Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 37

Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 37
37 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennisHÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Móttaka VSFK lokuð! Á meðan neyðarstig varir vegna útbreiðslu COVID-19 munu stéttarfélögin Krossmóa 4 eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu. Þetta er gert með velferð félagsmanna að leiðarljósi. Öllum fyrirspurnum er svarað í síma 421-5777. Eins má senda fyrirspurnir á netföngin vsfk@vsfk.is og á Facebook-síðu VSFK og þeim verður svarað svo fljótt sem unnt er. Umsóknir er hægt að skilja eftir í póstkassa félagsins á 1. hæð. Þjónustuþegar VIRK eru beðnir að hafa samband við ráðgjafa sína í gegn um síma eða með tölvupósti. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins: www.vsfk.is ÓSK UM UMSÖGN UM SKIPULAGSLÝSINGU VEGNA FYRIRHUGAÐRAR BREYTINGAR Á AÐALSKIPULAGI SANDGERÐISBÆJAR 2008-2024 OG GERÐ DEILISKIPULAGS FYRIR NÝJAN LEIKSKÓLA Í SANDGERÐI. Suðurnesjabær áformar að vinna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sandgerð- isbæjar 2008-2024 sem felur í sér að skilgreina svæði fyrir samfélagsþjónustu við Byggðaveg í Sandgerði sem ætlað er til uppbyggingar leikskóla. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verði unnin tillaga að deiliskipulagi fyrir leikskólann. Suðurnesjabær óskar umsagnar um skipulags- og matslýsingu þar sem gerð er grein fyrir skipulagsverkefnunum og hvernig staðið verði að umhverfismati þeirra, sbr. 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. laga um umhverfis- mat áætlana nr. 105/2006. Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu Suðurnesjabæjar https://www.sudurnesjabaer.is/ Umsagnir skal senda til Suðurnesjabæjar með tölvupósti á Jón Ben Einarsson, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs á netfangið jonben@sudurnesjabaer.is. Æskilegt er að umsagnir berist fyrir 14. apríl 2020. Jón Ben Einarsson, Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Suðurnesjabæjar Samkaup skora á landbúnaðarráðherra að auka grænmetis- ræktun á Íslandi Samkaup sendi Kristjáni Þór Júlíus- syni landbúnaðarráðherra sérstaka áskorun um að auka grænmetis- ræktun á Íslandi. Í bréfi til ráðherra er hvatt til þess að í boðuðum aðgerðum stjórnvalda til þess að hamla gegn efnahagskreppu verði sérstaklega ýtt undir innlenda grænmetisframleiðslu með opinberum ráðstöfunum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Í bréfinu segir að framleiðsla á græn- meti á heimsvísu kunni að dragast saman þar sem framleiðendur ytra eigi erfitt með að starfrækja fyrirtæki sín á fullum afköstum. Nú þegar séu tafir á fluningsleiðum farnar að hafa mikil áhrif á framboð auk þess sem miklar verðhækkanir eru í kortunum. Því skipti mestu að hægt verði að tryggja aukna framleiðslu innanlands. „Stjórnvöld geta hvatt til þess að innlend grænmetisframleiðsla verði aukin og fylgt því eftir með hagrænum hvötum og stuðningsaðgerðum. Þær einstöku aðstæður sem við er að glíma um þessar mundir kalla á að gripið sé til framleiðsluhvetjandi aðgerða eins og til að mynda niðurgreiðslna á raforku- verði til grænmetisbænda, aukinna beingreiðslna eða sölutryggingar af einhverju tagi. Samkaup beina því til ráðherra að stjórnvöld og aðrir opin- berir aðilar geri sitt til þess að innlendir framleiðendur geti sem best annað spurn eftir grænmeti á Íslandi,“ segir í bréfi Samkaupa. Í ljósi heimsfaraldurs Covid-19 og fyrirmæla íslenskra yfirvalda um hert samkomubann hefur Bláa Lónið lokað starfstöðvum sínum tímabundið til og með 30. apríl nk. Lokunin tekur til starfsemi fyrirtækisins í Svartsengi og verslana á Laugaveginum og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. „Á tímum sem þessum er mikilvægt að við stöndum saman og gerum það sem í okkar valdi stendur til að hefta útbreiðslu Covid-19. Við vonumst til að hægt verði að opna fyrr en útilokum þó ekki framlengingu lokunar. Það mun koma í ljós eftir því sem þróuninni vindur fram hérlendis og ekki síður erlendis næstu vikur en um 98% af gestum Bláa Lónsins eru erlendir ferðamenn. Hvað varðar áhrif lokunarinnar á störf þá verður reynt að verja þau eins og hægt er. Verið er að meta stöðuna þessa stundina en horft verður til úrræðis ríkisstjórnarinnar um greiðslu atvinnuleysisbóta vegna minnkandi starfshlut- falls,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, í tilkynningu. Bláa Lónið hefur virt í hvíhvetna tilmæli yfirvalda og viðhaldið nánu samstarfi við sóttvarnarlækni frá upphafi, segir jafnframt í tilkynningunni. Neyðar- og viðbragðsáætlanir fyrirtækisins hafa sannað gildi sitt. Öflugt öryggistreymi hefur staðið vaktina dag og nótt til að tryggja að fyrirmælum yfirvalda sé fylgt og þannig öryggi starfsfólks okkar og gesta. „Með því að loka nú erum við ekki síður að horfa til þess að vernda starfs- fólk og draga úr smithættu þess en hjá fyrirtækinu starfa tæplega 800 manns“, segir Grímur. „Þó að starfstöðvum verði lokað þá mun starfsemin ekki öll stöðvast. Við munum einbeita okkur að innri verkefnum, viðhaldsmálum, viðskiptaþróunar- málum, stafrænni þróun og markaðsmálum. Markmið okkar verður að bæta enn upplifun gesta okkar og þjónustu þannig að þegar opnað verður á ný séum við tilbúin í öfluga viðspyrnu,“ segir í tilkynningunni. Bláa Lónið lokar starfsstöðvum tímabundið PÓSTFANG AUGLÝSINGADEILDAR andrea@vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.