Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 21
Það er ekki á hverjum degi sem trukkaframleiðandi kynnir algjöra endurnýjun á bíla
flota sínum, enda liðin 20 ár síðan
þýski framleiðandinn MAN gerði
slíkt. Það þarf mikinn undirbún
ing til að standa að endurnýjun
á öllum flota stórframleiðanda
sem MAN er og þar fór fyrirtækið
skynsama og jafnframt óvenjulega
leið, þ.e. að draga viðskiptavini
sína til samstarfs og ráðgjafar um
hvað mætti enn betur fara við
framleiðsluna.
Sú vinna tók nokkur ár, en hvað
er betra en að láta viðskiptavinina
ráða ferðinni? Það mættu fleiri fyr
irtæki gera. Afraksturinn virðist
líka harla góður og endurspeglar
gott gengi MAN trukkaframleið
andans. Alls var MAN í samstarfi
við 700 stóra viðskiptavini sína frá
árinu 2014 til að þróa endurbætur
á bílunum og ekki síst var það til
þess gert að bæta vinnuumhverfi
ökumanna og er alveg ótrúlegt að
sjá hversu vel getur farið um þá
í bílum MAN, bæði hvað varðar
akstur þeirra, en líka hvað varðar
hvíld ökumanna á milli aksturs.
12 milljónir vinnustunda
Svo stórt verkefni var þessi
heildarendurnýjun flotans að það
fóru 12 milljónir vinnustunda
starfsmanna MAN í verkefnið og
þar af 167.000 stundir einungis í
hönnun þeirra. Þá voru eknir 4
milljónir kílómetra við prófanir
á nýju bílunum, um 22.000 nýir
íhlutir í bílana smíðaðir og alls
skrifaðar 2,8 milljónir hugbún
aðaruppfærslna til að bæta virkni
þeirra.
Samhliða þessari þróun fór
fram heildarútskipting á vél
búnaði bíla MAN sem allar upp
fylla EURO 6 staðalinn og hefur
haft í för með sér allt að 8% minni
eldsneytisþörf þeirra. Þessar nýju
vélar nefnir MAN EURO 6d og
leysa þær af hólmi EURO 6c vélar
MAN, sem þó voru góðar og spar
neytnar.
Hafa tekið stafræna nýjustu
tækni í sína þjónustu
MAN hefur á síðustu árum
sannarlega tekið stafræna tækni
í sína þjónustu og stafræna tækni
bílanna, sem meðal annars lætur
vita af fyrirhuguðum viðhalds
aðgerðum, sem sparar mikið í
viðhaldi trukkanna og tryggir
hámarks nýtingu þeirra. Á þessu
sviði standa framleiðendur vinnu
tækja mun framar framleiðendum
fólksbíla og þarna má segja að
MAN sé leiðandi á meðal fram
leiðenda atvinnutækja.
Svo vel segist MAN hafa lukkast
til við þróun sinna bíla í sam
starfi við sína viðskiptavini að
sölumenn þeirra þurfa aðeins að
selja fyrsta bílinn af hverri gerð en
restin selst einfaldlega með orð
rómi um bílana. Það fer því ekki
mikill tími hjá sölumönnum MAN
í markaðsfærslur heldur fer tíminn
í að sérhanna hvern bíl að þörfum
hvers viðskiptavinar og setja pant
anir í kerfið. Fremur öfundsverð
staða þar.
Langt á undan lögbundnum
kröfum um öruggan akstur
Meðal nýjunga í bílum MAN er
„Turn Assist“ aðstoðarkerfi sem
varar ökumenn við nærliggjandi
umferð og tryggir öruggari akstur.
Þetta kerfi er nú tilbúið einum
4 árum áður en lögboðin krafa
verður gerð um slíkan búnað. Með
þessum nýju bílum MAN hefur
verið lögð gríðarmikil áhersla á
þægindi fyrir ökumenn og eins og
áður sagði er hreint magnað að sjá
hversu vel er hugsað fyrir öllum
þörfum ökumanna í akstri með
einföldun stjórntækja, frábærum
sætum og f lottu vinnuumhverfi.
Rúsínan í pylsuendanum er svo
Allur floti MAN
endurnýjaður
Fyrr á árinu frumsýndi þýski trukkaframleiðandinn MAN
endurnýjaða útgáfu af öllum sínum bílgerðum. Mikil
vinna liggur að baki slíkri frumsýningu sem stóð í 6 ár og
kostaði 12 milljónir vinnustunda. MAN valdi að draga
mörg hundruð viðskiptavini sína að þróun nýju bílanna.
Alls var MAN
í samstarfi
við 700 stóra
viðskiptavini
sína frá árinu
2014 til að þróa
endurbætur á
bílunum.
MAN hefur á síðustu árum sannarlega tekið stafræna tækni í sína þjónustu
og stafræna tækni bílanna. Þeir eru þægilegir í akstri og nútímalegir að gerð.
Nýju MAN bílarnir sem kynntir voru fyrr á árinu.
Snjallbúnaður í bílnum gerir lífið skemmtilegra fyrir ökumanninn á ferð.
Þægindin fyrir
ökumanninn
eru í hávegum
höfð í nýjustu
bílunum og
með öllu því
nýjasta.
það umhverfi sem þeim er skapað
milli aksturs. Svefnaðstaða,
geymsluhólf, búnaður til af þrey
ingar, samskipti, geymsla matvæla
og drykkja og eldun er orðin svo
frábær að undrun sætir og dregur
úr vorkunnsemi í garð þeirra sem
sinna þessum krefjandi störfum
sem akstur trukka felur í sér.
Viðvarandi skortur á trukka-
bílstjórum í Þýskalandi
En talandi um trukkabílstjóra þá
er viðvarandi skortur á trukka
bílstjórum víða um heim. Það á
við í heimalandi MAN, Þýska
landi, en þar er talið að skorti um
150.000 nýja bílstjóra á næstu 2
árum. Sama staða er víða uppi og
ekki vantar þá færri í hinum stóru
Bandaríkjunum sem og víðar í víð
lendri Evrópu.
MAN kynnti hina nýju trukka
línu sína fyrr á árinu í Baska
borginni Bilbao á Spáni og naut
greinarritari þess að vera við
staddur og ekki skemmdi stað
setningin fyrir. Bilbao hefur breyst
á undanförnum áratugum úr
fremur sóðalegri borg í gullfallegt
stolt héraðsins, sem meðal annars
skartar stórglæsilegu Guggen
heimsafni í einni fallegustu bygg
ingu álfunnar.
Auðeknir 40 tonna trukkar
En trukkar MAN stálu senunni
þessa daga sem kynning þeirra
fór fram og þeir sem njóta þess
að berja augum flotta flutninga
bíla fengu sitt þessa daga. Að auki
bauðst öllum blaðamönnum
sem sóttu kynninguna að prófa
trukkana og það þurfti ekki mikið
að hvetja undirritaðan til prófunar
á þeim.
Það sætir furðu hversu þægilegt
og auðvelt það er fyrir hinn venju
lega mann, sem jafnvel er ekki
með meirapróf, að stjórna þessum
fullkomnu bílum sem vega allt
að 40 tonnum. Afl þeirra vekur
einnig furðu, vistlegt innanrými
þeirra sem er enginn eftirbátur vel
hannaðra fólksbíla, en umfram
allt hversu vel fer um ökumann.
KYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 6 . M A Í 2 0 2 0 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR