Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 4
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
Erum að taka út fimm ára þróun
á næstu þremur mánuðum
„Netsala hefur margfaldast hjá Nettó. Höfum bætt við fólki og bílum“,
segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa
„Á hverjum degi koma nýjar áskoranir og okkur
hefur tekist að aðlaga verkferla okkar og skipulag
að þessum breyttu aðstæðum. Eins og staðan er nú
er allt að tveggja sólahringa bið eftir afgreiðslu hjá
okkur en það er heldur stuttur tími samanborið við
Danmörku og England þar sem er allt að tveggja
vikna bið eftir matvörum úr netverslun.“
„Salan hefur margfaldast og álagið hefur verið það mikið
að loka hefur þurft á netverslunina, því miður, á köflum.
Netverslun á Suðurnesjum fór hægt af staði í byrjun
enda stutt í næstu verslun en hefur aukist jafnt og þétt,“
segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa.
Hvernig eruð þið að gera þetta hér
á Suðurnesjum og hvað eru margir
starfsmenn að sinna þessu?
Viðskiptavinir panta í gegnum Net-
verslunarsíðuna okkar inn á www.netto.
is. Við tökum til pöntunina og sendum
SMS þegar hún er tilbúin. Hægt er að
sækja í verslun eða fá heimsent tvisvar
á dag, um helmingur fólks kýs að sækja
í verslun. Við erum með um 10 starfs-
menn í þessu núna en gerðum einnig
samning við kvennalandsliðið í körfu-
bolta um að aðstoða okkur í gegnum
mesta álagið og hefur það samstarf
gengið frábærlega.
Nettó hefur ráðið inn á sjötta tug
nýrra starfsmanna vegna mikillar eftir-
spurnar í netverslun fyrirtækisins á
landsvísu. Þar á meðal hafa tuttugu
bílstjórar verið ráðnir og yfir 10 nýir
bílar keyptir til viðbótar við þá sem fyrir
eru af fyrirtækinu aha, samstarfsaðila
Nettó í netversluninni. Afgreitt er frá 11
stöðum úr 14 Nettó verslunum.
„Viðskiptavinir okkar hafa verið
einkar skilningsríkir á þessum óvissu-
tímum og þeir eiga hrós skilið. Það hafa
komið tímabil þar sem töf hefur orðið
of mikil þar sem innviðir okkar réðu
einfaldlega ekki við álagið. Á hverjum
degi koma nýjar áskoranir og okkur
hefur tekist að aðlaga verkferla okkar og
skipulag að þessum breyttu aðstæðum.
Eins og staðan er nú er allt að tveggja
sólahringa bið eftir afgreiðslu hjá okkur
en það er heldur stuttur tími saman-
borið við Danmörku og England þar
sem er allt að tveggja vikna bið eftir
matvörum úr netverslun.“
Nettó, sem er stærsta og ódýrasta
matvöruverslun landsins á netinu,
beinir því til viðskiptavina sinna að
taka biðtímann með í reikninginn og
panta fram í tímann. Allar pantanir
eru afgreiddar eins fljótt og auðið er
og þær skila sér á endanum.
Gunnar Egill segir að starfsmenn
Samkaupa hafi unnið kraftaverk á
síðustu vikum. „Starfsmenn okkar
eiga gríðarlegt hrós skilið. Þeim hefur
tekist með þrautsegju sinni, vilja og
almennum dugnaði að lyfta grettistaki
bæði í netversluninni sem og öðrum
verslunum okkar. Við erum mjög stolt
af þeim og hefðum aldrei getað þetta
án þeirra,“ segir Gunnar.
Hefur orðið breyting á kauphegðun
fólks, þ.e. hefur sala aukist í ein-
hverjum vörum út af ástandinu?
Kauphegðun mun breytast til fram-
tíðar þar sem mörg hundruð nýir við-
skiptavinir hafa byrjað að nýta sér netið
til innkaupa og ég spái því að stór hluti
fólks muni halda því áfram þegar við
höfum komist í gegnum þann ólgusjó
sem við eru í núna. Varðandi einstaka
liði þá hefur verið mikil aukning á þurr-
vörum og frystivöru. Spritt var ekki stór
söluvara áður en hún er það núna. Fólk
verslar eins á netinu og í hefðbundinni
verslun sem sýnir það traust sem fólk
ber til matvöruverslunar.
Má eiga von á því að þessi net-
verslun eigi eftir að aukast enn
frekar í framtíðinni?
Við erum að reikna með miklum
vexti til loka apríl en þá fari hún að
ganga til baka en hvar hún stöðvast veit
maður ekki. Það eru miklir óvissutímar
og við erum bara að taka einn dag í
einu. Ég hef sagt að við erum að taka
út 5 ára þróun núna á næstu þremur
mánuðum. Ástandið nú hefur ýtt undir
vitund fólks á að geta almennt pantað
dagvöru gegnum netið, fá hana heims-
enda eða sækja í verslun. Mig grunar
að fólk um land allt eigi eftir að horfa
öðruvísi á innkaup á dagvöru þegar við
komumst í gegnum þessa fordæmu-
lausu tíma og hlutfall netverslunar ná
áður óþekktum hæðum.
Hvað með vöruverð í ljósi Covid-19,
má eiga von á hækkun vöruverðs?
Ég held að það sé óumflýjanlegt.
Launahækkanir skv. Lífskjarasamning
mun taka gildi 1. apríl, gengið hefur
veikst um 10% og svo hafa orðið
nokkrar verðhækkanir erlendis með
vaxandi eftirspurn eftir ákveðnum
vörum og skertu framboði. Ég er
hræddur um að við munum sjá þetta
birtast fljótlega á markaðnum hér
heima,“ sagði Gunnar Egill.
Gunnar sagði að verið væri að skoða
að bjóða upp á heimsendingar til fleiri
sveitarfélaga þar sem Nettó er með
verslun, t.d. Grindavík. Nýlega hóf
Nettó að keyra út vörur í Borgarnesi
og á Selfossi. „Okkur hefur verið tekið
opnum örmum bæði í Borgarnesi sem
og á Selfossi. Nú erum við að skoða
með hvaða hætti við getum stækkað
netverslun okkar til að mæta þeirri
auknu eftirspurn sem við spáum næstu
vikur og mánuði,“ segir Gunnar Egill.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Gunnar Egill Sigurðsson,
framkvæmdastjóri verslunarsviðs
Samkaupa.