Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 17
17 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
„Eigum við ekki bara að segja
að COVID-19 sé eins og filter sem
er búið að setja á allt okkar líf svo
maður noti líkingamál. Litar nánast
allar okkar athafnir og áætlanir“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Já, hugsa mikið um þetta, enda
varla annað hægt þar sem fréttirnar
dynja stöðugt á manni, en þetta
heldur þó ekki fyrir mér vöku“.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
„Hann hefur haft nokkur áhrif.
Börnin fara ekki í skólann heldur
vinna heima og það þarf auðvitað
pínu utanumhald utan um það,
fylgjast með að þau vakni og vinni
og allt það, sem þau eru reyndar að
tækla rosalega vel. Svo þarf auðvitað
að kaupa miklu meira inn þegar allir
eru heima allan daginn, svo nóg sé
til í ísskápnum, græja hádegismat
og svoleiðis. Nú fer ég ekki lengur
í ræktina heldur keypti mér lóð og
ketilbjöllu og geri æfingar heima
en hann Helgi í Metabolic var svo
frábær að hann setur inn á Facebook
daglegt æfingaprógramm fyrir þá
sem velja að æfa heima. Þar fyrir
utan er maður auðvitað mest heima
hjá sér og er eiginlega ekki að fara
neitt annað að óþörfu“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Ekki svo miklar. Get unnið bæði
á vinnustað og heima. Mesti munur-
inn er einangrunin, maður fundar
eingöngu í gegnum tölvuna, fer ekki
í hádegismat með fólkinu. Maður
hittir sem sagt mjög fáa“.
— Ert þú eða þitt fólk í sóttkví?
„Akkúrat núna má segja að við á
þessu heimili séum í millibilsástandi.
Eiginmaðurinn er með einhverja
pest en fær ekki að fara í próf strax
auk þess sem smit hefur komið upp á
hans vinnustað. Þannig að við erum
í óvissuástandi eins og er en þetta
skýrist líklega á allra næstu dögum.
Líklega eru ýmsir í svona stöðu. Það
má því eiginlega segja að núna séum
við í eins konar sjálfskipaðri sóttkví.
Hann hefur nánast lokað sig af inni í
einu herbergi og ég hef tekið ákvörð-
un um að vinna heima og heimsækja
ekki fólk á meðan við vitum ekki
hvort þetta er veiran“.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
„Um leið og fyrstu fréttir fóru að
berast af þessu frá Kína. Vinnufélagi
minn var einmitt að rifja það upp
að ég hefði sagt einhvern tímann
í janúar að ég hefði svo miklar
áhyggjur af þessari veiru þarna í
Kína og þá var hún ekki einu sinni
farin að leiða hugann að henni“.
— Hvað varð til þess?
„Líklega sá eiginleiki að hafa
áhyggjur af öllu mögulegu og
ómögulegu og svona sjúkdóma-
hræðsla“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Með aukinni meðvitund held ég
fyrst og fremst t.d. í samneyti við
annað fólk og svo auðvitað aukinn
handþvottur, spritta og passa að
vera ekki með hendurnar í andlitinu
o.s.framvegis“.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Gríðarlega vel. Er mjög þakklát
fyrir fólkið í brúnni“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Að við stöndum saman og
fylgjum fyrirmælum og að við
sýnum sveigjanleika og umburðar-
lyndi á öllum vígstöðvum“.
— Hvernig finnst þér sveitarfélagið
standa sig í þessum málum?
„Mér finnst sveitarfélagið standa
sig vel, búið að setja á neyðarstjórn
sem fundar daglega til að geta
sem best brugðist við eftir því sem
vendingar verða í þessu máli. Þetta
eru flóknar aðgerðir t.d. skólamálin
og velferðarmálin og allir að reyna
að gera sitt besta til að takast á við
breytt landslag. Mér finnst t.d. frá-
bært að sjá þessar aðgerðir að lækka
gjöld í leikskóla og frístund vegna
skertrar þjónustu og fyrir börn sem
eru heima“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Já, dóttir mín átti að fermast í
vor og ég var rétt búin að senda út
boðskortin þegar samkomubann var
sett á og öllum fermingum vorsins
frestað til sumarloka. Auk þess eru
þrjár utanlandsferðir planaðar hjá
fjölskyldumeðlimum bæði í vor og
í sumar og þau plön eru auðvitað í
uppnámi“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„Enn sem komið er þarf ég í raun
að fara oftar í búðina og versla meira
í hvert sinn þar sem allir eru alltaf
heima en ég geri ráð fyrir að nota
netið ef maður lendir í formlegri
sóttkví eða einangrun“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Ég ætla að leyfa mér að vona að
í maí fari að rofa til og losna um
hömlur vonandi hér og í Evrópu
en það er erfitt að hugsa til staða
þar sem bjargir eru litlar svo sem í
flóttamannabúðum og öðrum mann-
mörgum stöðum t.d. Indlandi og í
fleiri vanþróuðum ríkjum“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Ég er enn að binda vonir við að
komast á Dance World Cup í Róm
í lok júní en veit ekki hvort það er
raunhæft“.
— Hvernig eru börnin á heimilinu að
upplifa þetta?
„Það eru unglingar á heimilinu.
Þau eru vel meðvituð um ástandið en
hafa ekki áhyggjur sem betur fer. Fínt
að mamman geti séð um þær“.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Dóttir mín átti að fermast í vor og ég var
rétt búin að senda út boðskortin þegar
samkomubann var sett á og öllum ferm-
ingum vorsins frestað til sumarloka. Auk
þess eru þrjár utanlandsferðir planaðar hjá
fjölskyldumeðlimum bæði í vor og í sumar
og þau plön eru auðvitað í uppnámi.
Í sjálfskipaðri sóttkví á heimilinu
Guðlaug María Lewis var rétt búin að senda út boðskortin vegna fermingar dóttur sinnar þegar samkomubann var sett á. „Þar með var öllum
fermingum vorsins frestað til sumarloka. Auk þess eru þrjár utanlandsferðir planaðar hjá fjölskyldumeðlimum bæði í vor og í sumar og þau plön eru
auðvitað í uppnámi,“ segir Guðlaug í samtali við Víkurfréttir sem ræddu við hana um kórónuveiruna og áhrif hennar á líf og störf.
GUÐLAUG MARÍA LEWIS