Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 14
Móðir okkar og tengdamóðir,
Selma Kjartansdóttir
á Ormsstöðum, Dalabyggð,
lést á Silfurtúni í Búðardal
þann 22. maí. Útförin fer fram frá
Staðarfellskirkju þann 6. júní klukkan 14.
Auður Baldursdóttir Grétar Sæmundsson
Unnur Baldursdóttir
Alda Baldursdóttir Tómas Sveinbjörnsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og sonur,
Guðmundur Víðir Helgason
sjávarlíffræðingur,
Hávallagötu 46, Reykjavík,
lést á Landspítalanum
laugardaginn 9. maí. Útförin verður gerð frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. maí, kl. 13.00.
Edda Guðmundsdóttir
Helgi Hrafn Guðmundsson Livia Stevaux
Kjartan Guðmundsson Kristín Rut Þórðardóttir
Hrafnkell Guðmundsson Zofia Skoroszewska
Una Katrín og Freyja
Inga Rúna Sæmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín,
dóttir, móðir okkar, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
Sigríður Kristín Pálsdóttir
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þann 12. maí. Jarðsungið verður frá
Hafnarfjarðarkirkju þann 27. maí kl. 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð
hjartadeildar Landspítalans.
Guðjón Sigurðsson
Guðrún Kristjánsdóttir
Sigurður V. Guðjónsson Ólöf Hildur Pálsdóttir
Sveinn H. Guðjónsson Sigrún Helga Ásgeirsdóttir
Valgerður Pálsdóttir
Alexander Pálsson Rannveig S. Vernharðsdóttir
Kristín Ásta, Hildur Helga og Stefán Bjarni Sigurðarbörn
Ástkær eiginkona mín,
Ludivina Arante Tan
verður jarðsungin frá Maríukirkju,
Raufarseli 4, föstudaginn 29. maí
klukkan 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vilhelm Sigurðsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Þórgnýr Þórhallsson
frá Stóra-Hamri,
Suðurbyggð 2, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 29. maí kl. 13.30.
Hekla Ragnarsdóttir
Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir
Dagný Björk Þórgnýsdóttir Sverrir Konráðsson
Inga Þöll Þórgnýsdóttir
Hekla Björt Helgadóttir
Þórgnýr Inguson
Edda Rún Sverrisdóttir
Guðrún Lóa Sverrisdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744 Eyfirskir fossar fá að njóta sín á síðunum, ég nálgast þá sem náttúruunnandi og göngu-maður og er með stuttar hug-leiðingar um hvern og einn, segir séra Svavar Alfreð Jóns-
son, sóknarprestur í Akureyrarkirkju,
um efni bókarinnar Gljúfrabúar og gilja-
dísir sem kemur út hjá Hólum á næstu
dögum. Hann kveðst hafa opnað sýn-
ingu á fossamyndum á fimmtugsafmæli
sínu, 29. október 2010, sem hafi verið vel
tekið á Akureyri, Dalvík, Kópavogi og
Bochum í Þýskalandi. „Þá höfðum við,
ég og vinur minn, Gísli Gunnlaugsson,
lagst í heilmiklar fossagöngur mánuð-
ina á undan. Í framhaldinu kviknaði
hugmyndin um að gefa myndirnar út í
bókarformi. Nú, á öðru stórafmælisári,
verður sú hugmynd að veruleika.“
Allir eru fossarnir aðgengilegir, að
sögn séra Svavars. „Fólk þarf ekki að
leggja í neinar svaðilfarir eða langar
göngur til að skoða þá. En það er betra
að vera ekki einn. Ég lenti einu sinni í að
vera nærri kominn í sjálfheldu á syllu og
var utan GSM-sambands.“
Ég bið hann að nefna mér nokkra
fossa. „Sá hæsti er í Myrká í Myrkárdal
og heitir Geirufoss, Geira var síðasta
tröllskessa á Íslandi og henni tengist
þjóðsaga. Einn líkist brúðartertu í lag-
inu en hann heitir því rómantíska nafni
Hesthússfoss og er í á sem heitir því
frumlega nafni Fossá! Svo af því hinn
frægi Goðafoss er í næstu sýslu þá verð
ég að geta þess að við eigum tvo Goða-
fossa í Eyjafirði. Annar er í Svarfaðar-
dal og hinn frammi á Mjaðmardal, sá
heitir Litli Goðafoss af því Eyfirðingar
eru svo hógværir. Eyfirsku fossarnir eru
að minnsta kosti hógværir og þeir eru
miklu fleiri en þeir sem eru í bókinni en
f lestir eru nafnlausir í sinni hógværð,“
segir klerkur.
Séra Svavar mælir með giljagöngum.
„Það er gefandi að labba gil, þar er fugla-
líf og fallegur gróður enda skjólgott í
giljum og sérstök angan. Með bókinni
minni bendi ég á að einn af kostum þess
að búa á Íslandi er að aldrei þarf að fara
langt til að upplifa einstaka náttúru-
stemningu og það eru forréttindi.“
gun@frettabladid.is
Gefandi að labba um gil
Gljúfrabúar og giljadísir er ævintýralegt nafn á ljósmyndabók sem Svavar Alfreð
Jónsson, sóknarprestur á Akureyri, er að gefa út. Hún birtir okkur 50 eyfirska fossa.
Fossakönnuðirnir Gísli og bókarhöfundurinn séra Svavar við Fiskilækjarfoss í Fiskilækjarhverfi í Eyjafirði.
Merkisatburðir
1056 Fyrsti íslenski biskupinn, Ísleifur Gissurarson, er
vígður til Skálholts.
1929 Þorsteinn, fyrsti björgunarbátur Íslands, er vígður í
Reykjavík.
1968 Hægri umferð gengur í gildi á Íslandi.
1972 Nixon og Bresnjev undirrita samninga um fækkun
langdrægra kjarnaflauga og gegn kjarnaskotflaugum.
2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT