Víkurfréttir - 26.03.2020, Síða 6
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
Til að fá ókeypis rafræna áskrift getur þú farið inn á vf.is, skráð þig á póstlista
og fengið Víkurfréttir glóðvolgar í tölvupóstinn þinn í hverri viku!
RAFRÆN ÚTGÁFA Á ÓVISSUTÍMUM
„Við hjá Skólamat viljum þakka nemendum, foreldrum og starfsfólki skólanna sérstak-
lega fyrir skilninginn síðustu daga. Það eru allir að gera sitt besta til þess að aðlaga sig
að breyttu ástandi. Í krefjandi aðstæðum sem þessum felast líka mikil lærdómstækifæri
fyrir fyrirtæki. Við erum viss um að þessi reynsla muni verða til þess að við séum enn
betur undirbúin ef og þegar við þurfum að takast á við aðrar óvæntar uppákomur,“
segir Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar en COVID-19 hefur haft mikil áhrif
á starfsemi fyrirtækisins en þegar eðlileg starfsemi er í gangi framleiðir fyrirtækið yfir
12 þúsund skólamáltíðir á dag.
Hverju hafið þið þurft að breyta í starfseminni útaf CO-
VID-19 og hvaða áhrif hefur þetta haft á starfsemina?
Neyðarstig almannavarna sem tók gildi þann 13. mars
og sú takmörkun sem sett var á skólahald í kjölfarið hefur
haft mikil áhrif á starfsemi Skólamatar. Þegar öllum mötu-
neytum grunnskólanna var lokað var ljóst að Skólamatur
þurfti að gjörbreyta allri sinni starfsemi nánast á einum
degi. Öll matarþjónusta í skólum miðaðist við að tryggja
öryggi nemenda og starfsfólks skólanna. Öruggast var talið
að bjóða upp á mat í lokuðum umbúðum fyrir hvern og einn
nemanda. Starfsfólk Skólamatar leysti þetta mál með því að
breyta matseðli og bjóða upp á samlokur, langlokur, pasta-
bakka og ávexti. Flestir hafa sýnt þessu skilning og margir
nemendur hafa lýst yfir ánægju með breyttan matseðil. Það
skiptir okkur hjá Skólamat öllu máli að bjóða nemendum
upp á hollan og fjölbreyttan mat. Nú sem fyrr leggjum við
áherslu á að auka fjölbreytni og bæta enn frekar gæðin
á því sem hægt er að bjóða upp á í skólunum, við þessar
þröngu aðstæður.
Nú eruð þið með marga starfsmenn, hvernig hefur vinnan
gengið í þessu hjá ykkur?
Hjá Skólamat starfa nú um 120 starfsmenn sem allir
hafa þurft að breyta í grundvallaratriðum sínu verklagi
og vinnuaðstæðum. Starfsfólk Skólamatar samanstendur
af fjölbreyttum hópi fagfólks og reynsluboltum sem hafa
leyst úr þessum aðstæðum á ótrúlegan hátt þannig að enn
er hægt að bjóða upp á mat í skólunum. Þetta hefur gengið
vel en forsenda þess er áhugi og þekking starfsfólks ásamt
framúrskarandi samstarfi við birgja og starfsfólk skólanna.
Er þetta misjafnt eftir skólum og jafnvel bæjarfélögum?
Aðstæður í skólum eru mjög misjafnar. Sumir grunnskólar
eru með kennslu fyrir alla nemendur alla daga en hjá öðrum
mæta nemendur annan hvern dag eða eru alveg heima í
fjarkennslu. Svo eru leikskólar flestir með skerta starfsemi
og færri leikskólanemendur sem mæta, segir Jón Axelsson.
Skólamatur þurfti að gjörbreyta allri
sinni starfsemi nánast á einum degi
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Rétturinn
Ljúffengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-14
alla virka daga
„Það eru allir að
gera sitt besta
til þess að aðlaga
sig að breyttu
ástandi,“ segir Jón
Axelsson, fram-
kvæmdastjóri
Starfsfólk Skólamatar leysti þetta mál með því að breyta matseðli
og bjóða upp á samlokur, langlokur, pastabakka og ávexti.