Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 46
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Áratugareynsla starfsmanna fyrirtækisins gerir það að verkum að þjónustan er
afar fagleg. Gaukur Pétursson
hefur starfað hjá fyrirtækinu
frá árinu 1992 en hann er í dag
eigandi ásamt Þórði Gunnarssyni.
Báðir búa þeir yfir mikilli þekk-
ingu á varahlutum þegar kemur
að stærri bílum og tengivögnum.
Það var Óskar Alfreðsson sem
stofnaði fyrirtækið á sínum tíma
og sérhæfði sig fyrst og fremst í
tengivögnum til að byrja með.
„Á þeim tíma var engin þjónusta
fyrir stóra trailera enda voru ekki
margir slíkir hér á landi,“ segir
Gaukur. Síðan hefur fyrirtækið
vaxið og dafnað en það varð 40
ára árið 2018, að sögn Gauks, en
þeir Þórður keyptu fyrirtækið árið
2006. Ósal er í rúmgóðu húsnæði á
Tangarhöfða.
„Við erum með mikið úrval alls
kyns varahluta fyrir vörubifreiðar
og stóra vörutengivagna. Áherslan
hefur alltaf verið á gæðavöru.
Við erum ekki með alla varahluti
heldur höfum sérhæft okkur í
bremsu- og fjaðrakerfum vörubíla
og tengivagna. Ósal sinnir öllum
tegundum vörubíla og tengivagna,“
segir Gaukur. „Þetta geta verið
margs konar tengivagnar, jafnt
innlendir sem erlendir. Helstu
vöruflokkar okkar eru loftpúðar,
bremsuskálar, -diskar, -borðar
og -klossar. Við sérhæfum okkur
eingöngu í stórum tengivögnum
en erum ekki með vörur fyrir
minni fólksbílakerrur eða tjald-
vagna. Öxlar sem við bjóðum hafa
burðargetu frá níu tonnum og upp
Sérhæfð varahlutaverslun í 40 ár
Varahlutaverslunin Ósal hefur verið starfandi frá árinu 1978 og hefur sérhæft sig í varahlutaþjón-
ustu fyrir vörubíla og tengivagna frá stofnun. Fyrirtækið hefur alltaf verið staðsett á sama stað.
Eigendur
Ósal, Gaukur
Pétursson og
Þórður Gunn-
arsson, ásamt
starfsmönn-
unum Gunnari
Þórðarsyni og
Ragnheiði Kr.
Sigurðardóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Lengsta mótorhjól í heimi er 26,29 metra langt. Það var búið til af Indverjanum Bharat
Sinh Parmar. Hjólið var frumsýnt
og mælt þann 22. janúar árið 2014.
Það er fjórum metrum lengra en
hjólið sem átti fyrr met í lengd.
Bharat þurfti að sýna fram á að
hjólið virkaði eins og venjulegt
mótorhjól með því að aka því 100
metra án þess að fætur hans snertu
jörðina.
Minnsta mótorhjól í heimi var
smíðað í Svíþjóð árið 2003. Fram-
hjólið á því er ekki nema 16 mm
að þvermáli og afturhjólið er 22
mm. Maðurinn sem á heiðurinn
af smíðinni heitir Tom Wilberg
en hann ók hjólinu yfir 10 metra.
Hjólið getur komist upp í tveggja
kílómetra hraða en vélin er 0,22
kW.
Metið í f lestum farþegum á
mótorhjóli á ferð var slegið á Ind-
landi þann 19. nóvember árið 2017.
Þann dag komu 58 manns sér fyrir
á einu mótorhjóli, þar með var
fyrra met bætt um tvo farþega.
Finnarnir Lantinen Jouni og
Pitkänen Matti slógu met í að
skipta hratt um sæti á mótorhjóli
á ferð í júlí árið 2001. Þeir skiptu
um sæti á 4,18 sekúndum á meðan
þeir óku mótorhjólinu á 140 km
hraða.
Fyrsta tvöfalda aftur á bak
heljarstökkið á mótorhjóli var gert
í Bandaríkjunum í ágúst árið 2006.
það var Bandaríkjamaðurinn
Travis Pastrana sem afrekaði það á
ESPN X leikunum í Los Angeles.
Hæsta ökuhæfa mótorhjólið sem
mælt hefur verið er 5,10 metrar
frá jörðu og upp að toppnum á
stýrinu. Mótorhjólið var smíðað
af Ítalanum Fabio Reggiani og því
var ekið yfir 100 metra í mars árið
2012. Hjólið er 10,03 metra langt og
er með 5,7 lítra V8 vél.
Metið fyrir hæsta stökk á mótor-
hjóli var slegið þann 21. janúar
árið 2001. Þá náði Bandaríkja-
maðurinn Tommy Clowers 7,62
metra háu stökki á mótorhjóli
ofan af 3,04 metra rampi með 12,19
metra atrennu.
Barber Vintage Motorsports
safnið í Birmingham, Alabama,
hýsir heimsins mesta fjölda
gamalla og nýrra mótorhjóla. Þar
er hægt að skoða 1.398 mótorhjól
í yfir 13.375 fermetra, fimm hæða
byggingu. Heimsmetið var staðfest
þann 19. mars 2014.
Metið fyrir mesta hraða sem
náðst hefur á mótorhjóli er 605,697
kílómetrar á klukkustund. Metið
var slegið þann 25. september
árið 2010. Metið var meðalhraði
í tveimur tilraunum. En hjólið
fór hraðast upp í 634 kílómetra
á klukkustund. Methafinn er
Bandaríkjamaðurinn Rocky
Robinson.
Fjölbreytt mótorhjólamet
Heimsmetabók Guinness heldur skrá um heimsmet sem slegin hafa verið með mótorhjólum.
Allt frá hraða-, hástökks-, hæðar- og lengdarmetum upp í met í að búa til myndir úr hjólunum.
Ástralski mótorhjólakappinn Jack Field fer aftur á bak heljarstökk á hjóli á þaki háhýsis. MYND/GETTY
Við erum með
mikið úrval alls
kyns varahluta fyrir
vörubifreiðar og stóra
vörutengivagna. Áhersl-
an hefur alltaf verið á
gæðavöru.
úr,“ útskýrir Gaukur. „Við höfum
útbúið skrá eftir skráningarnúmeri
bíls eða vagns þar sem skráist allt
sem keypt er í viðkomandi tæki hjá
okkur og hver kaupir. Með því að
safna sögunni einföldum við vara-
hlutaþjónustuna.“
Einungis er boðið upp á varahluti
frá þekktum framleiðendum og má
þar meðal annarra nefna vagnöxla
frá BPW sem er þýskt fyrirtæki
og einnig franska merkinu SAE.
Við höfum boðið dráttarstóla og
aðrar vörur frá Jost og dráttar-
króka og aðrar vörur frá Rockinger.
Sömuleiðis erum við með sturtu-
tjakka frá Edbro og loftpúða frá
Continental og Prime Ride. Þá
erum við með plastbretti frá Green-
flex og Parlock, bremsuhluti frá
Frazle og bremsuskálar og -diska
frá Winnard. Við bjóðum upp á
Loftventla fyrir vörubíla og vagna
frá WABCO-KNORR og HALDEX.
Það er því úr miklu úrvali að velja,“
segir Gaukur en verslunin er afar
sérhæfð á þessu sviði.
Nánar má kynna sér Ósal á heima-
síðunni osal.is en verslunin er
að Tangarhöfða 4 og síminn er
515-7200.
14 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR