Fréttablaðið - 26.05.2020, Page 4

Fréttablaðið - 26.05.2020, Page 4
Kulnunin sjálf er ekki heilsubrestur en afleiðingar hennar geta birst sem heilsu- brestir. Linda Bára Lýðsdóttir Maðurinn er sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur börnum á aldrinum sex til sjö ára. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 VERÐ FRÁ: 11.990.000 KR. JEEP® WRANGLER RUBICON • BENSÍN 273 HÖ / DÍSEL 200 HÖ • 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • ROCK-TRACK® FJÓRHJÓLADRIF • SELECT-TRAC® MILLIKASSI • TRU-LOCK® 100% DRIFLÆSINGAR AÐ FRAMAN OG AFTAN • AFTENGJANLEG JAFNVÆGISSTÖNG AÐ FRAMAN • HEAVY DUTY FRAM- OG AFTURHÁSING • BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ FÁANLEGUR MEÐ 35”, 37” EÐA 40” BREYTINGU Á ALVÖRU JEPPA MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI STAÐALBÚNAÐUR M.A.: FERÐASTU UM ÍSLANDALLT BÍLL Á MYND: JEEP® WRANGLER RUBICON 35” BREYTTUR VINNUMARKAÐUR „Ég get ekki sagt í dag hvert algengi kulnunar er hér á landi því okkur vantar betri skil- greiningu á fyrirbærinu til þess að rannsaka það,“ segir Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðingur hjá VIRK. Í dag fer fram fundur á vegum VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftir- litsins þar sem rætt verður um kuln- un. Fundurinn fer fram á netinu og er streymt á síðum stofnananna þriggja. Christina Maslach, prófessor við Berkley-háskóla og einn helsti sér- fræðingur heims í vinnutengdri kulnun, er gestur á fundinum og segir Linda hana frumkvöðul í fræð- unum. „Í erindi hennar og rann- sóknum kemur mjög skýrt fram að kulnun er ekki sjúkdómur heldur er um að ræða fyrirbæri sem stafar af aðstæðum í vinnu,“ segir Linda. Samkvæmt nýjustu stuðlum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) hefur skilgreining á kulnun breyst, nú er kulnun skilgreind sem vandamál tengt atvinnu eða atvinnuleysi. „Kulnun er samkvæmt skilgrein- ingu WHO og Christinu af leiðing langvarandi streitu á vinnustað sem ekki hefur tekist að ná stjórn á. Ein- kennin eru orkuleysi eða örmögn- un, andleg fjarvera, neikvæðni eða tortryggni tengt vinnustaðnum og minni afköst í vinnu,“ útskýrir Linda. Hún segir mikilvægt að líta á kulnun sem fyrirbæri tengt vinnu- staðnum en ekki sjúkdóm. „Kuln- unin sjálf er ekki heilsubrestur en af leiðingar hennar geta birst sem heilsubrestir,“ segir hún og tekur dæmi um bresti í formi minnis- skerðingar, athyglisbrest s og þreytu. Þá segir hún það geta tekið langan tíma að jafna sig á kulnun. „Það getur tekið um tvö ár, jafnvel meira.“ Stöðuna á íslenskum vinnu- markaði segir Linda að sé erfitt að meta en að líklega séu færri með kulnun en haldið hefur verið, margir séu þó með einkenni kuln- unar. „Við höfum verið að benda á það að margir sem telja sig vera með kulnun eru það ekki heldur búa við of mikið álag, kulnun er næsta stig. Það er mikið álag á Íslandi en álag og kulnun er ekki það sama, kulnun er mjög alvarlegt ástand,“ segir hún. „Orðið hefur fengið á sig mjög víðtæka merkingu og er orðið hálf- gert regnhlífarhugtak yfir þreytu og andlegt álag. Með því að skilgreina það betur og sjá þátt vinnustaðarins í kulnun er auðveldara að ná utan um það,“ segir Linda og bætir við að mikilvægt sé að vinnustaðurinn sinni starfsfólki vel og passi upp á aðstæður á vinnustaðnum. „Skilaboðin okkar eru þau að vinnustaðirnir þurfa að koma inn í þetta með okkur, ábyrgðin liggur ekki bara hjá einstaklingnum, en í gegnum tíðina hefur það verið þannig að einstaklingurinn hefur þurft að taka fulla ábyrgð á sinni líðan,“ segir Linda. Hún segir mikilvægt að vinnu- staðurinn hugi að stjórnun og álagi. „Ef einstaklingur leitar til að mynda til okkar og fer í endur- hæfingu sem gengur vel er erfitt að senda hann aftur í sama starfið og sömu aðstæður, eitthvað verður að breytast,“ segir Linda. „Það eru oft að koma mörg tilfelli á sama vinnu- staðnum sem sýnir okkur þátt hans í þessi ástandi.“ birnadrofn@frettabladid.is Vinnustaðir eiga þátt í kulnun Samkvæmt rannsóknum prófessors við Berkley-háskóla eiga vinnustaðir stóran þátt í kulnun starfsmanna sinna. Sálfræðingur hjá VIRK segir hugtakið ekki vel skilgreint. Fleiri telja sig kulnaða en eru það í raun. Linda segir að mikið beri á kulnun í þjónustustéttum, eins og til dæmis í þjónustuverum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FISKELDI Fiskeldisstöðvar munu þurfa að tilkynna sig sjálfar ef þrjár kynþroska kvenlýs eru taldar að meðaltali á hverjum fiski tvö talningartímabil í röð. Rekstrar- leyfishafi mun tilkynna til Mat- vælastofnunar, sem metur hvort og þá hvaða aðgerða er þörf. Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum um breytingu á reglugerð um velferð lagardýra, varnir gegn sjúkdómum og heilbrigðiseftirlit með eldisstöðvum. Í umsögn Erlends Steinars Frið- rikssonar sjávarútvegsfræðings og Jóhannesar Sturlaugssonar líffræð- ings eru tekin dæmi um hvernig staðan er annars staðar í heiminum. Í Noregi er miðað við 0,5 lýs á hvern fisk og benda þeir á að gjald verði lagt á fiskeldisiðnaðinn sem tengist fjölda lúsa. Því f leiri lýs, því hærra gjald. Í Færeyjum er verið að lækka viðbragðsgildi vegna lúsar úr 2 fullorðnum kvenkyns lúsum niður í 1,5. Á Írlandi er viðbragðsgildið árstíðatengt og tengt við göngutíma seiða laxfiska. Gildið er frá 0,3 til 2 kvenkyns lýs á lax og í Skotlandi var viðmiðið þrjár lýs en þar er verið að lækka það niður í tvær. „Þetta er mikið áhyggjuefni þar sem þrjár lýs á hvern fisk er mjög mikið og í raun mun hærra heldur en reglugerðir í öðrum löndum kveða á um. Þetta bendir til þess að reglugerðir fyrir þennan iðnað verði til þess að iðnaðurinn getur sjálfur séð um allt eftirlit og þeir staðlar sem iðnaðurinn þarf að fara eftir eru veikir,“ segir í umsögninni. – bb Laxeldið fær að vakta sig sjálft Fiskeldið á Íslandi skapar miklar tekjur. MYND/ERLENDUR GÍSLASON LÖGREGLUMÁL Starfsmaður á frí- stundaheimilinu Hraunseli í Hafn- arfirði er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur nemendum í 1. bekk í síðustu viku. Greint var fyrst frá málinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hraunsel er frístundaheimili fyrir börn á aldrinum sex til níu ára sem stunda nám í Hraunvallaskóla. Maðurinn hefur verið leystur frá störfum á meðan rannsókn málsins stendur yfir og neitar hann alfarið sök. Lögreglu barst tilkynning frá Barnaspítala Hringsins fyrir viku um hugsanlegt k y nferðisbrot mannsins gegn barni. Við rannsókn kom í ljós að um er að ræða tvö börn á aldrinum sex til sjö ára. Er hann einnig sakaður um hafa hótað börn- unum. Lögregla tók skýrslu af mann- inum og framkvæmdi húsleit á heimili hans. Við leitina var lagt hald á fartölvu hans og síma. Héraðsdómur Reykjaness féllst á fimm daga gæsluvarðhald yfir manninum. Landsréttur felldi úrskurðinn úr gildi á föstudag og taldi að lögregla hefði ekki sýnt fram á að rannsóknarhagsmunir krefðust þess að hann sætti gæsluvarðhaldi áfram. Verður honum sleppt úr gæsluvarðhaldi klukkan 16 í dag. Fram kemur í bréfi skólastjóra Hraunvallaskóla til foreldra að málið sé litið afar alvarlegum augum. Búið sé að kalla til utanað- komandi fagaðila og virkja áfalla- hjálparteymi skólans. – eþá Starfsmanni frístundaheimilisins sleppt úr haldi í dag Landsréttur felldi úr gildi úrskurð héraðsdóms. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.