Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 39

Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 39
39 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. • Umsjónarkennslu á yngsta- eða miðstigi • Textíl • Heimilsfræði • Náttúrufræðikennslu • Sérkennslu • Smíði Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf til kennslu, skal fylgja umsókn • Kennslureynsla á því stigi sem sótt er um • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður • Færni í samvinnu og teymisvinnu • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum • Ábyrgð og stundvísi • Áhugi á að starfa með börnum Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Kennarasambands Íslands. LAUSAR STÖÐUR Í STÓRU-VOGASKÓLA Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár: Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli. Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Kennarasambands Íslands. Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið skoli@vogar.is fyrir 4. apríl 2020. Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250. Heilsuleikskólinn Skógarás og Leikskólinn Holt í Reykja- nesbæ eru tveir af ellefu „eTwinning“ skólum landsins en nú hefur verið tilkynnt hvaða skólar í Evrópu hljóta viður- kenninguna ‚eTwinning skóli‘ til næstu tveggja ára. Níu skólar hér á landi munu bera titilinn og eru Heilsuleikskólinn Skóg- arás og Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ þeirra á meðal. Hinir skólarnir sjö eru Brekkubæjarskóli, Grunnskóli Bol- ungarvíkur, Hamraskóli, Leikskólinn Furugrund, Norðlingaskóli, Selásskóli og Setbergsskóli. eTwinning skólar eru nú 11 talsins hér á landi en í fyrra hlutu Hrafnagilsskóli og Verzlunarskóli Ís- lands sömu viðurkenningu sem er veitt til tveggja ára í senn. Titillinn ‚eTwinning skóli‘ er viður- kenning á öflugu og góðu evrópsku samstarfi í gegnum þátttöku í eTw- inning verkefnum. Viðurkenningin er þó ekki síður liður í skólaþróun því eTwinning skólar eflast enn frekar í notkun upplýsingatækni og alþjóða- samstarfi og hafa tækifæri til styrkja starfsþróun kennara og skólastjórnenda og auka alþjóðatengsl skólans enda verða þeir sýnilegri í skólasamfélagi eTwinning, sem fer ört vaxandi en telur nú yfir 200 þúsund skóla og tæplega 800 þúsund kennara. eTwinning skólar fá jafnframt tækifæri til að mynd tengsl við aðra eTwinning skóla í Evrópu og verða hluti af evrópsku neti eTwinning skóla. Þar að auki hafa eTwinning skólar að- gang að námskeiðum og vinnustofum sem eykur á möguleika og tækifæri til starfsþróunar og endurmenntunar fyrir kennara og skólastjórnendur. Þess má geta að þær Ingibjörg Lilja Kristjánsdóttir og Katrín Lilja Hraun- fjörð í Heilsuleikskólanum Skógarási hlutu verðlaun á Erasmus deginum síðasta haust fyrir verkefnið Eco Tweet: Little Ecologist. Hér má sjá myndband sem gert var að því tilefni: http://bit.ly/ skogaras-eco-tweet Nánari upplýsingar um eTwinning má nálgast á heimasíðu landskrifstofu eTwinning á Íslandi, etwinning.is, og á Evrópuvef eTwinning, etwinning.net. Skógarás og Holt „eTwinning skóli“ næstu tvö árin Sjáðu sjónvarpsinnslög um verkefnið í myndskeiðum hér að neðan. Smellið til að horfa! FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.