Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 14
Móðir okkar og tengdamóðir, Selma Kjartansdóttir á Ormsstöðum, Dalabyggð, lést á Silfurtúni í Búðardal þann 22. maí. Útförin fer fram frá Staðarfellskirkju þann 6. júní klukkan 14. Auður Baldursdóttir Grétar Sæmundsson Unnur Baldursdóttir Alda Baldursdóttir Tómas Sveinbjörnsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og sonur, Guðmundur Víðir Helgason sjávarlíffræðingur, Hávallagötu 46, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 9. maí. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. maí, kl. 13.00. Edda Guðmundsdóttir Helgi Hrafn Guðmundsson Livia Stevaux Kjartan Guðmundsson Kristín Rut Þórðardóttir Hrafnkell Guðmundsson Zofia Skoroszewska Una Katrín og Freyja Inga Rúna Sæmundsdóttir Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, Sigríður Kristín Pálsdóttir lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 12. maí. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju þann 27. maí kl. 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð hjartadeildar Landspítalans. Guðjón Sigurðsson Guðrún Kristjánsdóttir Sigurður V. Guðjónsson Ólöf Hildur Pálsdóttir Sveinn H. Guðjónsson Sigrún Helga Ásgeirsdóttir Valgerður Pálsdóttir Alexander Pálsson Rannveig S. Vernharðsdóttir Kristín Ásta, Hildur Helga og Stefán Bjarni Sigurðarbörn Ástkær eiginkona mín, Ludivina Arante Tan verður jarðsungin frá Maríukirkju, Raufarseli 4, föstudaginn 29. maí klukkan 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Vilhelm Sigurðsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þórgnýr Þórhallsson frá Stóra-Hamri, Suðurbyggð 2, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29. maí kl. 13.30. Hekla Ragnarsdóttir Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir Dagný Björk Þórgnýsdóttir Sverrir Konráðsson Inga Þöll Þórgnýsdóttir Hekla Björt Helgadóttir Þórgnýr Inguson Edda Rún Sverrisdóttir Guðrún Lóa Sverrisdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Eyfirskir fossar fá að njóta sín á síðunum, ég nálgast þá sem náttúruunnandi og göngu-maður og er með stuttar hug-leiðingar um hvern og einn, segir séra Svavar Alfreð Jóns- son, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, um efni bókarinnar Gljúfrabúar og gilja- dísir sem kemur út hjá Hólum á næstu dögum. Hann kveðst hafa opnað sýn- ingu á fossamyndum á fimmtugsafmæli sínu, 29. október 2010, sem hafi verið vel tekið á Akureyri, Dalvík, Kópavogi og Bochum í Þýskalandi. „Þá höfðum við, ég og vinur minn, Gísli Gunnlaugsson, lagst í heilmiklar fossagöngur mánuð- ina á undan. Í framhaldinu kviknaði hugmyndin um að gefa myndirnar út í bókarformi. Nú, á öðru stórafmælisári, verður sú hugmynd að veruleika.“ Allir eru fossarnir aðgengilegir, að sögn séra Svavars. „Fólk þarf ekki að leggja í neinar svaðilfarir eða langar göngur til að skoða þá. En það er betra að vera ekki einn. Ég lenti einu sinni í að vera nærri kominn í sjálfheldu á syllu og var utan GSM-sambands.“ Ég bið hann að nefna mér nokkra fossa. „Sá hæsti er í Myrká í Myrkárdal og heitir Geirufoss, Geira var síðasta tröllskessa á Íslandi og henni tengist þjóðsaga. Einn líkist brúðartertu í lag- inu en hann heitir því rómantíska nafni Hesthússfoss og er í á sem heitir því frumlega nafni Fossá! Svo af því hinn frægi Goðafoss er í næstu sýslu þá verð ég að geta þess að við eigum tvo Goða- fossa í Eyjafirði. Annar er í Svarfaðar- dal og hinn frammi á Mjaðmardal, sá heitir Litli Goðafoss af því Eyfirðingar eru svo hógværir. Eyfirsku fossarnir eru að minnsta kosti hógværir og þeir eru miklu fleiri en þeir sem eru í bókinni en f lestir eru nafnlausir í sinni hógværð,“ segir klerkur. Séra Svavar mælir með giljagöngum. „Það er gefandi að labba gil, þar er fugla- líf og fallegur gróður enda skjólgott í giljum og sérstök angan. Með bókinni minni bendi ég á að einn af kostum þess að búa á Íslandi er að aldrei þarf að fara langt til að upplifa einstaka náttúru- stemningu og það eru forréttindi.“ gun@frettabladid.is Gefandi að labba um gil Gljúfrabúar og giljadísir er ævintýralegt nafn á ljósmyndabók sem Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur á Akureyri, er að gefa út. Hún birtir okkur 50 eyfirska fossa. Fossakönnuðirnir Gísli og bókarhöfundurinn séra Svavar við Fiskilækjarfoss í Fiskilækjarhverfi í Eyjafirði. Merkisatburðir 1056 Fyrsti íslenski biskupinn, Ísleifur Gissurarson, er vígður til Skálholts. 1929 Þorsteinn, fyrsti björgunarbátur Íslands, er vígður í Reykjavík. 1968 Hægri umferð gengur í gildi á Íslandi. 1972 Nixon og Bresnjev undirrita samninga um fækkun langdrægra kjarnaflauga og gegn kjarnaskotflaugum. 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.