Fréttablaðið - 26.05.2020, Page 44
að fara með fólk í Lofthelli. „Við
getum boðið ferðir fyrir færri
eða fleiri, til dæmis komast sex-
tán í Hummer og ellefu manns í
Ford Excursion. Einnig eru í boði
breyttir Land Cruiser 120 og Ford
Econoline.“
Sungið fyrir ferðamenn
Þegar Stefán er spurður hvort
hann taki lagið í ferðunum viður-
kennir hann að það komi fyrir.
„Stundum þegar farið er í norður-
ljósaferðir og skyggni er lélegt er
gott að bresta í söng fyrir ferða-
mennina sem sárabætur. Ég hef
laumast með gítarinn í kirkjuna
hér og fer síðan með fólkið þangað
ef engin eru norðurljósin. Slík
uppákoma reddar kvöldinu. Ég
hef sungið í Lofthelli, þar sem
er gríðarlega góður hljómur, við
góðar undirtektir. Lofthellir er
skemmtilegasta ferðin sem ég
fer í. Fólk er að sjá eitthvað nýtt
allan tímann. Þessi hellir er allt
öðruvísi en maður sér víðast hvar,
hann er einstakur. Þetta er hraun-
hellir með ísmyndun sem skapar
magnað andrúmsloft. Ég er búinn
að fara þangað í meira en hundrað
ferðir og það er alltaf eitthvað sem
kemur mér á óvart. Ég hef einnig
farið í hellinn með tónlistarmenn
frá Austurríki sem tóku upp tóna
í hellinum þegar droparnir falla,“
segir Stefán en ekki er hægt að
fara í Lofthelli nema með leið-
sögumanni. „Íslendingar ættu að
vera duglegri að ferðast eins og
útlendingar og sjá þessa mögnuðu
staði sem leynast eins og við
Mývatn,“ bætir hann við.
Ný plata á leiðinni
Dimma hefur ekki setið auðum
höndum. Ný plata er í vinnslu og
mun líta dagsins ljós á næstunni
þótt ákveðin dagsetning sé ekki
komin. „Tónlistarlífið er hægt og
rólega að vakna með slökun á sam-
komutakmörkunum. Afmæli og
minni viðburðir eru að detta inn.
Landsmenn bíða eftir því að geta
haft gaman aftur og vonandi stytt-
ist í að við getum boðað eitthvað
stærra,“ segir söngvarinn.
Ég hef einnig farið í
hellinn með tón-
listarmenn frá Austur-
ríki sem tóku upp tóna í
hellinum þegar drop-
arnir falla.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE
RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir vörubíla. Veldu vöru frá gæða-
framleiðanda sem hentar íslenskum aðstæðum.
Hafið samband við sérfræðinga Olís í síma 515 1100
eða pontun@olis.is og fáið nánari upplýsingar.
Stefán segir að aksturinn sé aukastarf með tónlistinni. „Ég er með rútupróf en hef
aðallega verið að keyra ferðamenn
á míní-rútum, breyttum jeppum
og slíkum tryllitækjum. Ég er bæði
leiðsögumaður og ökumaður
í ferðunum,“ segir hann. „Ég er
búsettur í Mývatnssveit og þegar
ég fór í meiraprófið var það til að
drýgja tekjurnar þegar lítið var
að gera í tónlistinni. Þessi vinna
er bæði skemmtileg og hentar vel
með tónlistinni. Það versta er að
báðar þessar atvinnugreinar hafa
verið í núlli undanfarna mánuði,“
segir hann. „Ég hef í staðinn haft
tíma til að vera með fjölskyldunni,
dytta að húsinu og garðinum, sem
oft hefur setið á hakanum. En
nú er þetta komið gott,“ greinir
Stefán frá en aðallega hefur hann
verið með ferðamenn frá Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Bretlandi og
Frakklandi en fólk kemur þó frá
öllum heimshornum.
„Ég fer mest um á breyttum
jeppum þar sem ferðir mínar eru
upp á hálendið, upp á Öskju, í
hella skoðun og þess háttar ferðir.
Ég gæti sagt ótal áhugaverðar
sögur úr þessum ferðum þótt ég
láti það vera hér,“ segir Stefán og
bætir við að nálægð við fólkið sé
töluverð þegar farið er í svona
ferðir því þær séu fámennar.
Undur jarðar við Mývatn
„Ég hef fengið frábær viðbrögð við
þessum ferðum. Þær eru oft klæð-
skerasaumaðar fyrir hvern hóp og
stundum getur maður leyft sér að
ráða svolítið ferðinni. Íslendingar
hafa ekki verið í þessum ferðum
en vonandi breytist það í sumar.
Fáir landsmenn hafa upplifað
þau undur jarðar sem verða á vegi
okkar á þessum slóðum,“ segir
hann. „Það er til dæmis stórkost-
legt að koma í Lofthelli og upplifa
náttúruna þar, sem er alltaf að
breytast og kemur manni sífellt á
óvart.“
Fyrir þá sem vilja upplifa ævin-
týri úti í náttúrunni með Stefáni
geta sett sig í samband við GEO-
Travel á Mývatni en hann starfar
fyrir það fyrirtæki. Fyrirtækið
býður upp á alls kyns ferðir og er
eina fyrirtækið sem hefur leyfi til
Ekur trukkum um hálendið
Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu, hefur ekið með ferðamenn í rúm sjö ár í Mývatnssveit og
þar í kring. Stefán ekur litlum rútum, breyttum jeppum og 16 manna Hummer í ferðunum.
Stefán Jakobsson söngvari hefur búið í Mývatnssveit frá barnsaldri. Hann ekur ferðamönnum
að ýmsum náttúruperlum í sveitinni og vonast til að sjá fleiri Íslendinga í sumar.
Hummerinn sem Stefán ekur er vígalegur trukkur.
Uppáhaldsstaður Stefáns er Lofthellir. Hann segir
magnað að koma þangað og að hellirinn sé aldrei eins.
12 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR