Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 18
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Á þjónustuverkstæði Sleggjunnar er boðið upp á viðgerðir á bremsum, véla- og rafmagnsviðgerðir og við- gerðir á hjóla- og drif búnaði. Auk almennrar viðgerðarþjónustu á stórum tækjum, vörubílum og tengivögnum er Sleggjan með smurþjónustu fyrir stóra bíla og vinnuvélar. „Við erum með mjög gott smurverkstæði og þjónustum ýmiss konar atvinnubíla eins og sendibíla og f lutningabíla auk vinnuvéla. En það hafa líka verið að koma inn hjá okkur minni tæki, eins og litlar gröfur sem við höfum þjónustað. Við smíðum líka glussaslöngur í öll tæki,“ segir Grétar Agnarsson, þjónustustjóri hjá Sleggjunni. Sleggjan býður viðskiptavinum sínum þá þjónustu að sækja aftanívagna og bíla og skila aftur að lokinni viðgerð. „Við sækjum bílana og tækin, gerum við þau og förum með þau í skoðun. Svo skilum við þeim aftur á sama stað,“ útskýrir Grétar. Stuttur biðtími „Við erum þekktir fyrir að vera með stuttan biðtíma. Það er mjög algengt í þessum bransa að þú þurfir að panta tíma með viku, jafnvel tveggja vikna fyrirvara. En við reynum að taka alla inn sem fyrst og þjónusta eins vel og við mögulega getum. Við höfum þjónustað mikið af rútum en við getum bilanagreint f lest allar gerðir atvinnutækja,“ segir Grétar. „Við erum með mjög gott og samkeppnishæft tölvukerfi til bilanagreininga. Oft er hringt í mig og ég hef sent mann á staðinn samdægurs til að lesa úr. Við höfum farið á furðulegustu staði í bænum þar sem bíllinn eða atvinnutækið er stopp og hjálpað við að f lytja það í burtu.“ Áratuga reynsla Sleggjan er þrjátíu ára gamalt fyrirtæki en fyrir rúmlega einu og hálfu ári f lutti það á nýjan stað. Fyrirtækið fór úr 290 fermetra rými í Vogahverfi í Reykjavík í 2.300 fermetra rými í Mosfellsbæ. Fyrirtækið hét áður Vörubíla- og vinnuvélaverkstæðið en eftir f lutningana var nafninu breytt í Sleggjan í minningu Björns Guð- mundssonar, stofnanda fyrir- tækisins. „Þetta er samt sama fyrirtækið og hefur haft sömu kennitölu frá upphafi. Stækkunin eftir f lutning- ana er gríðarleg. Við höfum farið frá því að vera með tvær vinnu- hurðir upp í tíu. Viðtökurnar á nýja staðnum hafa verið frábærar og það hefur verið gríðarlega mikið að gera,“ segir Grétar. „Við erum gamlir í þessum bransa og fáum gríðarlega mikið af símtölum frá öðrum fyrir- tækjum og umboðum sem óska eftir aðstoð okkar. Til að svona fyrirtæki gangi svona lengi þarf góðan mannskap. Við erum mjög heppnir að vera með góða menn í vinnu sem hafa verið hjá okkur lengi en ég hef sjálfur verið hér í 23 ár. Við erum sérhæfðir í bremsu- viðgerðum og öðru, sérstaklega í aftanívögnum. Ég hef sjálfur verið í þeim viðgerðum í 30 ár þó ég sé nú ekki orðinn gamall. En við getum alltaf bætt við okkur góðu fólki í vinnu og erum þessa stundina að leita að starfsmanni á atvinnubíla- verkstæðið okkar.“ Nánari uppslýsingar á sleggjan.is og tímapantanir í síma: 588 4970 Verkstæði Sleggjunnar er vel tækjum búið. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Sleggjan flutti í nýtt og mun stærra rými í Mosfells- bænum fyrir einu og hálfu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sleggjan er með smurverkstæði og alhliða viðgerðarþjónustu fyrir stórar bifreiðar. Fyrirtækið þjónustar flestar gerðir atvinnubifreiða og vinnuvéla af mikilli fagmennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sleggjan er 30 ára gamalt fyrirtæki og flestir starfs- mennirnir hafa mikla og góða reynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Framhald af forsíðu ➛ Við sækjum bílana og tækin, gerum við þau og förum með þau í skoðun. Svo skilum við þeim aftur á sama stað. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.