Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 14

Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 14
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. — Hvernig ert þú að upplifa ástand- ið í kringum COVID-19? „Mér finnst ég vera að upplifa CO- VID-19 svona eins og maður sé hálf dofinn. Það eru allir að bíða eftir að ástandið gangi yfir, erfitt fyrir fólk að taka einhverjar ákvarðanir sem varða framtíðina. Það er allt einhvern veginn á bið hjá okkur öllum. Þetta er allt svo óraunverulegt“. — Hefurðu áhyggjur? „Já, ég hef áhyggjur, sérstaklega af afleiðingum sem kunna að hljótast af þessu ástandi. Bæði efnahagslegar og mannstjón sem hlýst af þessu ástandi. Það sér ekki fyrir endanum á því hvaða áhrif þetta mun hafa á landið okkar og heiminn allan“. — Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? „Ég hef ekki endilega áhyggjur af því að veikjast, en ég á bæði foreldra og tengda forledra á lífi og tvær litlar ömmustelpur, ég hef meiri áhyggjur af þeim. Foreldrar mínir voru eigin- lega skikkuð í sjálfskví upp í sumar- bústað og eiga að vera þar í einhvern tíma“. — Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu? „Ég hef nú svo sem ekki verið að breyta neitt mikið hjá mér í daglega lífinu hef reyndar dregið úr því að hitta fjölskyldu og vini. Dagarnir eru svipaðir hjá mér ennþá. Hvað varðar vinnuna, þá er ég í hlutastarfi hjá Icelandair og svo erum við fjölskyldan með rafverk- takafyrirtæki og þar er ég í hluta- starfi líka. Ég reikna með að starfið mitt hjá Icelandair breytist eitthvað. Ég held að það sé bara tímaspursmál hvenær flugið leggst af, því miður er ekki bjart í flugheiminum í dag. Hvað varðar okkar fyrirtæki, SI raflagnir, þá vona ég svo innilega að við getum haldið okkar frábæru starfsmönnum áfram, en þó er sá möguleiki til staðar að menn þurfi að minnka starfshlutfallið sitt í ein- hvern tíma. En ég bind miklar vonir við aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að tryggja áframhaldandi starfsemi fyrirtækjanna í landinu“. — Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? „Fyrir svona tveimur til þremur vikum. Þegar landamæri hinna ým- issa landa fóru að loka þá fór ég að taka COVID-19 mjög alvarlega. Hélt í fyrstu að þetta myndi ganga mikið fyrr yfir en raun ber vitni. Ekki síst fór maður að taka þetta alvarlega þegar tala látinna jókst dag frá degi“. — Hvernig ert þú að fara varlega? „Ég hef reynt að fara eftir þeim leiðbeiningum sem heilbrigðisyfir- völd og stjórnvöld gefa út. Hef reyndar alltaf verið sótthreinsi sjúk, er alltaf með handspritt út um allt hús og í öllum veskjum“. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? „Ég held að stjórnvöld séu að gera eins vel og hægt er í þessu óraun- verulega ástandi sem er núna. Mér finnst að pólitískur ágreiningur megi liggja til hliðar núna“. — Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? „Það sem mér finnst mikilvægast fyrir okkur er að reyna að halda ró. Við þurfum að læra að forgangsraða upp á nýtt held ég. Það eru augljós skilboð til okkar. Þurfum að hlúa að hvort öðru betur og sérstaklega börnunum, þetta er ástand sem þau eiga mjög erfitt með að skilja. Við verðum að reyna að halda okkar daglegu rútínu, halda skipulagi og vera jákvæð og standa saman. Nota tæknina til að hafa samband við fjöl- skyldu og vini. Höldum áfram að gera það sem okkur þykir skemmti- legt, en förum bara varlega“. — Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? „Suðurnesjabær er að mínu mati búin að standa sig vel og farið eftir þeim tilmælum sem eru gefin út hverju sinni. Þeir eru t.d. að koma til móts við barnafólk með því að veita afslátt eða niðurfellingu á leikskóla- gjöldum og skólagæslu. Sjálfsagt skoða þeir nánar hvort og hvað þeir geta gert meira“. — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? „Samkomubannið hefur auðvitað áhrif, en ekkert sem er óyfirstígan- legt. Sonur minn og tengdadóttir þurftu að fresta brúðkaupi sínu sem vera átti þann 2. maí nk. Það voru auðvitað frekar mikil vonbrigði fyrir þau og okkur öll. Undirbúningur búinn að standa yfir í nokkra mán- uði. Auðvitað hefur þetta áhrif, allar fermingar, íþróttamót, tónleikar og lengi mætti telja. En þetta er ekkert sem við getum ekki lifað af með, í einhvern tíma alla vega. Aðalmálið er að allir séu heilir heilsu“. — Hvernig hagar þú innkaupum í dag? „Ég hef ennþá farið í verslanir að versla inn fyrir heimilið. Ekki að versla á netinu neitt meira en venju- lega“. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? „Það er ljóst að þetta ástand mun vara í tvo til þrjá mánuði í viðbót. Ætla reyndar að halda í 19. apríl, sem er afmælisdagurinn minn, þá held ég að það fari að birta til, 19. apríl er alltaf svo bjartur og fallegur dagur, upphafið að vorinu og bjartari tímum“. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? „Hvað varaðar ferðalög, þá er ég ekki með nein plön. Reikna nú með að ég fari eitthvað innanlands, en annars ekkert ákveðið. Það er eitt- hvað sem ég er ekki að spá í núna, í þessu óraunverulega ástandi“. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Guðlaug Sigurðardóttir er starfsmaður bæði hjá Icelandair og SI Raflögnum. Hún segir ljóst að þetta ástand mun vara í tvo til þrjá mánuði í viðbót. „Ætla reyndar að halda í 19. apríl, sem er afmælisdagurinn minn, þá held ég að það fari að birta til, 19. apríl er alltaf svo bjartur og fallegur dagur, upphafið að vorinu og bjartari tímum“. Þetta er allt svo óraun- verulegt Samkomubannið hefur auðvitað áhrif, en ekkert sem er óyfirstíganlegt. Sonur minn og tengdadóttir þurftu að fresta brúð- kaupi sínu sem vera átti þann 2. maí nk. Það voru auðvitað frekar mikil vonbrigði fyrir þau og okkur öll. Undirbúningur búinn að standa yfir í nokkra mánuði. GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.