðinsfræðsla fatlaða er símenn- unar- og þekkingarmiðstöð sem býður upp á fjölbreytt námskeið fyrir fólk með fötlun. Starf- semin, sem hófst 2002, hefur þróast í þá átt að styðja í auknum mæli við nemendurtil að stunda nám hjá öðrum menntastofnunum. Árlega eru um 600 nemendur hjá Fjölmennt víðs vegar um landið. Fjölmennt er rekið með þjónustusamn- ingi við ÖBI og Landssamtökin Þroskahjálp við Menntamálaráðuneytið. Starfsemin er til húsa á Vínlandsleið 14, Reykavík. Baráttan heldur áfram Eins og hér hefur komið fram er starfsemi ÖBÍ margþætt enda baráttumálin af margvíslegum toga. Margt hefur áunnist á þeim 50 árum sem liðin eru frá stofnun bandalagsins. ÖBÍ er í dag viðurkennt afl sem helstu baráttusamtök fatlaðra og öryrkja á íslandi. Baráttuverkefnin eru óþrjót- andi enda hafa stjórnvöld ekki staðið sig í að bæta réttindi og þjónustu við fatlaða, nema síður sé. Kreppan sem nú ríkir hefur haft neikvæðar afleið- ingar í för með sér en góðærið náði ekki til allra. Nauðsynlegt er að ráðamenn forgangsraði í þágu fatlaðra, öryrkja og langveikra til að þeir njóti sambærilegra lífskjara og aðrir þjóðfélagsþegnar, það eru sjálfsögð mannréttindi. Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.