Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 15
15 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
„Allt daglegt lífsmynstur mitt er
mjög breytt“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Já, það hafa allir áhyggjur af ætt-
ingjum og vinum sem gætu veikst“.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
„Það eru miklar breytingar hjá
mér, er nær eingöngu heima“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Já, ég vinn eftir skipulagi vinnu-
staðar míns. Er heima að vinna í fjar-
tengingu hálfa vikuna eins og er“.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
„Strax þegar fréttir fóru að berast
af COVID-19 veirunni“.
— Hvað varð til þess?
„Að ekki væri til bóluefni eða bein
lækning við þessari veiru“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Ég held mig heima og reyni eftir
bestu getu að umgangast sem allra
fæsta“.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Stjórnvöld standa sig afar vel í
þessu erfiða máli“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Að fólk sé rólegt og fylgi fyrir-
mælum stjórnvalda“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira?
„Sveitarfélagið fylgir þeim fyrir-
mælum sem stjórnvöld hafa sett“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Já, nánast allir fundir, ráðstefnur
og fleira sem ég ætlaði að sækja
hefur verið felld niður um óákveðinn
tíma“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„ Ég kaupi meira inn og sjaldnar,
því miður er ekki heimsendingar-
þjónusta hér í Vogum þar sem ég bý.
Ef svo væri myndi ég líklega nota
netinnkaup“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Finnst líklegt að veikindi hér á
Íslandi verði allavega fram í lok maí,
en það er alveg ljóst að áhrif þessarar
farsóttar munu hafa langvarandi
áhrif bæði hér á Íslandi og um
heimsbyggðina alla“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Ég reikna með að ferðast lítið,
kannski meira innanlands“.
JÓNGEIR H. HLINASON
Jóngeir H. Hlinason er úr Vogum og starfar sem
deildarstjóri hjá Vinnumálastofnun. Hann vinnur heiman
frá sér og þá hefur samkomubann mikil áhrif á starfið. Já,
nánast allir fundir, ráðstefnur og fleira sem ég ætlaði að
sækja hefur verið felld niður um óákveðinn tíma“. Jóngeir
svaraði nokkrum spurningum frá Víkurfréttir um
COVID-19.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Mér finnst líklegt að veikindi hér á Íslandi
verði allavega fram í lok maí, en það er al-
veg ljóst að áhrif þessarar farsóttar munu
hafa langvarandi áhrif bæði hér á Íslandi
og um heimsbyggðina alla.
Áhrif þessarar
farsóttar munu
hafa langvar-
andi áhrif
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Er nýja heimilið þitt á
Ásbrú kannski hjá okkur?
Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is