Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 27
27 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa
ástandið í kringum COVID-19?
„Þetta er mjög erfitt og skelfi-
legt hvernig þetta er að hafa áhrif
á okkar daglega líf, atvinnu, þjóð-
félagið og allan heiminn“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Nei, ég hef ekki áhyggjur og
þetta er eitthvað sem við tæklum
saman“.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
„Já, hann hefur hellings áhrif.
Dagarnir eru rosalega mikil óvissa“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Já, ég hef þurft að gera víðtækar
breytingar á mínu starfi þar sem
ég rek verslunina Líkami & boost
í daglegu starfi og nú með nýjasta
banninu er verslun minni lokað
tímabundið og færist allur rekstur
minn yfir í netverslun og þar af
leiðandi færist starfið mitt til“.
— Hvenær fórstu að taka CO-
VID-19 alvarlega?
„Frá því að fyrstu smit voru farin
að berast hingað til lands“.
— Hvað varð til þess?
„Allar umfjallanir í sjónvarpi,
samfélagsmiðlum og fleira“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Ég passa hreinlæti í kringum
mig og þar sem ég er“.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Ég stend í þeirri trú að allir
séu að reyna gera sitt besta í þessu
ástandi“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Samstaða“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira? Hvernig finnst
þér sveitarfélagið standa sig í
þessum málum?
„Ég stend í þeirri trú að allir séu
að reyna gera sitt besta á þessum
erfiðum tímum“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Já“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„ Ég nota ekki netið og fer í búðir
en ekki að óþörfu“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Talað er um miðjan apríl, eigum
við ekki bara bíða og sjá og vona
það besta“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Ég get ekki svarað því. Það fer
allt eftir hvað þetta mun vara lengi“.
— Hvernig eru börnin að upplifa
þetta?
„Ég er með barn á heimilinu og
honum finnst þetta leiðinlegt, sér-
staklega að það sé verið að loka öllu
og það er ekkert hægt að gera í því
nema bara bíða.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Það er mikilvægast af öllu að
halda í gleðina og reyna af öllum
mætti að finna leiðir til að lágmarka
stress á heimilinu. Ég reyni að fara
út að hlaupa og anda að mér hreinu
lofti og gef mér smá stund til að
núllstilla mig. Það er mikilvægt. Við
reynum líka að eiga góðar gæða-
stundir með stúlkunum okkar“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira? Hvernig finnst
þér sveitarfélagið standa sig í
þessum málum?
„Ég held að sveitarfélagið sé
að gera sitt besta á þessum erfiðu
tímum og margt gott hefur verið
gert. Reykjanesbær hefur nú þegar
skipað neyðarstjórn Reykjanesbæjar
og lagt fram viðbragðsáætlun vegna
heimsfaraldurs veirusýkinga. Að
mínu mati hefur verið vel staðið að
því að skipuleggja skólastarf eftir að
samkomubanni var komið á og það
má þakka fyrir það. Við verðum hins
vegar að vera undirbúin fyrir aukið
atvinnuleysi hér á Suðurnesjum,
því svæðið er lang verst sett fyrir
áhrifum af minnkandi umsvifum
ferðaþjónustunnar. Svæðið er of háð
ferðaþjónustu og við verðum að taka
höndum saman og fjölga atvinnu-
tækifærum“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Já, að sjálfsögu, eins og það hefur
áhrif á alla. Eldri dóttir okkar átti
að fermast 23. apríl og hefur ferm-
ingunni verið frestað til haustsins.
Við hittum fáa, afar og ömmur eru
ekki lengur í daglegum samskiptum
og við höldum okkur mest megnis
innandyra“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„Ekki enn sem komið er, en ég
býst við því að það fari að aukast. Ég
kaupi meira inn í einu og matarút-
gjöld hafa aukist mjög mikið“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Ég geri ráð fyrir tveimur mán-
uðum til viðbótar“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Ég þarf sjálf að ferðast mikið
erlendis vegna vinnu og er það nauð-
synlegt vegna starfs míns, ég tel því
líklegt að það fari aftur í svipað horf
og áður. Við höfum hins vegar engar
ákvarðanir tekið um fjölskyldufrí á
erlendri grundu og það verður bara
metið þegar nær dregur“.
— Hvernig eru börnin á heimilinu að
upplifa þetta?
„Já, við hjónin eigum tvær stúlkur.
Þær eru bara ósköp duglegar og sjá
það besta í stöðunni. Þær eru voða-
lega ánægðar með að mamma er
meira heima, en finnst líka erfitt að
hitta sjaldnar vini og missa af tóm-
stundarstarfi. Við reynum bara að
njóta samverunnar eins og kostur
er“.
Ágústa Guðný Árna-
dóttir er hóptímakennari
í líkamsrækt og eigandi
af LÍKAMI & BOOST,
sem er verslun í Sport-
húsinu með fæðubótar-
vörur og boost-drykki.
Hún upplifir ástandið
sem mjög erfitt og skelfi-
legt hvernig þetta er að
hafa áhrif á daglegt líf,
atvinnu, þjóðfélagið og
allan heiminn. Ágústa
Guðný svaraði nokkrum
spruningum Víkurfrétta
um COVID-19.
ÁGÚSTA GUÐNÝ ÁRNADÓTTIR
Allir að reyna gera sitt besta
Ég hef þurft að gera víðtækar breytingar á mínu starfi þar sem ég rek
verslunina Líkami & boost í daglegu starfi og nú með nýjasta banninu
er verslun minni lokað tímabundið og færist allur rekstur minn yfir í
netverslun og þar af leiðandi færist starfið mitt til.