Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 2
Vísindaskáldsöguþætt- irnir eru framleiddir fyrir efnisveituna Netflix. SAMFÉLAG Í tæpan áratug hefur stokkandarpar lagt leið sína að skyndibitastaðnum Hlölla við Lækjartorg til þess að sníkja sér brauð í gogginn. Milli þeirra og starfsmanna staðarins hefur mynd­ ast einstakt vinasamband. „Steggurinn er alltaf mættur hingað á undan okkur á morgnana og stekkur upp að rúðunni til þess að láta vita af sér,“ segir Guðjón Þór Valsson, starfsmaður Hlölla. Að sögn Guðjóns var kolla alltaf með steggnum í för og hófu endurnar klóku að venja komur sínar á Hlölla löngu áður en hann byrjaði sjálfur að vinna á staðnum niðri í bæ. „Þau eru líklega búin að heimsækja okkur í um áratug,“ segir Guðjón. Stegginn hafa starfsmennirnir kallað Andrés og því rökrétt að kollan heiti Andrésína. Starfs­ menn Hlölla hafi skemmt sér við að fylgjast með hegðun andanna og þá sérstaklega herramannslegri framkomu Andrésar. „Hann passaði alltaf að hún fengi fyrstu molana og byrjaði ekki að borða sjálfur fyrr en hún var orðin södd. Hann greip kannski einn og einn brauðmola en þá aðeins ef hann sá að hún sneri undan,“ segir Guðjón og hlær. Auðheyrt er að Guðjóni og öðrum starfsmönnum staðarins þyki mjög vænt um þessa vini sína. „Maður passar upp á þau eins og börnin sín. Þá sjaldan að einhver er að angra þau þá rýkur maður út til að passa upp á þau," segir Guðjón. Hin útsjónarsömu hjón sátu lengi vel ein að gnægtaborði Hlölla allt þar til að annað par fór að færa sig upp á skaftið fyrir nokkrum árum. „Það verður allt vitlaust þegar það par kemur á sama tíma og þá slást steggirnir stundum,“ segir Guðjón. Andrés hefur haft yfirhöndina í þeim slag og yfirleitt passar hitt parið sig á að koma á öðrum tíma. En sönn ást er hverful, ef hún er þá yfir höfuð til. Fyrir nokkru síðan tóku starfsmenn staðarins eftir því að Andrés og Andrésína fóru að mæta hvort í sínu lagi. Þau virðast skilin að brauði og sæng. „Þetta er mjög skrýtið. Þau koma aldrei saman lengur og þá sjaldan að það gerist heldur Andrés sig í hæfilegri fjarlægð,“ segir Guðjón. Andrés hættir sér ekki nærri fyrr en unga­ móðir hans hefur étið nægju sína. „Við erum hrædd um að þau séu skilin. Hann þorir ekki að koma nálægt henni lengur,“ segir Guðjón alvarlegur. En ljóst er að starfsmenn Hlölla munu ekki skipa sér í fylkingar í skilnaðarferlinu. Hvort sem Andrés er ekki allur þar sem hann er séður, nú eða Andrésína flagð undir fögru fiðri, þá munu starfsmenn Hlölla halda áfram að lauma að þeim góð­ gæti um ókomna tíð – bara hvoru í sínu lagi. bjornth@frettabladid.is Fráskildar endur hafa betlað Hlölla í áratug Einstakt samband hefur myndast milli starfsfólks Hlölla í miðbænum og andapars sem hefur sníkt þar brauð í tæp tíu ár. En ástin virðist illu heilli í andarslitrunum og starfsmennirnir hafa áhyggjur af fiðruðu vinum sínum. Jósep Fannar Sigurðsson og Guðjón Þór Valsson gefa Andrési brauð. Við erum hrædd um að þau sé skilin. Hann þorir ekki að koma nálægt henni lengur. Fótboltinn flautaður á að nýju Íslenski fótboltinn fór aftur af stað í gær þegar fjölmargir æfingaleikir fóru fram. Leiknismenn fengu Kórdrengi í heimsókn í fyrsta leik gærdagsins á iðjagrænu grasinu í Efra-Breiðholti. Þó nokkrir áhorfendur létu sjá sig enda fótboltaþorsti landsmanna orðinn töluverður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Veður Vestan 8-15, en allt að 18 suð- austan til fram að hádegi. Skúrir um allt land, en dregur úr úrkomu undir kvöld. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast suðaustanlands. SJÁ SÍÐU 16 Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is MENNING Undanfarnar vikur hafa tökur staðið yfir á vísindaskáld­ söguþáttunum Kötlu sem eru úr smiðju leikstjórans Baltasars Kor­ máks og eru framleiddir fyrir efnis­ veituna Netflix. Þættirnir verða alls átta talsins og mun tilkomumikil náttúra Íslands leika þar stórt hlut­ verk. Mikil leynd hefur hvílt yfir tökunum og lítið gefið upp um söguþráð þáttanna nema í grófum dráttum. Í tilkynningu um framleiðsluna á dögunum kom fram að þættirnir myndu fjalla um hvernig líf bæjar­ búa í friðsæla smábænum Vík hefði breyst mikið í kjölfar Kötlugoss. Flestir íbúar hafi neyðst til að yfir­ gefa bæinn því jökullinn nálægt eldfjallinu byrjar að bráðna. Þeir ör fáu íbú ar sem eft ir eru ná að halda sam fé lag inu gang andi og þrátt fyr ir frá bæra staðsetn ing una er bær inn nán ast orðinn að drauga bæ. Dul­ ar full ir hlut ir sem frusu djúpt inn í jök ul inn fyr ir löngu koma nú í ljós, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins leika tvær ungar konur lyk­ ilhlutverk í þáttaröðinni. Það eru leikkonan Íris Tanja Flygenring og tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, sem er betur þekkt undir listamannsnafni sínu GDRN. Þær fara með hlutverk systra sem mikið mæðir á. – ab GDRN leikur í þáttunum Kötlu Söng- og leikkonan GDRN leikur annað lykilhlutverkið í Kötlu. DÓMSMÁL Þrátt fyrir að upplýsinga­ lög gildi ekki um rannsóknir saka­ mála og saksókn er það eðlilegur hluti starfs yfirmanna lögreglu og ákæruvalds að gera fjölmiðlum nokkra grein fyrir stöðu máls meðan á rannsókn þess stendur og þeim ákvörðunum sem teknar eru. Þetta kemur fram í nýjum dómi Hæstaréttar í máli Gísla Reynisson­ ar, sem krafðist meðal annars bóta vegna ummæla fulltrúa ákæru­ valdsins og yfirlýsinga á blaða­ mannafundi um rannsókn Aserta­ málsins svokallaða. Er í dóminum vísað til dómaframkvæmdar Mann­ réttindadómstóls Evrópu um upp­ lýsingarétt almennings. Hæstiréttur féllst á kröfu Gísla um bætur vegna fjárhagslegs tjóns sem hann varð fyrir vegna kyrr­ setningar á fjármunum en hann var sýknaður árið 2014 af ákærum fyrir stórfelld brot á gjaldeyrislögum í Aserta­málinu. – aá Eiga að svara fjölmiðlum 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.