Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 1
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008
UMFERÐASLYS
VINNUSLYS
FRÍTÍMASLYS
Opnunartími Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Opnum snemma
lokum seint
Fljótlegt, einfalt og virkilega gott!
Billys Pan Pizza
170 gr - Original
eða Pepperoni
33%
199
kr/stk
áður
299 kr
Plús
33 cl
79
kr/stk
áður
179 kr
55%
Knorr Snack Pot
4 tegundir
299
kr/stk
áður
429 kr
30%
„Það sem einkennir baráttu okkar
Suðurnesjamanna við Covid 19
veiruna er samstaðan. Allir sem einn
eru staðráðnir í að gera allt sem þeir
geta til útrýma þessari óáran og draga
úr neikvæðum áhrifum. Hvort sem
það er fólk sem heldur sig heima í
sóttkví, virðir samkomubann, starfs-
fólk HSS, starfsfólk fyrirtækja eða
sveitarfélaganna; allir eru að leggja sig
fram,“ segir Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Hann segir að sveitarfélögin á Suður-
nesjum séu þessa dagana að ræða hvað
þau geta gert til að mæta ástandinu.
„Þar ræður miklu hversu lengi plágan
varir. Því fyrr sem henni líkur því betra.
Því betur sem íbúar fylgja fyrirmælum
Almannavarna, Sóttvarnalæknis og
Landlæknis því betra. Við lifum nú
ástand sem er ólíkt öllu sem við höfum
áður þekkt. Þetta hefur ekki gerst áður.
Ekki svona. Á hverjum degi þurfum við
að tileinka okkur nýja hluti og bregðast
við breyttum aðstæðum.
Hertar reglur um samkomubann eru
í okkar eigin þágu. Það skiptir miklu
máli að við tökum höndum saman og
förum að þeim fyrirmælum sem gefin
eru hverju sinni sinni.
Öll él styttir upp um síðir. Áður en
við vitum af verður farið að vora og
hlutirnir færast í eðlilegt horf. Þangað
til og um alla framtíð er mikilvægt að
við sýnum samstöðu, öll sem eitt,“ segir
bæjarstjórinn.
Samstaða mikilvæg
— í þessu tímabundna ástandi, segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Fáðu Víkurfréttir í tölvupósti!
Skráðu póstfangið þitt á vef Víkurfrétta, vf.is
Starfsemi dagdvalanna á Nesvöllum
og í Selinu í Reykjanesbæ lokar frá
deginum í dag, 24. mars og sett hefur
verið upp þjónustuáætlun fyrir þá
sem fá þjónustuna heima á meðan
annað hvort í formi símavitjana eða
heimavitjana.
Þetta kemur fram í fundargerð
Neyðarstjórnar Reykjanesbæjar frá
mánudeginum 23. Mars. Þar kemur
fram að áhersla verði lögð á að sam-
þætta þjónustuna við heimahjúkrun
og heimaþjónustu þannig að hægt sé
að veita nauðsynlega þjónustu með
aðkomu færri. Jafnframt verður boðið
upp á heimsendingu matar fyrir þá
sem þess óska.
Sundlaugum, öllum íþróttamann-
virkjum og fleiri stöðum og stofn-
unum á Suðurnesjum hefur verið
lokað. Skólastarf er takmarkað í
grunnskólum, flestir leikskólar opnir
og fjarkennsla er í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Duus Safnahús og Hljómahöll hafa
lokað sem og fleiri menningarstofn-
anir á Suðurnesjum en félagsmiðstöðin
Fjörheimar er opin fjórum sinnum í
viku en öll dagskrá fer fram í gegnum
netið og boðið upp á ýmsa skemmti-
lega viðburði.
„Ég held að segja megi að þetta gangi
nokkuð vel og hafi farið vel af stað. Það
er mikið álag sem fylgir þessu fyrir
kennara ekki síður en nemendur að
skipta svona allt í einu yfir í að kenna og
aðstoða gegnum netið,“ segir Kristján
Ásmundsson, skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Vinnumálastofnun býður upp á opna
símatíma með pólskumælandi starfs-
manni alla virka daga á milli kl. 13 og
15. Búið að upplýsa um það á pólsku
Facebook síðu Reykjanesbæjar, Po-
lacy na Reykjanes. Ábendingar hafa
borist um að upplýsingar um ástandið á
tímum COVID-19 hafi ekki borist nógu
mikið til útlendinga á Suðurnesjum.
„Ég er með fimmtán útlendinga í vinnu
og þeir vita ekki neitt um stöðuna nema
það sem ég segi þeim,“ sagði eigandi
fyrirtækis í Reykjanesbæ við VF.
Opinn símatími
fyrir Pólverja
„Miðill er manns gaman“ er vonandi ekki orðatiltæki sem
leysir af hólmi hið gamalkunna „maður er manns gaman“ en
þegar fólkið kemst ekki til okkar förum við til fólksins,“ segir
Þórdís Ósk Helgadóttir skrifstofustjóri Súlunnar verkefnastofu
í Reykjanesbæ. Þar vísar Þórdís í sameiginlegt framtak menn-
ingarstofnana bæjarins í samkomubanni, að færa menninguna
heim til fólks á meðan það hefur ekki kost á að stunda hana með öðrum
hætti. Þórdís segir yfir 50 viðburði af ýmsum toga í undirbúningi hjá þeim
og munu þeir líta dagsins ljós jafnt og þétt á meðan á samkomubanni stendur.
NÁNAR Á SÍÐUM 8 - 9
„Miðill er manns gaman“
í Reykjanesbæ í samkomubanni
Víða lokað
Dagdvölum lokað
Farfuglarnir bíða af sér veiruna
Fastur á
skemmtiferða-
skipi á Kyrrahafi
Hallur Hallsson,
lögreglumaður úr Keflavík:
VIÐTAL Á SÍÐUM 40-41
Þessir farfuglar eru með mikilvægustu fuglum Íslendinga. Icelandair hefur yfir að ráða um þrjátíu slíkum en nú eru aðeins örfáir á ferð. Margir þeirra eru komnir
í óumbeðið frí og bíða þess að komast í háloftin á ný. Þessir fjórir stálfuglar eru á Keflavíkurflugvelli, rétt hjá flugturninum. Fleiri myndir inni í blaðinu.
VF-MYND/PKET.
fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222