Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 21

Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 21
21 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. — Hvernig ert þú að upplifa ástand- ið í kringum COVID-19? „Þetta er ótrúlega skrítið ástand og eitthvað sem maður hefur ekki upplifað áður svo það er erfitt að lýsa þessu. En maður er svoldið í lausu lofti og fer að sofa á kvöldin með ákveðnar forsendur sem eru svo allt aðrar þegar maður vaknar á morgnanna“. — Hefurðu áhyggjur? „Já og nei. Maður hugsar auðvita stanslaust um þetta og þetta er allra vörum, en ég hef reynt að hafa það að leiðarljósi að þetta er eitthvað sem við stjórnum ekki og því reynt að gera það besta úr því sem við höfum stjórn á“. — Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? „Ég hef reynt að halda í rútínuna. Vakna á morgnana og kem börn- unum á fætur svo fara þau ýmist í skólann eða vinna heima. Við höfum verið að reyna að brjóta daginn upp með göngutúrum, spili og annarri afþreyingu þar sem engar íþrótta- æfingar eru. Þetta er áskorun sem maður reynir að takast á við með jákvæðni að vopni“. — Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu? „Ég vinn sem grunnskólakennari á unglingastigi í Myllubakkaskóla og við höfum haft þann háttinn á að við kennum þeim í fjarkennslu. Ég hef því ýmist sinnt þeim heiman frá mér eða farið upp í skóla og unnið þar. Þetta er vissulega allt annað um- hverfi sem við erum að vinna í en skemmtilegt engu að síður“. — Er þú eða þitt fólk í sóttkví? „Nei, ekki enn komið að því hjá okkur, en maður er vissulega farin að finna fyrir því að þetta færist nær manni“. — Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? „Þetta fór að bíta mig kannski hvað fastast þegar maður þurfti að fara að hagræða vinnunni á annan hátt. Eins þegar umræðan í samfélag- inu fór að verða meiri þá fór maður að átta sig á alvarleikanum“. — Hvað varð til þess? „Eins og ég sagði þá fór maður að þurfa að hugsa skipulagið á vinnunni á annan hátt og umræðan fór að aukast í samfélaginu“. — Hvernig ert þú að fara varlega? „Ég hef aukið handþvott verulega og samneiti við annað fólk. Ég hef alltaf haft frekar mikla snertiþörf og því hef ég þurft að temja mér aðrar leiðið þegar ég hitti fólkið mitt“. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? „Ég get ekki annað sagt en að okkar frábæra framlínu fólk og stjórnvöld eru að standa sig gríðar- lega vel. Algjörlega til fyrirmyndar hvað allir eru að reyna að gera sitt allra besta til að takast á við þetta ástand“. — Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? „Að halda rútínu og hafa eitthvað fyrir stafni yfir daginn. Vanda sig í samskiptum við hvort annað og reyna að finna allt það jákvæða við stöðuna eins og hún er“. — Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? „Sveitarfélagið er að gera sitt besta eins og allir. Við erum öll í sama liði og verðum að vinna þetta saman“. — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? „Auðvitað hefur þetta áhrif á okkur eins og aðra. Fjölskyldan eyðir töluvert meiri tíma saman, sem er að vissu leyti gott, og við heyrum meira í okkar nánustu símleiðis frekar en að hitta það“. — Hvernig hagar þú innkaupum í dag? „Ég hef enn ekki prufað að gera innkaupinn á netinu en ég hef verið að fara sjaldnar í búð og reyni að vera skipulagðari í innkaupunum“. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? „Það er ómögulegt að segja. En miða við stöðuna í dag þá verður heljarinnar partý hjá okkur í ágúst. Hugsanlega geta skólarnir ekki byrjað fyrr en í byrjun september ef við ætlum að koma þessu fjöri öllu fyrir sem er búið að fresta“. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? „Vonandi getur maður gert sitt lítið af hvoru“. — Hvernig eru börnin á heimilinu að upplifa þetta? „Já við erum með tvö börn á heimilinu. Þau eru vitanlega uggandi yfir þessu en við reynum að kaffæra þeim ekki í þessari umræðu. En það sem snertir þau kannski hvað mest það er að æfingarnar þeirra eru ekki. Þau æfa bæði tvær íþróttir og það er mikil missir að hafa þær ekki. Einn- ig þegar það er verið að herða enn meira á því að börn úr öðrum skóla- hópum séu ekki að hittast, það flækir samskipti þeirra. En þessi tími gefur okkur tækifæri til að slípa okkur betur saman sem fjölskyldu og gera hluti saman sem við gætum mögu- lega ekki gert í hraðanum í hvers- dagsleikanum“. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Ég vinn sem grunnskólakennari á ungl- ingastigi í Myllubakkaskóla og við höfum haft þann háttinn á að við kennum þeim í fjarkennslu. Ég hef því ýmist sinnt þeim heiman frá mér eða farið upp í skóla og unnið þar. Þetta er vissulega allt annað umhverfi sem við erum að vinna í en skemmtilegt engu að síður. HILDUR MARÍA MAGNÚSDÓTTIR Áskorun sem maður reynir að takast á við með jákvæðni að vopni Hildur María Magnúsdóttir er kennari á unglinga- stigi við Myllubakkaskóla í Keflavík. „Við höfum haft þann háttinn á að við kennum þeim í fjarkennslu. Ég hef því ýmist sinnt þeim heiman frá mér eða farið upp í skóla og unnið þar. Þetta er vissulega allt annað umhverfi sem við erum að vinna í en skemmtilegt engu að síður“. Hildur svaraði nokkrum spurningum frá Víkurfréttum um ástandið í heiminum dag.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.