Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 1
Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér að leita réttar þíns TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA HAFÐU SAMBAND 511 5008 UMFERÐASLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Opnum snemma lokum seint Fljótlegt, einfalt og virkilega gott! Billys Pan Pizza 170 gr - Original eða Pepperoni 33% 199 kr/stk áður 299 kr Plús 33 cl 79 kr/stk áður 179 kr 55% Knorr Snack Pot 4 tegundir 299 kr/stk áður 429 kr 30% „Það sem einkennir baráttu okkar Suðurnesjamanna við Covid 19 veiruna er samstaðan. Allir sem einn eru staðráðnir í að gera allt sem þeir geta til útrýma þessari óáran og draga úr neikvæðum áhrifum. Hvort sem það er fólk sem heldur sig heima í sóttkví, virðir samkomubann, starfs- fólk HSS, starfsfólk fyrirtækja eða sveitarfélaganna; allir eru að leggja sig fram,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Hann segir að sveitarfélögin á Suður- nesjum séu þessa dagana að ræða hvað þau geta gert til að mæta ástandinu. „Þar ræður miklu hversu lengi plágan varir. Því fyrr sem henni líkur því betra. Því betur sem íbúar fylgja fyrirmælum Almannavarna, Sóttvarnalæknis og Landlæknis því betra. Við lifum nú ástand sem er ólíkt öllu sem við höfum áður þekkt. Þetta hefur ekki gerst áður. Ekki svona. Á hverjum degi þurfum við að tileinka okkur nýja hluti og bregðast við breyttum aðstæðum. Hertar reglur um samkomubann eru í okkar eigin þágu. Það skiptir miklu máli að við tökum höndum saman og förum að þeim fyrirmælum sem gefin eru hverju sinni sinni. Öll él styttir upp um síðir. Áður en við vitum af verður farið að vora og hlutirnir færast í eðlilegt horf. Þangað til og um alla framtíð er mikilvægt að við sýnum samstöðu, öll sem eitt,“ segir bæjarstjórinn. Samstaða mikilvæg — í þessu tímabundna ástandi, segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar Fáðu Víkurfréttir í tölvupósti! Skráðu póstfangið þitt á vef Víkurfrétta, vf.is Starfsemi dagdvalanna á Nesvöllum og í Selinu í Reykjanesbæ lokar frá deginum í dag, 24. mars og sett hefur verið upp þjónustuáætlun fyrir þá sem fá þjónustuna heima á meðan annað hvort í formi símavitjana eða heimavitjana. Þetta kemur fram í fundargerð Neyðarstjórnar Reykjanesbæjar frá mánudeginum 23. Mars. Þar kemur fram að áhersla verði lögð á að sam- þætta þjónustuna við heimahjúkrun og heimaþjónustu þannig að hægt sé að veita nauðsynlega þjónustu með aðkomu færri. Jafnframt verður boðið upp á heimsendingu matar fyrir þá sem þess óska. Sundlaugum, öllum íþróttamann- virkjum og fleiri stöðum og stofn- unum á Suðurnesjum hefur verið lokað. Skólastarf er takmarkað í grunnskólum, flestir leikskólar opnir og fjarkennsla er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Duus Safnahús og Hljómahöll hafa lokað sem og fleiri menningarstofn- anir á Suðurnesjum en félagsmiðstöðin Fjörheimar er opin fjórum sinnum í viku en öll dagskrá fer fram í gegnum netið og boðið upp á ýmsa skemmti- lega viðburði. „Ég held að segja megi að þetta gangi nokkuð vel og hafi farið vel af stað. Það er mikið álag sem fylgir þessu fyrir kennara ekki síður en nemendur að skipta svona allt í einu yfir í að kenna og aðstoða gegnum netið,“ segir Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Vinnumálastofnun býður upp á opna símatíma með pólskumælandi starfs- manni alla virka daga á milli kl. 13 og 15. Búið að upplýsa um það á pólsku Facebook síðu Reykjanesbæjar, Po- lacy na Reykjanes. Ábendingar hafa borist um að upplýsingar um ástandið á tímum COVID-19 hafi ekki borist nógu mikið til útlendinga á Suðurnesjum. „Ég er með fimmtán útlendinga í vinnu og þeir vita ekki neitt um stöðuna nema það sem ég segi þeim,“ sagði eigandi fyrirtækis í Reykjanesbæ við VF. Opinn símatími fyrir Pólverja „Miðill er manns gaman“ er vonandi ekki orðatiltæki sem leysir af hólmi hið gamalkunna „maður er manns gaman“ en þegar fólkið kemst ekki til okkar förum við til fólksins,“ segir Þórdís Ósk Helgadóttir skrifstofustjóri Súlunnar verkefnastofu í Reykjanesbæ. Þar vísar Þórdís í sameiginlegt framtak menn- ingarstofnana bæjarins í samkomubanni, að færa menninguna heim til fólks á meðan það hefur ekki kost á að stunda hana með öðrum hætti. Þórdís segir yfir 50 viðburði af ýmsum toga í undirbúningi hjá þeim og munu þeir líta dagsins ljós jafnt og þétt á meðan á samkomubanni stendur. NÁNAR Á SÍÐUM 8 - 9 „Miðill er manns gaman“ í Reykjanesbæ í samkomubanni Víða lokað Dagdvölum lokað Farfuglarnir bíða af sér veiruna Fastur á skemmtiferða- skipi á Kyrrahafi Hallur Hallsson, lögreglumaður úr Keflavík: VIÐTAL Á SÍÐUM 40-41 Þessir farfuglar eru með mikilvægustu fuglum Íslendinga. Icelandair hefur yfir að ráða um þrjátíu slíkum en nú eru aðeins örfáir á ferð. Margir þeirra eru komnir í óumbeðið frí og bíða þess að komast í háloftin á ný. Þessir fjórir stálfuglar eru á Keflavíkurflugvelli, rétt hjá flugturninum. Fleiri myndir inni í blaðinu. VF-MYND/PKET. fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.