Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 20
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Árni er með flest á hreinu, meira að segja tilurð sína. „Ég er getinn og borinn á Rauðalæk sem er lítið þorp rétt vestan við Hellu, sama þorp og gárungarnir hafa kallað Landa­ læk.“ Hann minnist þess að hafa eytt löngum tíma í bílskúr föður síns á sínum yngri árum. „Ég sleit barnsskónum í bílskúrnum hjá pabba en hann var bifreiðasmiður og bifvélavirki. Pabbi var mjög fær viðgerðamaður en hann var afleitur bílstjóri. Nafnið mitt fékk ég frá ömmubróður mínum, Árna Pálssyni, sem var fyrsti lærði bif­ reiðasmiðurinn á Íslandi og einn stofnenda Bílasmiðjunnar sem var og hét.“ Það vantar ekki hógværðina. „Ég er yngstur og langsætastur í ann­ ars f lottum fimm systkina hópi.“ Það er nóg um að vera hjá Árna og fjölskyldu. „Í dag bý ég í Riddara­ garði í Ásahrepp ásamt eiginkonu minni, Elínu Grétarsdóttur, og börnum. Mitt aðalstarf er að eiga og reka fyrirtækið Snilldarverk ásamt því sem við hjónin höfum starfað sem fósturforeldrar síðastliðin 15 ár, með smá hléum þó.“ Lékst þú þér með vinnubíla sem barn? „Já, og geri enn. Vinnan er alltaf leikur, þó verkefni dagsins geti verið misskemmtileg. Stærsta breytingin er kannski sú að leik­ félagarnir eru allir á launaskrá hjá mér og við erum úti að leika milli átta og sex á daginn.“ Hvenær kviknaði áhuginn? „Áhuginn hefur alltaf blundað undir niðri, ég man eftir því að horfa á alla traktora og vinnuvélar sem áttu leið um þorpið. Þegar ég var átta eða níu ára var pabbi að leysa af á Kaupfélagsbílnum við að keyra út vörur frá pakkhúsinu á Rauðalæk. Ég man eftir því þegar ég fékk að keyra í fyrsta skipti upp Rangárvelli á Heklubæina. Það var mikil upplifun þó ég næði varla utan um stýrið eða niður á pedalana. Ég fór líka oft með pabba í viðgerðartúra á sveitabæina þar sem hann var að gera við traktora og aðrar vinnuvélar. Stundum fékk kallinn eitt og eitt staup og þá var pjakkurinn látinn keyra heim, sem þætti ekki til eftirbreytni í dag. Ég var strax þá orðinn miklu betri bíl­ stjóri en pabbi.“ Er þetta í fjölskyldunni? „Ég veit ekki um neinn sem starfar sem vélaverktaki eða í vörubílaútgerð í fjölskyldunni svo að öllum líkindum er það einhver genagalli að velja sér þennan starfs­ vettvang.“ Hefur þú keppt í gröfukeppni/fimi af einhverju tagi? „Nei, ég hef ekki keppt í neinu slíku og það er ekki á dagskrá. Hins vegar keppti ég í rallýkrossi á Mözdunni hennar mömmu þegar ég var búinn að vera með bílpróf í sex daga. Eftir á að hyggja var það sennilega fljótfærni þar sem Mazdan hætti allri sinni þjónustu við fjölskylduna eftir það og þakkir fékk ég fáar. Ég keppti í torfæru, fyrsta keppnin var 1993 og þá síðustu tók ég 1998. Ég náði þeim merka áfanga að verða bikarmeist­ ari í torfæru 1995 á Gömlu götukell­ ingunni, en það hét torfærubíllinn sem ég smíðaði mér. Titillinn kom ekki út af framúrskarandi getu eða hæfileikum heldur voru aðrir keppendur þetta árið afskaplega óheppnir.“ Hefur þú lent í háska? „Ég get játað að oft á ferlinum hef ég kannski verið full glanna­ legur en fyrir guðs mildi hefur það alltaf farið nokkuð vel. Ég lenti þó í eftirminnilegu slysi í Vatnsfells­ virkjun þegar eitt inntaksrörið, u.þ.b. 36 tonna járnstykki, féll á mig. Ég klemmdist þar fastur og hægri fótur nánast klemmdist í sundur fyrir ofan hné. Ég gæti trúað að það hafi komið hátt í hundrað manns að því að losa mig og gekk það undursamlega vel. Ég man að þegar var búið að losa mig þá var læknirinn á svæðinu svo stressuð að hún gat ekki sprautað í mig morfíni og endirinn varð sá að einn gröfukallinn dældi því í mig. Í fram­ haldi af því var ég fluttur suður með þyrlu á Landspítalann. Þegar maður hugsar til baka þá er ég óendanlega þakklátur fyrir að búa á Íslandi þar sem mikið er af fagfólki. Allt gekk lyginni líkast og batinn eftir því.“ Hvaða eiginleikum er gott að vera gæddur til að ráða við stór tæki? „Eftir því sem tækin eru stærri er oft þægilegra að vinna með þau og þau fara betur með mann. En númer eitt, tvö og þrjú er að vera vakandi yfir umhverfinu til þess að valda ekki tjóni eða skaða.“ Varð strax betri bílstjóri en pabbi Árni Pálsson hefur verið hugfanginn af traktorum og vinnuvélum frá því að hann var barn. Hann segir bæði þægilegra og öruggara að stýra vinnuvélum og tækjum eftir því sem tækin eru stærri. Árni Pálsson er yngstur og að eigin sögn langsætastur af fimm systkinum. Landsbankinn býður fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri hagstæðar leiðir við fjármögnun á nýjum og notuðum atvinnutækjum og bifreiðum. Hagstæð tækjafjármögnun landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn 4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.