Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 25

Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 25
25 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. — Hvernig ert þú að upplifa ástand- ið í kringum COVID-19? „Mér finnst allt samfélagið og í raun heimurinn allur lamaður vegna veirunnar, það er pínu eins og það séu einhver æðri öfl sem eru að hægja á okkur og ná manni niður á jörðina. Maður tekur bara einn dag í einu“. — Hefurðu áhyggjur? „Maður hefur auðvitað áhyggjur innst inni aðallega vegna óvissunnar sem við erum í og maður gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hversu mikið þetta getur orðið, þetta er eitthvað svo nálægt manni“. — Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? „Þetta hefur alveg áhrif á okkar daglega líf, öll rútína hefur breyst, krakkarnir læra heima, vinnutíminn örlítið öðruvísi, meiri tími til að vera með fjölskyldunni og maður er meira á tánum hvað varðar allt hreinlæti og ég hef tekið eftir því að ég kem óþarflega oft við krakkana mína alveg ómeðvitað“. — Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu? „Við höfum þurft að gera miklar ráðstafanir í vinnunni hjá mér í Íþróttamiðstöðinni í Garði og þar eru hömlur og miklar takmarkanir. Varðandi þjálfunina hjá mér þá erum við búin að vera í fríi á meðan samkomubannið er í gangi og við fylgjum algjörlega fyrirmælum KSÍ og tökum samfélagslega ábyrgð. Krakkarnir slá ekki slöku við í Reynir/ Víðir, þau gera heimaæfingar af fullum krafti enda mikilvægt að huga að hreyfingu og andlegri heilsu sinni á þessum tímum“. — Ert þú eða þitt fólk í sóttkví? „Við erum ekki enn komin í sóttkví og í raun þakkar maður fyrir hverja klukkustund sem við sleppum“. — Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? „Ætli ég hafi ekki farið að taka þessu alvarlega þegar það var sett á samkomubann og tilfellunum fór fjölgandi hér á landi. Maður óttast hið versta en vonar það besta og hugsar mikið til fólksins okkar, ég óska þess að við Íslendingar sleppum vel útúr þessu“. — Hvernig ert þú að fara varlega? „Ég fer varlega með því að reyna að vera ekki að blandast mörgum ólíkum hópum, hugsa um hreinlætið og allt í kringum okkur sem getur valdið smiti, einnig reynir maður að fara eftir fyrirmælum yfirvalda hvernig eigi að bera sig að á þessum tímum“. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? „Stjórnvöld hafa staðið sig ótrú- lega vel á þessum tímum, þau hugsa um velferð okkar landsmanna og hvetja okkur til að snúa saman bökum og það er stórkostlegt“. — Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? „Suðurnesjabær hefur upplýst okkur vel og stendur þétt við bakið á okkur bæjarbúum og eru að leita allra leiða til að létta undir á ýmsa vegu fyrir það ber að þakka“. — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? „Samkomubannið hefur alveg áhrif á mann, öll rútína hefur farið úr skorðum, enginn fótbolti eða aðrar íþróttir í sjónvarpinu, maður er í algjörri óvissu með framhaldið, vinnuna sína og á sama tíma hafa engar æfingar verið með krökkunum mínum sem ég er nú þegar farin að sakna mikið. Til stóð að ferma Hebu Lind stelpuna okkar núna 19. apríl n.k. Því hefur verið frestað til betri tíma og Portúgalferð sem var á áætlun í lok apríl líka allt á bið“. — Hvernig hagar þú innkaupum í dag? „Innkaupin ganga sinn vanagang enn sem komið er, maður reynir að vera snöggur í gegnum búðirnar en það fer að koma örugglega að því að maður þarf að versla á netinu og fá heimsendan matinn. Ég sakna þess að Nettó sendir ekki í Suðurnesjabæ og ég skora á þau að skoða þann möguleika, því við viljum versla heima“. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? „Það er ómögulegt að segja hversu lengi þetta ástand mun vara, ég vona að þetta klárist sem fyrst og fótbol- tasumarið geti hafist á nýjan leik með kossum og knúsum í góðra vina hópi“. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? „Við munum klárlega ferðast innanlands og elta Víðismenn í sumar um landið og aldrei að vita hvort það sé utanlandsferð næsta haust. Látum tímann leiða það í ljós“. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Stjórnvöld hafa staðið sig ótrúlega vel á þessum tímum, þau hugsa um velferð okkar landsmanna og hvetja okkur til að snúa saman bökum og það er stórkostlegt. Eva Rut Vilhjálmsdóttir er starfsmaður íþrótta- miðstöðvarinnar í Garði. Miklar hömlur hafa nú verið lagðar á starfsemi íþróttahúsa en þau eru nú lokuð ásamt sundlaugum í í harðara samkomubanni. Eva Rut svaraði nokkrum spurningum Víkurfrétta um það hvernig ástandið vegna COVID-19 leggst í hana. Eins og æðri öfl séu að hægja á okkur og ná niður á jörðina EVA RUT VILHJÁLMSDÓTTIR Til að einfalda málið getur þú farið inn á vf.is og skráð þig á póstlista og fengið Víkurfréttir glóðvolgar í tölvupóstinn þinn í hverri viku! www.vf.is/vikurfrettir/tolublod

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.