Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 12
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
„Þetta ástand er mjög súrealískt og
óvenjulegt. Maður getur ímyndað sér
byrjun á stríði, það veit enginn ná-
kvæmlega hvað gerist og hvað þetta
ástand varir lengi“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Já ég hef áhyggjur og okkur ber
að taka þessu alvarlega“.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
„Þetta hefur breytt því að maður
er mikið meira heima við en áður. Ég
er búinn að færa skrifstofuna heim.
Einnig passar maður meira upp á
heinlætið og handþvott en áður“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Breytingin er sú að ég er hættur
að mæta á skrifstofuna og í skólann.
Nú vinnur maður allt heiman frá
sér. Ég er einnig í MPM námi í Há-
skólanum í Reykjavík og nú er öll
kennsla bara á netinu“.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
„Ég hafði á tilfinningunni strax í
janúar að þetta yrði heimsfaraldur.
Ég veit ekki afhverju en það var eitt-
hvað sem sagði mér að svo yrði. Ég
fór að taka þessu alvarlega þegar
fréttist af smiti í Ítalíu“.
— Hvað varð til þess?
„Ég rek fyrirtæki í ferðaþjónustu
og er með fólk í vinnu, þannig að
áhyggjurnar eru verulegar. Maður
þarf að standa við skuldbindingar
gagnvart fólkinu sínu. Einnig á
ég aldraða ömmu og afa og svo er
maður alltaf hræddur um fólkið sitt“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Ég umgengst færra fólk en áður
og er ekki að fara á óþarfa staði sem
ég þarf ekki að heimsækja“.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Mjög vel. Ég ber fullt traust til
Landlæknis, Sóttvarnarlæknis og Al-
mannavarna. Ég held að við eigum
að treysta sérfræðingunum og taka
minna mark á sjálfskipuðum sér-
fræðingum á netinu“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Að hugsa vel um fjölskylduna
sína“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira?
„Ég vil trúa því að allir séu að gera
sitt besta til að halda faraldrinum í
skefjum“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Nei í raun ekki þannig séð. Ég
rek hótel og veitingahús úti á landi
og enn sem komið er er þetta heldur
ekki að hafa áhrif þar, þar sem enn
er lágönn“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„Ég fer í matvörubúðina á morgn-
ana þegar það er rólegt að gera“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Ég held að við ættum að gera
ráð fyrir að þetta vari út apríl og
jafnvel eitthvað fram í maí. Ég held
samt sem áður að áhrifin á hagkerfið
eigi eftir að vara töluvert lengur því
miður“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Já ég geri nú ráð fyrir því að
ferðast bæði innanlands og erlendis“.
— Hvernig eru börnin að upplifa
þetta?
„Þetta er erfitt fyrir börnin þar
sem það vantar rútínuna í daginn.
Við erum að reyna að halda rútínu
með að láta börnin vinna heimalær-
dóminn á sama tíma og við vinnum
okkar vinnu við borðstofuborðið.
Yngri börnin eiga erfiðara með að
skilja allt þetta umstang varðandi
handþvott og hverjir mega koma í
heimsókn og hverja má umgangast
og hverja ekki“.
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Þetta er erfitt fyrir börnin þar sem það vantar rútínuna í
daginn. Við erum að reyna að halda rútínu með að láta börnin
vinna heimalærdóminn á sama tíma og við vinnum okkar vinnu
við borðstofuborðið. Yngri börnin eiga erfiðara með að skilja
allt þetta umstang varðandi handþvott og hverjir mega koma í
heimsókn og hverja má umgangast og hverja ekki.
Þarf að standa við skuldbindingar
gagnvart mínu fólki
Friðrik Árnason er Suðurnesjamaður í húð og hár en rekur fyrirtæki í ferðaþjónustu á Austurlandi og er með fólk í vinnu. „Þannig að áhyggjurnar
eru verulegar. Maður þarf að standa við skuldbindingar gagnvart fólkinu sínu. Einnig á ég aldraða ömmu og afa og svo er maður alltaf hræddur um
fólkið sitt,“ segir hann í samtali við Víkurfréttir.
FRIÐRIK ÁRNASON