Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 12
FÓTBOLTI Augu knattspyrnuheims-
ins færast til Dortmund í dag þegar
sjóðheitir heimamenn taka á móti
Bayern München í toppslag þýska
boltans. Líkt og í síðustu leikjum
verða engir áhorfendur á vellinum
en það hefur ekki truf lað liðin til
þessa, sem hafa unnið síðustu tvo
leiki sannfærandi.
Dortmund hefur ekki tapað leik
á heimavelli á þessu tímabili og
fengið 30 stig af 39 mögulegum á
sama tíma á meðan Bæjarar eru
með besta útivallarárangurinn í
deildinni. Bæjarar myndu ef laust
fegnir þiggja stigið ef þeim væri
boðið það enda með fjögurra stiga
forskot á Dortmund og sjö stiga
forskot á næstu lið. Með sigri í dag
færi Bayern langt með að tryggja
sér áttunda meistaratitilinn í röð
en Dortmund getur hleypt spennu
í titilbaráttuna á ný. – kpt
Titillinn undir
í Dortmund
Witsel og Muller eigast við í fyrri
leik liðanna. MYND/EPA
KÖRFUBOLTI KR boðaði til blaða-
mannafundar í gær þar sem til-
kynnt var um nýtt þjálfarateymi
félagsins í körfubolta. Darri Freyr
Atlason tekur við karlaliðinu af
Inga Þór Steinþórssyni og Francisco
Garcia tekur við kvennaliðinu af
Benedikt Guðmundssyni.
Darri stýrði áður kvennaliði Vals
með góðum árangri en Francisco
hefur unnið fyrir Skallagrím und-
anfarin ár. – kpt
KR búið að
finna þjálfara
FÓTBOLTI Leið franska sóknar-
tengiliðsins Ousmane Dembele á
toppinn var skjót en hún virðist
vera jafn fljót niður á við. Spænskir
fjölmiðlar fullyrtu um helgina að
forráðamenn Barcelona væru til-
búnir að samþykkja tilboð upp á
38 milljónir í franska landsliðs-
manninn, innan við þremur árum
eftir að félagið samþykkti að greiða
Dortmund allt að 145 milljónir fyrir
Dembele.
Sumarið 2017 var tvítugur Dem-
bele einn af eftirsóttustu leikmönn-
um heims. Það voru ekki tvö ár
liðin síðan hann lék fyrsta leik sinn
fyrir Rennes í franska boltanum og
hafði hann heillað öll stærstu lið
Evrópu, fyrst með Rennes og síðan
með Dortmund. Franski landsliðs-
maðurinn var valinn nýliði ársins
í Þýskalandi og valinn í úrvalslið
tímabilsins í deildinni.
Það var ljóst að Börsungar voru
örvæntingarfullir fyrir þremur
árum þegar þeir lögðu inn tilboð í
franska landsliðsmanninn. Félag-
ið var nýbúið að selja Neymar fyrir
metfé og var því enginn skortur á
aurum í Katalóníu. Fyrir vikið gátu
forráðamenn Dortmund farið fram
á hvaða upphæð sem er og náðu að
nífalda það sem þeir greiddu sjálfir
ári áður. Sjálfur var Dembele ekk-
ert að fara leynt með áhuga sinn á
að yfirgefa Dortmund við fyrsta
tækifæri og neitaði að æfa með
liðsfélögum sínum áður en tilboð
Barcelona var samþykkt.
Börsungar neyddust til að greiða
uppsett verð og fengu sinn mann
ekki fyrr en rétt fyrir lok félags-
skiptagluggans. Dembele fékk
treyju númer ellefu, sem var áður í
eigu Neymar, og var honum ætlað
að taka stað brasilíska sóknar-
mannsins í sóknarþríeykinu með
Lionel Messi og Luis Suarez. Hann
fékk enga óskabyrjun í treyju Barce-
lona því hann meiddist snemma og
kom aðeins við sögu í 27 leikjum á
fyrsta tímabili sínu. Ekki það sem
ætlast var til af næsta kyndilbera
sóknarleiks Barcelona og arftaka
Neymar hjá félaginu.
Það reyndist gefa góða mynd af
framtíð Dembele hjá Barcelona.
Hann hefur átt í stöðugri baráttu
við að haldast heill og ratað meira
í fjölmiðla fyrir vandræði utan
vallar heldur en afrek innan hans.
Ernesto Valverde, þáverandi knatt-
spyrnustjóri Barcelona, þurfti oft að
svara fyrir agabrot Dembele þegar
fjölmiðlar fullyrtu að hann hefði
verið við tölvuleikjaspilun fram
eftir nóttu.
Oftar en einu sinni kom það fyrir
að Dembele af boðaði sig á æfingar
félagsins vegna veikinda en lækna-
teymi Barcelona fann ekkert við
nánari skoðun samdægurs. Þegar
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari
Frakklands, var spurður út í aga-
vandamálin sagðist hann glíma við
sama vandamál og skoraði á Dem-
bele að axla ábyrgð til að sóa ekki
ferlinum hjá spænska stórveldinu.
Nú virðist sem hann verði eitt af
fórnarlömbum næsta félagsskipta-
glugga hjá Barcelona, sem þarf að
létta á launaskránni ásamt því að
safna aurum til að styrkja liðið
næsta sumar. Líklegt er að eitthvað
af stóru liðum Evrópu sé tilbúið að
gefa Dembele annað tækifæri í von
um að hann nái að sýna sitt rétta
andlit en ljóst er að hann á ekki
mörg tækifæri eftir til að sanna sig í
þessum gæðaflokki.
kristinnpall@frettabladid.is
Aldrei tekist að fylla skarðið
Það tók Ousmane Dembele ekki tvö ár frá eldskírninni að semja við Barcelona sem næstdýrasti leik-
maður sögunnar. Þremur árum seinna er hann falur fyrir fjórðung þess sem Börsungar borguðu.
Lionel Messi ræðir við Dembele eftir að franski landsliðsmaðurinn meiddist fyrr í vetur. MYND/GETTY
Það er ekkert nýtt
að Dembele mæti of
seint á skipulagða viðburði.
Hjá okkur er afsökunin oft
sú að hann sé ekki sá eini.
Didier Deschamps, þjálfari Frakk-
lands, um hegðunarvanda Dembele
Frábær vinnukraftur!
Birt m
eð fyrirvara um
verð- og textabrengl.
3.137.000 kr.
VIVARO CARGO
Listaverð 3.890.000 kr.
Verð
án vsk. 4.024.000 kr.
VIVARO COMBI - 6 – 9 manna
Listaverð 4.990.000 kr. Listaverð 5.490.000 kr.
Verð
án vsk.2.411.000 kr.
COMBO CARGO
Listaverð 2.990.000 kr.
Verð
án vsk. 4.427.000 kr.
MOVANO CARGO
Verð
án vsk.
Bílabúð Benna hækkar ekki verð
Einnig hagstæð kjör í langtímaleigu
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
Opið virka daga frá 12 til 17
Verið velkomin í reynsluakstur
GENGIÐ
FRYSTUM
opel.is
2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT