Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 40

Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 40
40 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. „Ég veit auðvitað ekki hvernig þessari óvissuferð lýkur en það er óhætt að segja að það sé sérstök upplifun að vera fastur á skemmtiferðaskipi hinum megin á hnettinum á sextíu ára afmælinu. Við vonum það besta og erum í sambandi við borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytisins,“ segir Keflvíkingurinn Hallur Metusalem Hallsson, lög- reglumaður en COVID-19 hefur svo sannarlega haft áhrif á afmælisferðina hans. Draumaferð á sextugsafmæli „Við hjónin lögðum af stað 3. mars í 60 ára afmælisferðina mína til Buenos Aires í Argentínu. Þar dvöldum við í þrjár nætur áður en við fórum um borð í skemmtiferðaskipið ms Zaandam. 7. mars og létum síðan úr höfn síð- degis 8. mars á 60 ára afmælisdeginum mínum. Siglingin átti að vara í fjórtán nætur, sigla suður fyrir syðsta odda S-Ameríku, Argentínu, Uruguay, Falk- landseyjar og síðan að enda í Santiago í Chile. Allt gekk eins og í sögu þar til við vorum lögð af stað frá Punta Arenas, syðstu borgar Chile við Magellan sund (siglt var um Magellan sund fyrir tíma Panamaskurðarins) áleiðis til Ushhuaia syðsta bæjar Argentínu, sem er jafn- framt syðsti bær heims“. Allir af skipinu „Þegar við vöknuðum 15. mars vorum við komin aftur til Punta Are- nas en ekki Ushusia. Þarna varð vendi- punktur í ferðinni, skipstjórinn sagði að allir yrðu að fara af skipinu í Punta Arenas. Var þá farið í að finna flugmiða heim sem var ekki hægðarleikur. Það tókst þó með dyggri aðstoð Guðmundar Halls sonar míns. Við pökkuðum niður og áttum að fljúga til Santiago í Chile og þaðan til London og heim með viðkomu í Brasilíu. En farþegar fengu ekki að fara í land, sagt var að til þess yrðu að líða fjórtán dagar. Skipstjórinn ákvað þá að sigla skipinu til norðurs. Skipið reyndist hvergi mega koma að landi í S-Ameríku og ákveðið var að taka stefnuna til Ft. Lauderdale í Flo- rída og til vara Mexico eða San Diego,“ segir Hallur. Rekin í klefa Hallur segir að allt hafi leikið í lyndi í heila viku um borð í skipinu eða þar til sunnudaginn 22. mars daginn eftir að skipið fór frá Valparaiso í Chile þar sem vistir og olía voru sett í skipið við erfiðar aðstæður á sjó utan við höfnina. „Við vorum úti á dekki í sólbaði þegar skipstjórinn skipaði öllum að fara í klefa sína og dvelja þar um óákveðinn tíma, þar sem 29 úr áhöfn og 13 far- þegar væru orðnir veikir, með flensu- einkenni. Núna, 24. mars, er staðan sú að við erum í einangrun/sóttkví í innri klefa. Fáum morgunmat, hádegismat og kvöldmat sem er settur utan við klefadyrnar. Síðustu fréttir eru þær að stefnt er á Panamaskurðinn og eiga þar stefnumót við systurskip Zaandam sem heitir Rotterdam og er á siglingu sérstaklega án farþega frá Acapulco, Mexico. Kemur það til aðstoðar með lyf og starfsfólk, ekki hefur annað verið gefið upp um ástæðu þessa sérstaka stefnumóts. Vonandi að það skip sé með það sem til þarf til að ganga úr skugga um hvort kórónavírusinn sé í Zaandam, eins að fá grímur/maska, því við fáum ekki að fara út að viðra okkur þar sem ekki er til nóg af grímum. Það er frekar þrúgandi að vera innilokaður og vita ekki hve lengi. Við erum samt hress miðað við aðstæður, draumur að hafa internetð þó veikt sé,“ segir okkar maður að lokum en skipið sem hann er á mun mæta systurskipi sínu, Rotterdam, 26. mars. -Hallur Hallsson, lögreglumaður úr Keflavík sem er í 60 ára afmælisferð með konu sinni veit ekki hvernig óvissuferðinni lýkur. Eru föst í einangrun í klefa á skipinu á siglingu. Fastur á skemmtiferðaskipi á hinum enda hnattarins Páll Ketilsson pket@vf.is Skip kom með mat og fleira í „lokað“ skemmtiferðaskip. Hallur á skipinu með sundlaugina í baksýn. Eini Íslendingurinn um borð. „Kemur skemmtilega á óvart hversu margir farþegar þekkja til Íslands og hafa komið þangað, tala einnig fallega um það,“ segir Hallur. Hallur heilsaði upp á Maradona. Þeir eru jafngamlir. Hallur og kona hans, Margarita Hallsson á góðri stundu í óvissuferð.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.