Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 6
Stefnandinn reynir að draga upp mynd af Jóhanni Helgasyni sem auralausum tónlistarmanni en hefur þó ekki komið fram með snefil af sönn- unargögnum til að styðja það. Úr greinargerð lögmanna Warner og Universal Ævintýrið hefst í Brimborg! Kauptu eða leigðu ferðabílinn fyrir sumarævintýrið Kauptu nýjan eða notaðan ferðabíl eða leigðu sumarbílinn í Brimborg. Öll bílaþjónusta á einum stað. Byrjaðu ævintýrið í Brimborg! Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 og 8 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 DÓMSMÁL Lögmenn Universal og Warner halda fast í þá kröfu að Jóhann Helgason greiði jafnvirði 48 milljóna króna í málskostnað eftir að dómari í Los Angeles vísaði frá lagastuldarmáli hans um Söknuð og You Raise Me Up. Í greinargerð lögmanna Warner og Universal er öllum rökum lögmanns Jóhanns, Michaels Machat, gegn því að hann verði dæmdur til að borga lögmannskostnað fyrirtækjanna, hafnað. Segja þeir meðal annars um rökin að þau séu „fjarstæðukennd“ og „öldungis fávísleg“. Varðandi þá röksemd Machat að ekki sé hægt að gera kröfu á Jóhann um málskostnað þar sem and- stæðingar hans hafi ekki gefið slíkt til kynna fyrirfram, segja lögmenn fyrirtækjanna það ekki hafa laga- lega þýðingu og auk þess vera rangt. Í öllu falli hafi þeir í febrúar 2019 sagst mundu krefjast greiðslu fyrir útlagðan kostnað. Lögmennirnir ræða ítarlega um að Jóhanni ætti að hafa verið löngu ljóst að bæði Söknuður og You Raise Me Up væru byggð á írska þjóðlaginu Danny Boy og að ekki hafi verið sýnt fram á annað. Þess vegna hafi Jóhann ekki verið í góðri trú í málsókn sinni. „Það eru einnig sannanir fyrir því að stefnandinn [Jóhann] hafi lagt í þessa málsókn í vondri trú til að þvinga fram óréttlætanlega sáttargjörð,“ segja lögmennirnir. Þeir kveða lögmann Jóhanns hafa, áður en málið hófst, haft í hótunum með orðum um að málaferli á þessu sviði væru oftast langdregin og dýr og „þannig reynt að ná sátt um upp- hæð sem væri aðeins lægri en sá mikli málskostnaður sem stefnand- inn vissi að hinir stefndu myndu neyðast til að leggja í þrátt fyrir að enginn grundvöllur væri fyrir kröfu stefnandans.“ Enn fremur hafna lögmennirnir fullyrðingu um að þeir séu að reyna að hræða eða sverta Jóhann. Ætlunin sé eingöngu að fá fyrir kostnaði sem neyðst hafi verið að efna til vegna stefnu Jóhanns sem skorti grundvöll „til að fæla aðra svipaða tækifæris- sinna“ frá því að stofna til slíkra mála í framtíðinni. Það þjóni markmiðum laga um höfundarrétt að hvetja aðra sem stefnt sé í tilefnislausum laga- stuldarmálum að mæta þeim af mikilli hörku því ella hafi slík mál kæfandi sköpun nýrra verka. „Stefn- andinn reynir að draga upp mynd af Jóhanni Helgasyni sem auralausum tónlistarmanni en hefur þó ekki komið fram með snefil af sönnunar- gögnum til að styðja það,“ segja lög- menn tónlistarfyrirtækjanna. Einnig efast lögmennirnir um það sem þeir segja vera fullyrðingar Jóhanns um skort á fjárhagslegum miðlum. Hann haldi því fram að hann hafi samið frægasta lagið á Íslandi og hafi haft efni á að stofna sérstakt félag skömmu fyrir málaferl- in til að verja sig gegn hugsanlegum málskostnaðarkröfum. „Stefnandinn er augljóslega ekki sá sveltandi lista- maður sem hann gefur sig út fyrir að vera.“ gar@frettabladid.is Jóhann Helgason sagður reyna að kúga fé út úr tónlistarrisum Lögmaður Jóhanns Helgasonar er sagður öldungis fávís og Jóhanni sjálfum lýst sem fégráðugum lukku­ riddara í nýrri greinargerð lögmanna tónlistarrisanna Warner og Universal. Þeir halda til streitu kröfu um að Jóhann borgi 48 milljóna króna kostnað þeirra í málinu um lögin Söknuð og You Raise Me Up. Jóhann Helgason er sagður draga upp ranga mynd af sér. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR VINNUMARKAÐUR „Við ætlum að blanda saman reynslu og fræðum og skoða hvernig við getum leyst þau viðfangsefni sem við stöndum frammi fyrir í þessari kreppu. Hvernig við gerum það sem best og breytum samfélaginu þannig að það sé meiri jöfnuður og velsæld fyrir alla,“ segir Kristín Heba Gísla- dóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar vinnu- markaðarins. Varða stendur fyrir opnum hádegisfundi í dag í gegnum Zoom þar sem rætt verður um leiðir gegn niðurbroti stéttarfélaganna. „Markmiðið er svo að standa fyrir rannsóknum á vinnumarkaði en við erum enn þá að skoða hvernig við forgangsröðum því og hvaða leiðir eru bestar. Það er hitt megin- markmið Vörðu fyrir utan að miðla fræðum og þekkingu á vinnumark- aði.“ Kristín Heba segir að niðurbrot stéttarfélaga, sem á ensku kall- ist „Union busting“, sé vel þekkt í Bandaríkjunum en sem betur fer ekki hér á landi. „Þetta er þegar reynt er að minnka samstöðu launafólks og grafa undan grund- velli stéttarfélaga.“ Hægt er að nálgast hlekk á fund- inn á Facebook-síðu Vörðu en hann hefst klukkan 12.30. „Fundurinn verður líka tekinn upp þannig að þeir sem ekki geta verið fyrir framan tölvuna geta horft seinna. Við stefnum svo á að vera með fleiri hádegisfundi fram í miðjan júní,“ segir Kristín Heba. – sar Ræða niðurbrot stéttarfélaga á opnum fundi Frá kröfugöngu stéttarfélaganna. Það er hópur í greiningarvinnu á ástandinu og á að skila þeirri vinnu af sér eftir um það bil tvær vikur. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitar- stjórnarráðherra STJÓRNSÝSLA Ríkið skoðar mögu- leikann á að styrkja þau sveitar fé lög sem fara verst út úr niður sveiflunni, vegna COVID-19, með beinum fjár- styrkjum. Sam kvæmt svart sýnustu spá Ferða mála stofu og KPMG er gert ráð fyrir 69 prósenta sam drætti í ferðaþjónustu. Sam kvæmt minnis blaði Byggða- stofnunar um á hrif hruns ferða- þjónustunnar í landinu á sveitar- fé lögin segir að breytingar á at vinnu stigi og at vinnu tekjum hafi mikil á hrif á út svars stofn sveitar- fé laganna. Árið 2018 voru at vinnu- tekjur ríf lega 80 prósent af út svars- stofninum. Karl Björns son, fram kvæmda- stjóri Sam bands ís lenskra sveitar- fé laga, segir að ýmsar að gerðir í að- gerða pökkunum sem ríkis stjórnin hefur kynnt muni gagnast sveitar- fé lögunum. „En við erum á fram í miklum við ræðum við ríkið um út færslu og for gangs röðun ef það kemur til meiri stuðningur, sem við erum að kalla eftir,“ segir hann. Karl segir að beinir fjár styrkir til þeirra sveitar fé laga sem verða verst stödd hafi komið til tals. „Það hefur verið nefnt. Hjá því verði varla komist. Þar sem at vinnu leysi er komið yfir 50 prósent sjá allir að það hlýtur eitt hvað að bresta.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir að þessi möguleiki sé til skoð- unar en að vinnan sé á byrjunar- stigi: „Það er hópur í greiningar- vinnu á ástandinu og á að skila þeirri vinnu af sér eftir um það bil tvær vikur,“ segir Sigurður Ingi. „Svo erum við líka með mat Byggðastofnunar, sem sýnir að staðan er grafalvarleg hjá mörgum og það kemur því líka til greina að grípa til sértækra aðgerða þar sem vandinn er mestur.“ – ókp Ríkið skoðar beina fjárstyrki til verst stöddu sveitarfélaganna 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.