Víkurfréttir - 26.03.2020, Síða 33
33 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
Dagur 1:
…Það mætti svo sem halda útitónleika af svöl-
unum. Ég fékk m.a.s. hljóðkerfi í jólagjöf og gæti
því haldið uppi stemningu í öllu Akurhverfinu. Í
versta falli myndu nágrannarnir borga mér fyrir að
hætta…..
Dagur 2:
….Í gær var ég nokkuð duglegur en í dag var
ég svo latur að ég nennti bara að borða. Af hverju
virkar letin ekki á hungrið? Það væri mikil blessun.
Vá, þú ert búinn að grennast svo mikið! Já ég nennti
ekki að borða….
Dagur 6:
…Það er örugglega eitthvert tónskáld ákkúrat
núna byrjað að semja óperu um Covid19; ég pant
syngja Trump. Áður fyrr söng ég mikið af gaman-
hlutverkum fyrir bassa en það eru oft klaufalegir
einfeldningar sem fá að lokum makleg málagjöld.
Það væri líka auðvelt að læra hlutverk Trump því ef
maður ruglast eitthvað eða segir einhverja bölvaða
vitleysu þá er maður að komast ansi nálægt fyrir-
myndinni….
Dagur 8:
…Hálfnað er verk þá hafið er segir máltækið. Já,
einmitt. Það er greinilegt að máltækið hefur aldrei
verið í sóttkví. Það hefur aldrei verið lokað inni
vinalaust og þurft að takast á við félagsskapinn af
sjálfu sér. Mikið nær væri að segja: Hálfnað er verk
þá hálfnað er! Sóttkvíin mín er hálfnuð en það var
samt ekki tekinn neinn hálfleikur; ég fékk ekki að
fara af leikvelli og hitta fólk í korter og það sátu
engir sérfræðingar í sjónvarpssettinu og ræddu um
það hvernig ég hefði staðið mig. Já, þetta byrjaði vel
hjá Bjarna en svo kom lélegi kaflinn……
Dagur 13:
…Heimurinn verður ekki sá sami eftir veiruna
því fólk verður miklu meira heima hjá sér. Banka-
útibú hverfa, bílum fækkar, skrifstofuhúsnæði
verður óþarft, Alþingishúsinu verður breytt í safn
þar sem hægt verður að prófa ræðustólinn og
hækka eða lækka púltið að vild. Þar verður svona
selfie-myndabox og gestir geta fengið mynd af sér
með mismundandi forseta Alþingis fótósjoppaða
inn í bakgrunni. Á eftir er hægt að fara á Klaustur-
barinn, sem verður líka safn og tala dónalega. Frá
þeirri heimsókn fær maður hljóðupptöku. Já þetta
verður breyttur heimur….