Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 32

Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 32
32 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. En af hverju er Bjarni í sóttkví. Var hann á skíðum? Nei, ég var að syngja við óperuhúsið í Parma á Ítalíu. Við áttum að frumsýna um miðjan mars en viku áður lamaðist allt á þessu svæði og við söngvaranir rétt sluppum til okkar heimalanda áður en það gerðist. Það var skrítið að fylgjast með þessu gerast, svo að segja í nágvígi og eins og allir vita varð ástandið mjög snemma alveg hræðilegt. Þegar ég kom heim flutti konan út og ég fór í tveggja vikna sóttkví. Hvernig hefur gengið í sóttkví? Er þetta eins og að endurlifa föstudaginn langa í hálfan mánuð? Sóttkvíin hefur gengið mjög vel. Við sem störfum sem óperusöngvarar í lausamennsku erum vön að hafa ofan að fyrir okkur á milli æfinga og sýninga hér og þar um heiminn. Tilbreytingin núna var sú að maður var heima hjá sér, í sínu dóti og sínu rúmi. Það var góð tilbreyting. Dagarnir hafa liðið hratt enda hef ég haft ýmislegt fyrir stafni. Það er ekki sniðugt að leggjast bara í sjónvarpsgláp eða netnotkun, það verður leiðinlegt strax og dregur mann niður. Dagbók í sóttkví. Af hverju? Já, þetta var nú ekki planað. Eftir fyrsta daginn setti ég inn færslu á facebook og kallaði hana Dagur 1 í sóttkví. Svo hélt þetta bara áfram dag frá degi og lesendum fjölgaði og fjölgaði. Ég ákvað strax í byrjun að taka sjálfan mig ekki of hátíðlega og reyna að horfa á skondnar og skemmtilegar hliðar á ástandinu, sem auðvitað er ekkert grín. Á sama tíma er ég líka að leita mér að einhverju að gera því söngverkefnin mín eru öll að detta út og þar sem ég vinn nær eingöngu erlendis fell ég á milli þilja þegar kemur að aðstoð hins opinbera. Hvaða vinnu fær miðaldra óperu- söngvari sem er í sóttkví? Það er auðvitað ekki um auðugan garð að gresja en þó hef ég farið í bæði hljóð- og myndprufur hér heima fyrir ýmis verkefni. Í einni færslunni var ég að grínast með það að gerast áhrifa- valdur á netinu því auðvitað fell ég ekki alveg inn í þá skilgreiningu. En þá hafði fyrirtæki samband við mig sem selur sokka. Í framhaldi af því þá fórum við í samstarf; ég minnist á sokkana af og til í skrifum mínum svo framarlega sem mér líst á þá og í staðinn fæ ég hluta af allri sölu sem fer í gegnum heimasíðu fyrirtækisins. Síðan fékk ég nokkur sokkapör til að prófa og spássera um íbúðina alsæll á hverjum degi í nýjum og fallegum sokkum. Þetta kemur sér vel og hefur gefið mörgum sem lesa pistlana mína daglega og skemmta sér yfir þeim, tækifæri til að styrkja mig örlítið og eignast vandaða sokka í leiðinni. Hvað tekur við eftir sóttkví? Það á eftir að koma í ljós. Ég mun halda áfram með pistlana mína svo lengi sem mér dettur eitthvað skemmti- legt í hug og fólk nennir að lesa þá. Við óskum Bjarna velfarnaðar í sótt- kvínni og verkefnaleitinni. Pistlana hans er hægt að nálgast á facebókar- síðunni hans og þeir sem vilja styrka óperusöngvarann og pistlahöfundinn með sokkakaupum geta farið á síðuna www.socks2go.is Gerir grín að sjálfum sér í sóttkvínni Suðurnesjamaðurinn Bjarni Thor Kristinsson óperu- söngvari er mörgum kunnur en hann hefur haldið sóttkvíardag- bók á Facebook síðan hann slapp heim frá Ítalíu snemma í mars. Færslur Bjarna hafa fengið frábærar viðtökur og nú er svo komið að hann hefur náð sér í styrktaraðila í sóttkvínni en það er sokka- fyrirtækið Socks2go. Fjórðungur af allri sölu á netsíðu fyrirtækis- ins um þessar mundir renna beint í vasa Bjarna. N O KK U R BR O T Ú R D A G BÓ KI N N I Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is „Sóttkvíin hefur gengið mjög vel. Við sem störfum sem óperusöngvarar í lausamennsku erum vön að hafa ofan að fyrir okkur á milli æfinga og sýninga hér og þar um heiminn. Tilbreytingin núna var sú að maður var heima hjá sér, í sínu dóti og sínu rúmi“.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.